Íslendingar lentu í „líbönsku lykkjunni“ 12. ágúst 2010 16:47 Lögregla hvetur fólk til þess að slá ekki inn PIN númer svo að aðrir sjái.
Kærð hafa verið til lögreglu ætluð auðgunarbrot þar sem afrit segulranda debetkorta og upplýsingum um PIN númer þeirra hefur verið náð af viðskiptavinum hraðbanka hér á landi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að ætluð brot hafi uppgötvast þegar tekið var út án heimildar af debetreikningum sex íslenskra aðila í hraðbönkum í Frakklandi í byrjun ágúst. Allir þessir aðilar áttu sameiginlegt að hafa farið í hraðbanka í Reykjavík og lent í vandræðum með að greiðslukortið festist í kortaraufinni. Í þessum tilfellum hafi erlendur karlmaður komið og „aðstoðað" við að leysa úr vandamálinu með því að fá viðkomandi til að slá inn PIN númer. Þegar ekkert hafi gerst hafi viðskiptavinurinn snúið frá en hinn hjálpsami útlendingur hafi komið skömmu síðar hlaupandi með greiðslukortið. Í tilkynningunni segir að aðferðin sé þekkt til að komast yfir greiðslukort og PIN númer og kallast hún „Lebanese loop". Samkvæmt henni er málm- eða plastfjöður komið fyrir í kortarauf hraðbankans sem grípur kortið þannig að það festist. Þegar viðskiptavinurinn er farinn að vandræðast með að hraðbankinn virkar ekki og skilar ekki kortinu þá birtist hjálpsamur borgari og stingur upp á því þjóðráði að slá inn PIN númerið til að losa kortið. Eðlilega gerist ekkert við það en viðskiptavinurinn er þá búinn að opinbera PIN númerið. Þegar korthafinn gefst upp á að fá kortið til baka og hverfur frá þá tekur „hjálpsami borgarinn" fjöðrina ásamt kortinu úr kortarauf hraðbankans. Yfirleitt hafa þessi kort síðan verið notuð strax í framhaldi en í þessum tilvikum sem hér hafa gerst þá virðist segulrönd kortsins hafa verið afrituð en það er einföld aðgerð og krefst ekki mikils tæknibúnaðar né þekkingar. Lögreglan hvetur notendur hraðbanka til að passa upp á að gefa ekki upp öryggisnúmer (PIN) til óviðkomandi með því að slá þau inn að öðrum ásjáandi.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Birtu ekki baulið Erlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sjá meira