Fleiri fréttir

Ekki mistök að skerða fæðingarorlof

Félagsmálaráðherra hafnar því að mistök hafi verið að skerða fæðingarorlof um áramótin, en feðrum í orlofi hefur fækkað hlutfallslega meira en mæðrum. Hann sér ekki fyrir sér hærri framlög til sjóðsins á komandi ári.

Atlantshafsbandalagið í tilvistarkreppu

Atlantshafsbandalagið hefur átt í tilvistarkreppu og hefur verið að leita leiða til að réttlæta tilveru sína, segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og formaður utanríkismálanefndar Alþingis um hugleiðingar Anders Fogh Rasmussens, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Fogh reifaði hugmyndir sínar um aukið samstarf milli bandalagsins og Evrópusambandsins í viðtali við Evrópusambandið í danska blaðinu Berlingske Tidende.

Von á miklu mannlífi í Hafnarstræti

Hafnarstræti hefur nú verið verið lokað fyrir bílaumferð við Pósthússtræti til að gefa gangandi, hjólandi og verslunum betra rými. Þeir sem reka verslanir í götunni ætla að nýta sér hana með ýmsu móti í september til dæmis með sölutjöldum.

Ný stjórnarskrá óþörf

Það er óþarfi að fara í heildarendurskoðun á stjórnarskránni, segir Sigurður Líndal, fyrrverandi lagaprófessor við Háskóla Íslands. Hann segir að best sé að sé að breyta stjórnarskrám í áföngum en ekki í heild.

Ráðast í átak gegn kynferðisofbeldi

Samstarfshópur á vegum Þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúfélaga heypa af stokkunum átaki gegn kynferðislegu ofbeldi næsta þriðjudag. Alls taka 15 trúfélög þátt í átakinu.

Tillaga um að hætta ESB viðræðum verði afgreidd sem fyrst

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar, tekur undir með Þorsteini Pálssyni sem skrifaði í Fréttablaðið í gær að Alþingi eigi að afgreiða sem fyrst þingsályktunartillögu um að hætta viðræðum við Evrópusambandið.

Höfðu afskipti vegna hávaða í heimahúsum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti þó nokkrum sinnum að hafa afskipti af hávaða í heimahúsum víðsvegar um bæinn í nótt þar sem fólk tók ekki tillit til næstu nágranna. Þá var nokkuð um pústra á milli manna í miðbænum að sögn lögreglumanns sem fréttastofa talaði við. Í heildina litið fór þó allt nokkuð vel fram í skemmtanalífinu þessa nóttina að sögn lögreglumannsins.

Þrjú útköll vegna elda í matarpottum

Talsverður erill hefur verið hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í dag og í kvöld sem hefur þurft að sinna þremur útköllum eftir tilkynningar um elda í matarpottum í íbúðarhúsum. Þá fóru sjúkraflutningamenn í yfir 30 sjúkraflutninga í dag.

Lögreglan endurgreiddi dópsmyglara eina milljón auk vaxta

Fíkniefnalögreglan þurfti að skila dæmdum dópsmyglara einni milljón króna í reiðufé sem lögreglan hafði haldlagt vegna gruns um að féð væri illa fengið. Dópsmyglarinn fékk vexti á fé sitt greidda frá lögreglunni.

Stærstu flokkarnir á Íslandi hafa enga stefnu í málefnum kirkjunnar

Stærstu stjórnmálaflokkarnir á Íslandi hafa enga opinbera stefnu um samband ríkis og kirkju. Vinstri grænir eru eini fokkurinn á Alþingi sem opinberlega vill aðskilnað, en það er hægara sagt en gert því samband ríkis og kirkju er bundið sterkum böndum sem varin eru af stjórnarskránni.

Bæjarstjórinn bjartsýnn

Bæjarsjóður Akureyrar kemur fyrst um sinn að rekstri menningarhússins Hofs og er bæjarstjórinn bjartsýnn þrátt fyrir stóran bita í bókhaldi bæjarins. Vígsluathöfn hússins fór fram síðdegis og húsið iðaði af lífi og list.

Helmingur sýnanna reyndust menguð

Helmingur sýna sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands tók á Þingvöllum í vikunni reyndust menguð, en saurgerlar fundust í einu þeirra. Enn er óvíst hvort Holræsa- og stífluþjónustan verði ákærð fyrir að losa seyru á vatsnverndarsvæði Þingvalla.

Vann tæpar 26 milljónir

Einn heppinn spilari var með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og fær hann 25,6 milljónir í sinn hlut. Vinningsmiðinn var seldur verslun N1 við Borgartún. Sex voru með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fengu viðkomandi spilarar rúmar 60 þúsund krónur hver.

Tilkynnt um eld í Trönuhjalla

Slökkviliði höfuðborgarsvæðsins barst tilkynning um eld í íbúðarhúsi við Trönuhjalla í Kópavogi á sjöunda tímanum í kvöld. Dælu- og sjúkrabílar fóru á vettvang. Ekki fengust frekari upplýsingar um málið hjá varðstjóra.

