Umsýsla málefna fatlaðra gagnrýnd 30. ágúst 2010 02:45 Landssamtökin þroskahjálp segja fjáframlög ríkis ekki hafa dugað fyrir grunnþjónustu við fatlaða einstaklinga. Ríkisendurskoðun gagnrýnir stjórnun í málefnum fatlaðra í nýrri skýrslu.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir hvernig haldið er utan um málefni fatlaðra. Í nýrri skýrslu er meðal annars gagnrýnt að ekki liggi fyrir formlega samþykkt heildarstefna um þennan málaflokk og að fjárveitingar taki ekki mið af reglulegu mati á þörf fyrir þjónustu. Einnig sé eftirliti með þjónustunni ábótavant og því ekki tryggt að jafnræði ríki meðal þjónustuþega. Svæðisskrifstofur í umboði félags- og tryggingamálaráðuneytisins sjá um að veita þjónustu við fatlaða. Stjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar segir skýrsluna áfellisdóm yfir Alþingi og félags- og tryggingamálaráðuneytinu. „Ríkisendurskoðun tekur í raun undir það sem við höfum bent stjórnvöldum á í mörg ár,“ segir Gerður A. Árnadóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. „Eftirlitið með þjónustunni er óviðunandi og árum saman hafa fjárveitingar ekki verið í neinu samræmi við þörfina en þarna er þó einungis um að ræða grunnþjónustu í daglegu lífi, engan lúxus,“ segir Gerður. „Þetta er sérstaklega alvarlegt því þarna er um að ræða einstaklinga sem geta ekki staðið vörð um sín réttindi.“ Áformað er að flytja málaflokkinn alfarið frá ríki til sveitarfélaga í byrjun ársins 2011. Ráðuneytið mun þó bera ábyrgð á yfirstjórn hans og hafa eftirlit með þjónustunni. Ríkisendurskoðun telur ekki liggja fyrir mat á því hvaða ávinningi flutningurinn mun skila og telur það ámælisvert. Félagsmálaráðherra segir flutning málaflokksins yfir til sveitarfélaganna hins vegar skapa tækifæri til leiðréttingar á þeim veikleikum sem kunni að vera á stjórnkerfinu. „Nýtt stjórnkerfi mun taka við af Svæðisskrifstofunum og ríkið mun leggja umtalsverða fjármuni í að greiða fyrir þeirri yfirfærslu og mæta uppsafnaðri þjónustuþörf,“ segir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra. „Þetta mun skila þeim ávinningi að þjónustan flyst nær þeim sem þurfa hennar með.“ Ráðherra segir jafnframt að ráðuneytið muni taka skýrsluna til athugunar. „Þarna eru gerðar athugasemdir við skipulag þessa málaflokks til áratuga og við munum taka það til vandlegrar athugunar. Á næsta þingi verður lagt fram frumvarp hvernig eftirliti með réttindagæslu fatlaðra einstaklinga og þjónustunni við þá verði hagað. Við vinnum í samvinnu við hagsmunasamtök fatlaðra enda lykilatriði að notendur séu við borðið þegar verið er að skipuleggja þjónustuna.“ heida@frettabladid.is .
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira