Fleiri fréttir

Biðja ökumenn að sýna aðgát

Umferðarljós á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar verða óvirk frá klukkan tíu í dag og í um klukkustund meðan á endurbótum stendur. Á meðan verður umferðarstjórn í höndum lögreglu.

Styttist í samkomulag

Hollenska fyrirtækið ECA Programs bíður enn ákvarðana íslenskra stjórnvalda um hvort fyrirtækinu verði leyft að skrá herþotur hér á landi. Fram kemur á vef Financial Times í kvöld að ekki sé langt í að stjórnvöld veiti fyrirtækinu leyfi til að starfa á Keflavíkurflugvelli. Til stendur þó að setja fyrirvara við samkomulagið og þá er fullyrt í fréttinni að málið verði fyrst borið undir bandaþjóðir Íslands í Atlantshafsbandalaginu.

Prestar grétu og báðust fyrirgefningar

„Þetta var dýrmæt reynsla og ég þakka þessum konum af alhug fyrir yfir höfuð nenna að tala við okkur eftir allan þennan tíma og eftir alla þessa þögn. Þær sögðu okkur frá sársauka okkar og reiði og í þetta skipti stóðu prestarnir ekki uppi og héldu langar ræður heldur lærðu. Ég held að við höfum öll lært eitthvað og ég er gríðarlega þakklát fyrir það,“ segir Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholti.

Var með unnustu Hannesar um nóttina

Gunnar Rúnar Sigþórsson sem nú situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana, var með unnustu Hannesar nóttina örlagaríku. Hann var ekkert yfirheyrður um helgina

Ók undir áhrifum fíkniefna

Brotist var inn í bifreið í Miðtúni í Reykjavík í kvöld og smámunum stolið. Þá barst lögreglu tilkynning að skemmdir höfðu verið unnar á bifreið við Skúlagötu sem erlendir ferðamenn höfðu á leigu.

Hjálpaði nágrannakonu í barnsnauð

Slíkir nágrannakærleikar eru með fólkinu í Galtarlind í Kópavoginum að þegar kona þar var í barnsnauð kom stór hluti íbúa hússins henni til hjálpar.

Regnboginn verður að Bíó Paradís

Regnboginn við Hverfisgötu gengur í endurnýjun lífdaganna þann 15. september næstkomandi og fær heitið Bíó Paradís – heimili kvikmyndanna. Bíó Paradís mun hafa á dagskrá sinni nýjar áhugaverðar kvikmyndir víðsvegar að, auk hverskyns eldri mynda erlendra sem innlendra, hýsa kvikmyndahátíðir og standa fyrir hverskyns kvikmyndatengdum viðburðum.

Fleiri ættleiða börn með sérþarfir

Færst hefur í vöxt að íslenskar fjölskyldur ættleiði kínversk börn með sérþarfir þar sem biðin eftir heilbrigðum börnum getur tekið helmingi lengri tíma. Tæplega 30 börn með ólíkar sérþarfir hafa komið til landsins frá 2007.

Verðhækkanir OR éta upp sparnað Landspítalans

Verðhækkanir Orkuveitu Reykjavíkur hækka rafmagns- og hitareikning Landspítalans um fjörtíu milljónir króna á næsta ári - og éta upp allan sparnað spítans, og meira til, en rekstrarhagnaður hans nam um 35 milljónum króna á fyrri helmingi ársins.

Jóhannes ekki lengur í Bónus

Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu. Bankastjóri Arion banka segir hagsmuni bankans og Jóhannesar ekki fara lengur saman. Jóhannes getur ekki farið í samkeppnisrekstur við Haga næstu 18 mánuði. Gerður hefur verið 12 mánaða starfslokasamningur við Jóhannes auk þess sem hann fær 90 milljóna króna eingreiðslu við fullnaðaruppgjör á viðskiptum sínum við Arion banka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.

Gaskútum stolið á höfuðborgarsvæðinu

Allnokkrum gaskútum var stolið á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Bæði var um ræða gaskúta sem voru teknir af fellihýsum í Grafarvogi og Mosfellsbæ en einnig var gaskútum stolið í innbroti í vesturborginni, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.

Ræktaði kannabis í fjölbýlishúsi í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Kópavogi á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 85 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Húsráðandi, karlmaður á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu.

Dæmdur til þess að greiða meindýraeyði

Karlmaður var dæmdur í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða meindýraeyði 38 þúsund krónur auk 150 þúsund krónur í málskostnað. Meindýraeyðirinn tók að sér að eyða veggjalús í íbúð mannsins ári 2009.

Verða að veiða makríl

Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, hefur það valdið nokkrum vandkvæðum að erfitt hefur reynst að sneiða hjá makríl á síldveiðunum. Hlutfall makríls í aflanum í einstökum holum hefur verið frá 10 prósentum og upp í 70 prósent samkvæmt frétt sem birtist á heimasíðu HB Granda. Þar kemur einnig fram að farið sé að bera á kolmunna í aflanum.