Gunnar Rúnar hafður í einangrun

Gunnar Rúnar Sigurþórsson sem í gær var úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um morðið á Hannesi Helgasyni verður að öllum líkindum ekki yfirheyrður um helgina. Hann er hafður í einangrun á Litla-Hrauni og verður það áfram eins lengi og lögreglan telur nauðsynlegt vegna rannsóknahagsmuna. Hann var úrskurðaður í fjörgurra vikna gæsluvarðhald í en sá úrskurður hefur verið kærður til Hæstaréttar. Gunnar neitar sök.

Ekki ágreiningur um fækkun ráðuneyta

Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og varaformaður allsherjarnefndar, segir engann ágreining vera innan stjórnarflokkanna um fækkun ráðuneyta. Málið þurfi einfaldlega meiri undirbýnings.

Dregur úr spítalasýkingum

Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að innlagnarsjúklingum hafi fækkað allmikið að meðaltali hjá spítalnum og verulegur árangur hafi náðst í baráttu við að koma í veg fyrir spítalasýkingar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Björns á heimasíðu Landspítalans þar sem hann fjallar um svokallað skorkort fyrir spítalann í heild sinni með rekstrartölum fyrir fyrstu sex mánuði ársins.

Lokadagur Íslandsmótsins í dag

Lokdadagur Íslandsmóts í hestaíþróttum á Sörlavelli í Hafnarfirði fór fram í dag. Töltkeppni í A-úrslitum var æsispennandi en þar náði Viðar Ingólfsson að verja titil sinn á Tuma frá Stóra-Hofi og sigraði með einkunnina 8,43 en Jakob Svavar Sigurðsson og Sigurbjörn Bárðarson voru jafnir í 2.-3 sæti með einkunnina 8,42.

Ætla að efla samskiptin

Til stendur að efla samskipti Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna mun frekar en nú er. Þetta er á meðal þess sem ákveðið var á fundi utanríkisráðherra ríkjanna í Riga í Lettlandi í gær. Unnið verður að þessu í samræmi við tillögur sem Sören Gade fyrrverandi varnarmálaráðherra Dana og Valdis Birkavs fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Letta unnu.

Hækkunin gríðarlega erfið fyrir garðyrkjubændur

Hækkun á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur er gríðarlega erfið fyrir garðyrkjubændur, segir Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. Hann segir að kostnaður fyrir garðyrkjubændur vegna hækkunarinnar geti numið milljónum á ársgrundvelli fyrir hvern garðyrkjubónda. Bjarni ætlar að óska eftir fundi með forsvarsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur í næstu viku.

„Orð Sigurðar dæma sig sjálf“

Ólafur Þ. Hauksson sérstakur saksóknari sér enga ástæðu til að bregðast við ummælum Sigurðar Einarssonar í Fréttablaðinu í dag.

Almennir notendur bera gjaldskrárhækkun OR einir

Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna gagnrýnir að almennir notendur beri gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavíkur einir, erfiðleikar Orkuveitunnar stafi ekki af þjónustu við þá. Orkuveitan hækkaði gjaldskrá sína um allt að 40% í gær.

Björguðu manni úr sjónum

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fóru að Faxagarði um tvöleytið í nótt þar sem maður hafði fallið í sjóinn og þurfti aðstoð til að komast aftur á þurrt. Ekki liggur fyrir hvernig maðurinn komst í sjóinn.

Á fjórða tug milljóna söfnuðust

Yfir 32 milljónir söfnuðust í átakinu „Á allra vörum" sem endaði með sjónvarspútsendingu á Skjá einum í gærkvöld. Gróa Ásgeirsdóttir, ein af forsvarskonum átaksins, segir að til viðbótar þessu komi afrakstur sölu á glossum. Heildarupphæðin kunni því að ná yfir 40 milljónir króna.

Handtekinn fyrir líkamsárás í Austurstræti

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Austurstræti í nótt eftir að hann hafði ráðist á tvo menn á þrítugsaldri og nefbrotið annan þeirra. Árásarmaðurinn var í annarlegu ástandi og var látinn gista fangageymslur yfir nótt.

Björgunarsveitarmenn leituðu sofandi manns

Björgunarsveitamenn frá Akranesi voru ræstir út um hálfþrjúleytið í nótt til leitar að manni sem hafði verið saknað síðan upp úr miðnætti. Maðurinn fannst rétt fyrir klukkan níu í morgun nálægt sumarbústað sem hann hafði dvalið í. Í ljós kom að hann hafði sofnað undir berum himni án þess að samferðarfólk hans vissi af. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi hafði verið óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og var hún rétt ófarin í loftið þegar að maðurinn fannst.

