Smitaði fórnarlamb af lifrarbólgu C 30. ágúst 2010 06:15 Lifrarbólga C smitast með blóðsmitun. Aðalsmitleiðin er við notkun sprautufíkla á óhreinum nálum og sprautum, að því er fram kemur á vef landlæknisembættisins.
Ríkissaksóknari hefur ákært, fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra, tvo handrukkara fyrir að misþyrma rúmlega tvítugum manni hrottalega. Öðrum handrukkaranum er meðal annars gefið að sök að hafa stungið unga manninn með blóðugri sprautunál og smitað hann af lifrarbólgu C. Ofbeldismennirnir eru ákærðir fyrir frelsissviptingu, stórfellda líkamsárás, ólögmæta nauðung og tilraun til fjárkúgunar. Þeir héldu unga manninum nauðugum frá klukkan níu að kvöldi sunnudagsins 9. ágúst 2009 til níu morguninn eftir. Auk þess sem þeir beittu hann líkamlegu ofbeldi hótuðu þeir ítrekað að meiða eða lífláta hans nánustu greiddi hann þeim ekki allt að einni milljón króna. Annar ódæðismannanna er ákærður fyrir að hafa svipt manninn frelsi eftir að hann kom sjálfviljugur heim til hans. Sá fyrrnefndi ógnaði hinum síðarnefnda með hnífi, lét hann setjast á stól, vafði kaðli utan um líkama hans og herti að þannig að hann átti erfitt með andardrátt. Þá barði ofbeldismaðurinn fórnarlambið ítrekað með ryksuguröri í andlitið. Handrukkarinn veittist enn fremur að fórnarlambinu með spörkum, kýlingum og barefli, og lentu höggin bæði á höfuð og líkama. Þá stappaði hann á unga manninum, hótaði að smita hann af lifrarbólgu, ógnaði honum með blóðugri sprautunál, sem hann stakk síðan í eyrnasnepil hans. Loks skvetti hann tvisvar heitu kertavaxi á fórnarlambið, kastaði af sér þvagi yfir hann, hellti yfir hann áfengi og henti á hann logandi pappír. Hinn handrukkarinn tók drjúgan þátt í ofbeldinu eftir að ungi maðurinn hafði verið sviptur frelsi sínu, bæði með höggum og spörkum. Þá lagðist hann ofan á manninn, hótaði honum lífláti og jafnframt að beita systur hans og móður hrottalegu ofbeldi og lífláta systurina. Að misþyrmingunum loknum neyddu handrukkararnir manninn til að þrífa húsnæðið. Þeir létu hann vaska upp og þrífa baðherbergið, auk þess sem annar handrukkaranna neyddi hann til að sleikja salernisskálina. Afleiðingar árásarinnar urðu meðal annars þær að ungi maðurinn smitaðist af lifrarbólgu C og hlaut miklar bólgur, mar og eymsli á höfði og líkama, auk skurðsára á hálsi, að því er fram kemur í ákæru. Hann krefst ríflega fjögurra milljóna í skaðabætur. jss@frettabladid.is
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Sjá meira