Skófar og blóð ástæða gæsluvarðhalds

Skófar á vettvangi morðsins í Hafnarfirði og blóð á sem fannst á skóm Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, eru meginástæður þess að hann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald fyrir helgi samkvæmt fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Faðir stúlku með hvítblæði vill frekari rannsóknir

„Ég vil helst að Lýðheilsustöð og umhverfisráðuneytið taki þetta að sér,“ segir málarameistarinn Óskar Svavarsson, en fimm ára gömul dóttir hans, Rósalind, greindist með hvítblæði vegna hárra rafsegulmengunar.

Rafsegulmengun svipuð og í Svíþjóð

Segulsvið íbúða á Íslandi er svipað og í Svíþjóð samkvæmt rannsókn Geislavarna ríkisins og Brunamálastofnunnar. Rafsegulsvið í rúmlega 130 íbúðum var rannsakað og kom þá í ljós að segulsviðið er svipað og í Svíþjóð en frágangur raflagna á Íslandi og Svíþjóð er sambærilegur samkvæmt tilkynningu frá Geislavörnum ríksins.

Segir botninum náð - spáir uppgangi á fasteignamarkaði

„Ég trúi því að næstu tölur muni jafnvel sýna að fjöldi þinglýstra samninga hafi tvöfaldast,“ segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, en hann segir jákvæð teikn á lofti á fasteignamarkaðinum sem hefur verið frosinn meira eða minna síðan í árslok 2007.

Björk tekur við Polar verðlaununum í dag

Björk Guðmundsdóttir tekur í dag við hinum virtu Polar-tónlistarverðlaunum úr hendi Karls Gústafs Svíakonungs í Stokkhólmi í dag. Svíar kalla verðlaunin Nóbelsverðlaun tónlistarinnar og í ár eru það Björk og ítalska tónskáldið Ennio Morricone sem eru heiðursins aðnjótandi. Verðlaunin voru stofnuð árið 1989 af Stikkan Anderson, útgefanda Abba og á meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Paul McCartney, Sir Elton John og B.B. King.

Malbik komið yfir Melrakkasléttu

Umdeildur vegur þvert yfir Melrakkasléttu, svokölluð Hófaskarðsleið, hefur loks verið opnaður umferð, en verkið tafðist um heilt ár vegna deilna Vegagerðar við bónda, sem vildi ekki að síðasti spottinn færi um land sitt. Leiðin milli Akureyrar og Þórshafnar styttist við þetta um 46 kílómetra og leiðin til Raufarhafnar um tólf kílómetra.

Helguvík: Ráðherra boðar til fundar

Iðnaðarráðherra hefur boðað til fundar í dag vegna framkvæmda við álverið í Helguvík, en mikil óvissa hefur verið um framvindu verkefnisins á síðustu misserum.

InDefence þiggja frelsisverðlaunin

„Það er auðvelt að sjá kaldhæðnina í þessu, en við ákváðum að þiggja verðlaunin“, segir talsmaður Indefence hópsins sem fékk fyrir helgi Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar frá Sambandi ungra sjálfstæðismanna. Barátta Indefence snerist um Icesave-reikninga Landsbankans, þar sem fyrrnefndur Kjartan sat í bankaráði.

Útlit fyrir gott veður norðan og austan til

Það stefnir í sumarauka um norðan og austanvert landið næstu daga með björtu, hlýju og tiltölulega stilltu veðri. Samkvæmt spá Veðurstofunar gæti hitinn farið upp í 17 stig norðanlands á morgun og svo upp í 20 stig norðaustanlands á fimmtudag og föstudag.

Fengu ekkert að vita um hættu á Arsenikmengun

Fyrrverandi sveitarstjórnarmaður í Ölfusi gagnrýnir að þegar tekin var ákvörðun um Hellisheiðarvirkjun að þeim hafi ekki verið sérstaklega tilkynnt um hættu á arsenikmengun tengdri virkjuninni. Þörf sé á að gæta fyllstu varúðar í slíkum málum þar sem vatn og fiskimið geti skaðast og þar með einar mestu auðlindir landsins.

Aurskriða lokaði veginum í Flateyjardal

Vegna aurskriðu er vegur númer F899 í Flateyjardal lokaður við Eyvindará. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Í sömu tilkynningu eru ökumenn varaðir við truflun á umferð á Reykjanesbraut í dag.

Fundu blóð á skónum

Blóð fannst á skóm í eigu Gunnars Rúnars Sigurþórssonar samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag. Þar segist blaðið hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því.

Átta ferðamenn í bílveltum í gær

Átta erlendir ferðamenn komust i hann krappann í þremur bílveltum í gær. Fjórir sænskir ferðamenn voru í bílaleigubíl sem valt á Kjalvegi, skammt frá Gullfossi. Einn þeirra skrámaðist eitthvað en sjúkraflutningamenn gerðu að meiðslum hans á staðnum.

Makríllinn þvælist fyrir sjómönnum

Skip, sem veiða uppsjávarfisktegundir, eru að lenda í vandræðum með að veiða kvóta sinn úr Norsk- íslenska síldarstofninum, þar sem mikill makríll veiðist með síldinni og þau eru að verða búin með makrílkvótannn.

Lopapeysuþjófur á ferð í Mosfellsbæ

Brotist var inn í heildverslun við Álafossveg í Morfellsbæ í nótt og þaðan stolið sex til átta lopapeysum og engu öðru. Þjófurinn komst undan og er ófundinn.

Smitaði fórnarlamb af lifrarbólgu C

Ríkissaksóknari hefur ákært, fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra, tvo handrukkara fyrir að misþyrma rúmlega tvítugum manni hrottalega. Öðrum handrukkaranum er meðal annars gefið að sök að hafa stungið unga manninn með blóðugri sprautunál og smitað hann af lifrarbólgu C.

Skattalækkun örvi bílasölu

Bílgreinasambandið leggur til að tíu ára gamlir bílar verði afskrifaðir og eigendur þeirra fái á móti afslátt af innflutningsgjöldum á nýjum bíl. Sambandið vill sömuleiðis að innflutningsgjöld á nýjum bílum verði lækkuð. Markmiðið er að flýta fyrir endurnýjun bílaflotans og koma markaðnum á hreyfingu á ný eftir gífurlegan samdrátt í bílasölu eftir bankahrun.

Bað Sigrúnu Pálínu forláts

Hjálmar Jónsson, prestur í Dómkirkjunni í Reykjavík, vék að máli Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur í prédikun sinni í gær. Bað Hjálmar hana fyrirgefningar á því að hafa brugðist henni.

Misnotaði fötluð frændsystkin sín

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn andlega fötluðum bróðurbörnum sínum, dreng og stúlku. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur og drengnum eina milljón króna. Þá var hann sakfelldur fyrir vörslu á miklu magni af barnaklámsmyndum, sem sýndu gróft ofbeldi gegn börnum. Það var Héraðsdómur Norðurlands-eystra sem kvað dóminn upp.

Loka lauginni vegna ásóknar

Metaðsókn var í sundlaugina í Stykkishólmi í júlí síðastliðnum samanborið við síðustu ár. Alls komu 13.233 gestir í laugina í júlí síðastliðnum. Á sama tíma í fyrra voru þeir tæplega þrettán þúsund og árið þar á undan voru þeir rétt rúmlega níu þúsund. Þetta kemur fram í Stykkishólmspóstinum.

Hækkun gjaldskrár kemur í bakið á OR

Guðlaugur Gylfi Sverrisson, fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir ekki þörf á því að fara jafn bratt í hækkanir á gjaldskrá Orkuveitunnar og raun ber vitni. Sýnt hafi verið fram á að mögulegt sé að fara mun hægar í sakirnar til að standa undir skuldbindingum fyrirtækisins til skamms tíma. Mat Guðlaugs gengur þvert á niðurstöðu stjórnar og orð núverandi stjórnarformanns, Haraldar Flosa Tryggvasonar. „Ég vil meina að menn hafi valið hag fyrirtækisins á kostnað neytenda,“ segir Guðlaugur.

Skorar á Pál að nefna dæmi

Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, ætti að nefna hvaða mál það eru sem hann hefur erft frá síðasta meirihluta, sem hafa skapað borginni skaðabótaskyldu, segir Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrum formaður skipulagsráðs fyrir Sjálfstæðisflokk.

Tveir Íslendingar með CTD

Tveir Íslendingar hafa verið greindir með CTD-sjúkdóminn á Landspítalanum. Þetta eru nánir ættingjar, og eru lausir við öll einkenni, svo sem mikla þreytu og ýmis óþægindi sem sjúkdómnum fylgja. Fólkið hefur fengið meðferð við sjúkdómnum.

Kynferðisofbeldi ekki liðið

Samstarfshópur á vegum Þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúfélaga mun hleypa af stokkunum átaki gegn kynferðislegu ofbeldi næstkomandi þriðjudag. Alls taka fimmtán trúfélög þátt í átakinu.

Hamraborgin iðaði af lífi

Hamraborgarhátíð í Kópavogi var haldin í fyrsta sinn á laugardaginn. Hátíðin var haldin á vegum Kópavogsbæjar í samstarfi við verslanir og fyrirtæki í Hamraborginni.

Umsýsla málefna fatlaðra gagnrýnd

Ríkisendurskoðun gagnrýnir hvernig haldið er utan um málefni fatlaðra. Í nýrri skýrslu er meðal annars gagnrýnt að ekki liggi fyrir formlega samþykkt heildarstefna um þennan málaflokk og að fjárveitingar taki ekki mið af reglulegu mati á þörf fyrir þjónustu. Einnig sé eftirliti með þjónustunni ábótavant og því ekki tryggt að jafnræði ríki meðal þjónustuþega.

Skráð viðtöl 2,1 á hvern íbúa

Skráð viðtöl, vitjanir, símtöl og önnur samskipti á heilsugæslustöðvum landsins voru ríflega 2,5 milljónir árið 2009. Að símtölum frádregnum voru þau 5,8 á hvern íbúa landsins.

Sjá næstu 50 fréttir