Innlent

Malbik komið yfir Melrakkasléttu

Þórshöfn.
Þórshöfn.
Umdeildur vegur þvert yfir Melrakkasléttu, svokölluð Hófaskarðsleið, hefur loks verið opnaður umferð, en verkið tafðist um heilt ár vegna deilna Vegagerðar við bónda, sem vildi ekki að síðasti spottinn færi um land sitt. Leiðin milli Akureyrar og Þórshafnar styttist við þetta um 54 kílómetra og leiðin til Raufarhafnar um 21 kílómetra.

Vegarlagningin var langt komin í fyrrasumar þegar Vegagerðin tapaði í Hæstarétti dómsmáli gegn bónda einum nálægt Kópaskeri sem stóð harður gegn því að síðasti spottinn færi um land sitt. Þetta varð til þess að finna þurfti nýtt vegarstæði og sprengja skarð í gegnum klapparholt, sem gárungar fyrir norðan hafa þegar uppnefnt Aulaskarð, enda þótti mörgum málið eitt stórt klúður.

En nú er loksins búið að opna veginn, ári á eftir áætlun, en honum fylgir mikil samgöngubót, mest fyrir íbúa Þórshafnar, Þistilsfjarðar og Raufarhafnar, sem framvegis þurfa á suðurleið ekki að aka á malarvegi með ströndinni fyrir Melrakkasléttu heldur geta nú brunað á rennisléttu slitlagi þvert yfir Sléttuna. Þá leysir nýi vegurinn einnig Öxarfjarðarheiði af.

Þetta er jafnframt ein viðamesta vegagerð sem staðið hefur yfir hérlendis á undanförnum árum. Haukur Jónsson, hjá Vegagerðinni á Akureyri, segir verkið í heild kosta hátt í tvo milljarða króna, þar af kostaði Hófaskarðsleið, sem Héraðsverk vann, um 1.500 milljónir króna, en leggurinn út á Raufarhöfn, sem KNH-verktakar unnu, kostaði um 400 milljónir króna. Haukur segir ekki liggja fyrir hvaða viðbótarkostnaður lagðist á verkið vegna málaferlanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×