Innlent

BSRB gagnrýnir hækkanir Orkuveitunnar harðlega

Stjórn BSRB mótmælir harðlega umfangsmiklum hækkunum á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur samkvæmt ályktun stjórnar BRSB.

Þar segir að hækkanirnar hafi áhrif til hækkunar vísitölu og þar með talið vísitölutengdra lána og koma því almenningi sérstaklega illa.

Með þeim veikir stjórn OR þá tilraun til stöðugleika sem reynt hefur verið að koma á í samfélaginu og býður þeirri hættu heim að aðrir fylgi í kjölfarið með gjaldskrárhækkanir að mati stjórnar BSRB.

„Það er ótækt að einstakir notendur þurfi að greiða óráðsíufjárfestingar síðustu ára, þar sem eigendur tóku milljarða lán á sama tíma og þeir greiddu sjálfum sér háar upphæðir í arð. Um gríðarlega miklar hækkanir er að ræða og ljóst er að samkeppnisyfirvöld munu þurfa að skoða lögmæti þeirra, a.m.k. hvað dreifinguna varðar," segir svo í ályktuninni.

Svo segir orðrétt:

„Ljóst er að vandi OR er uppsafnaður og á honum verður að taka. Það má hins vegar ekki gera svo bratt að það komi almenningi í koll. Við þá vinnu verður jafnframt að hafa í huga að vernda grunnþjónustu við notendur og verja þau störf sem henni tengjast."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×