Innlent

Dæmdur til þess að greiða meindýraeyði

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur.

Karlmaður var dæmdur í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða meindýraeyði 38 þúsund krónur auk 150 þúsund krónur í málskostnað. Meindýraeyðirinn tók að sér að eyða veggjalús í íbúð mannsins ári 2009.

Það var að beiðni móður mannsins sem meindýraeyðirinn var kvaddur á vettvang. Sérstaklega er tekið fram í dóminum að hann hafi hitt móður mannsins og konu hans sem er af asískum uppruna og skildi ekki vel íslensku.

Tvö rúm eða dýnur voru fjarlægð úr íbúðinni. Annað rúmið var flutt í burtu en hitt sett út í garð.

Meindýraeyðirinn aðstoðaði konurnar við að setja í poka föt og annað sem þær ætluðu að taka og sagt þeim að þvo við að minnsta kosti 50 gráðu hita eða frysta. Ekki hafi verið tekið úr fataskápum og kvaðst meindýraeyðirinn hafa beðið konurnar um að tala við manninn um framhaldið og honum verið sagt að hann myndi hringja og þá gæti hann klárað verkið.

Það var þó aldrei gert fyrr en meindýraeyðirinn hafði samband við manninn. Fékk hann þá þær upplýsingar að maðurinn, sem var stefnt, væri ósáttur við vinnubrögðin hans og fékk annan meindýraeyði til þess að ljúka verkinu.

Svo virðist vera að sá misskilningur hafi verið uppi að meindýraeyðirinn væri búinn að ljúka verkinu sem var ekki raunin. Héraðsdómur tekur undir sjónarmið meindýraeyðisins og dæmir húseigandann til þess að greiða honum 38 þúsund krónur eins og fyrr segir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×