Árni Sigfússon: Ekki kom til greina að leita til eftirlitsnefndarinnar 30. ágúst 2010 18:56
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að ekki hafi komið til álita að leita til eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaganna vegna vanskila bæjarins. Reykjanesbær er í vanskilum með erlent lán upp á 1,8 milljarða króna en lánið féll í gjalddaga í byrjun ágúst. Morgunblaðið greindi frá þessu í dag. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hafði sent bænum viðvaranir vegna slæmrar fjárhagsstöðu en nefndin vissi hins vegar ekki um vanskilin. „Það vissi eftirlitsnefndin ekki um og það kom okkur mjög á óvart," segir Kristján Möller, samgönguráðherra. Ráðherra segir að ráðuneytið hafi engar heimildir til að grípa inn í að eigin frumkvæði. „Samkvæmt lögum og reglugerðum er það þannig. Sjálfstæði sveitarfélaga er það mikið." Í sveitastjórnarlögum segir að bæjarstjórn eigi að tilkynna það til eftirlitsnefndar sjái hún fram á vanskil. „Það hefur nú ekki komið til greina að leita til eftirlitsnefndar um þetta mál," segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Árni segist hafa vonað að það tækist að endurfjármagna lánið og ekki sé útilokað að það takist að semja við lánveitandann. Höfðu trú á auknum umsvifum í Helguvík Í fjárhagsáætlun bæjarins var gert ráð fyrir að tekjur myndu aukast um sjö hundruð milljónir króna í ár, einkum vegna umsvifa í Helguvík. „Ef við hefðum ekki trú á þessu verkefni og við værum ekki að sýna raunverulega í okkar áætlunum að við gerðum ráð fyrir að þetta verkefni færi af stað þá þá veit ég ekki hver ætti að gera það," segir Árni aðspurður hvort um um raunhæfa áætlun hafi verið að ræða.Fólk fái almennilega vinnu Skuldir Reykjanesbæjar nema um 400% af árstekjum. Vilji er fyrir því að koma 150% þaki á skuldir sveitarfélaga, en unnið er að endurskoðun sveitarstjórnarlaga. Spurður hvernig vinda eigi ofan af fjárhagsstöðunni segir Árni: „Með því að fólk fái almennilega vinnu, í gegnum þessi störf sem við erum að nefna. Ekki bara álver heldur flugverkefnið, sjúkrahúsverkefnið, gagnaverið og fleiri verkefni. Þá erum við að auka tekjur íbúa og það skilar okkur auknum skatttekjum. Þetta er leiðinn sem hægt er að fara og þetta er leiðin sem Ísland getur farið."
Tengdar fréttir Eftirlitsnefnd vissi ekki um vanskil hjá Reykjanesbæ Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hyggst senda bréf til þeirra sveitarfélaga sem skulda meira en 150% af heildartekjum á næstu dögum. Reykjanesbær hefur ekki greitt lán upp á 1,8 milljarða sem féll í gjalddaga í byrjun ágúst. Eftirlitsnefndin vissi ekki um það. 30. ágúst 2010 12:01 Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Fleiri fréttir Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Sjá meira
Eftirlitsnefnd vissi ekki um vanskil hjá Reykjanesbæ Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hyggst senda bréf til þeirra sveitarfélaga sem skulda meira en 150% af heildartekjum á næstu dögum. Reykjanesbær hefur ekki greitt lán upp á 1,8 milljarða sem féll í gjalddaga í byrjun ágúst. Eftirlitsnefndin vissi ekki um það. 30. ágúst 2010 12:01