Innlent

Biðja ökumenn að sýna aðgát

Mynd/Daníel Rúnarsson

Umferðarljós á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar verða óvirk frá klukkan tíu í dag og í um klukkustund meðan á endurbótum stendur. Á meðan verður umferðarstjórn í höndum lögreglu.

Hraði við gatnamótin verður þá takmarkaður við 30 kílómetra á klukkustund, auk þess sem einungis verður hægt að beygja til hægri af Grensásvegi inn á Miklubraut. Hvorki verður hægt að aka þvert yfir Miklubraut, né beygja til vinstri.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða hraðatakmarkanir. - sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×