Innlent

Ræktaði kannabis í fjölbýlishúsi í Kópavogi

Úr safni.
Úr safni. Mynd/Stefán Karlsson
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Kópavogi á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 85 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Húsráðandi, karlmaður á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna. Lögregla minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×