Vill skaðabætur vegna sumarmarkaðar í Hafnarfirði

„Ég mun leita réttar míns fyrir dómstólum," segir Jón Hlíðar Runólfsson sem telur Hafnarfjarðarbæ hafa farið á bak við sig og svikið samninga þegar bærinn kom á fót sumarmarkaði á Thorsplaninu nú í sumar. Jón Hlíðar hafi sjálfur farið þess á leit við bæinn að halda utan um sumarmarkað í sömu götur og fengið jákvæðar viðtökur.

Sóley kallar á viðræður við Norðurál

Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, leggur til að leitað verði eftir viðræðum við Norðurál um raforkusölusamninga með það að markmiði að auka tekjur Orkuveitu Reykjavíkur. Hún segir að tillögur Orkuveitunnar um gjaldskrárhækkanir hefðu þurft aukna „pólitíska rýningu" af hálfu stjórnar.

Situr uppi með ónýta afmælisgjöf

Barbara Þóra Kjartansdóttir keypti tölvuleik handa syni sínum í afmælisgjöf. Þegar litli drengurinn ætlaði að spila leikinn virkaði hann ekki og Barbara fór með diskinn aftur í búðina en henni til mikillar undrunar og ama - fær hún ekki að skila leiknum.

Útilokar ekki frekari hækkanir

Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR, útilokar ekki að til frekari gjaldskrárhækkana komi að ári. Í samtali við Heimi Má Pétursson í kvöldfréttum Stöðvar 2 sagði hann ekki víst að þessi hækkun dyggði til að rétta kútinn hjá Orkuveitunni, stjórnendum fyrirtækisins hefði verið gefin heimild til að taka frekari ákvarðanir um gjaldskrárhækkanir tvisvar á ári með hliðsjón af hækkun neysluvísitölu.

Blásandi borhola gæti ráðið úrslitum

Virkjana- og rannsóknaleyfi á Reykjanesskaga, sem HS Orka sótti um fyrir þremur árum, hafa ekki enn fengist, meðal annars vegna ágreinings vísindamanna um hve mikil orka leynist í iðrum jarðar. Þetta er ein af ástæðum þess að HS Orka telur forsendur orkusamning vegna álvers í Helguvík brostnar.

Nýja Lyngdalsheiðin opnuð í september

Byrjað er að malbika nýja veginn yfir Lyngdalsheiði, milli Þingvalla og Laugarvatns, en stefnt er að því að hann verði opnaður fyrir umferð eftir rúmar þrjár vikur.

Stórhækkun á orkuverði

Orkuverð frá Orkuveitu Reykjavíkur mun hækka um 28,5% þann 1. október. Þetta var ákveðið á eigendafundi Orkuveitunnar sem lauk klukkan hálf sjö í dag. Gert er ráð fyrir gjaldskrárhækkunin skili Orkuveitunni fjórum milljörðum króna og að hagræðingaraðferðir skili tveimur milljörðum aukalega í kassann.

Fær ekki að flytja með fjölskyldu sína heim

Íslenskur maður hefur í tæpt ár reynt að flytjast með konu sína og dóttur til Íslands frá Dóminíska lýðveldinu, en Útlendingastofnun hefur ekki fallist á gögn sem sýna fram á forsjá barnsins.

Aðstandendur Hannesar viðstaddir í Héraðsdómi

Þáttaskil urðu í rannsókninni á morðinu á Hannesi Helgasyni í dag þegar karlmaður á þrítugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um að hann eigi aðild að andláti Hannesar. Aðstandendur Hannesar voru viðstaddir í Héraðsdómi Reykjaness þegar úrskurðurinn var kveðinn upp.

Harður árekstur á Miklubraut

Engin slys urðu á fólki þegar fólksbíll keyrði aftan á jeppa á Miklubrautinn um klukkan hálf sex í dag. Fólksbíllinn var mikið skemmdur og var fjarlægður af vettvangi af kranabíl. Lögreglan á staðnum sagði alla ómeidda, þetta væri bara vesen, en þung umferð var um Miklubrautina þegar áreksturinn varð.

Gunnar Rúnar neitar sök

Gunnar Rúnar Sigurþórsson neitar að hafa átt þátt í andláti Hannesar Þórs Helgason en Gunnar var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald siðdegis í Héraðsdómi Reykjaness. Hann hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar.

Gunnar Rúnar leiddur fyrir dómara - myndband

Gunnar Rúnar Sigurþórsson var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness klukkan þrjú í dag. Þar var hann úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald sem rennur út 24. september næstkomandi.

55 kaupsamningar þinglýstir

Alls voru 55 kaupsamningar þinglýstir á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Þar af voru 45 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.262 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,9 milljónir króna.

Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald

Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðahald í fjórar vikur vegna gruns um að hafa átt aðild að andláti Hannesar Þórs Helgasonar, sem var myrtur á heimili sínu 15. ágúst síðastliðinn.

Starfsmenn Íbúðarlánasjóðs lýsa yfir stuðningi við umsókn Ástu

Starfsmenn Íbúðalánasjóðs lýsa yfir fullum stuðningi við umsókn Ástu H. Bragadóttur um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs og harma þá ákvörðun hennar að draga umsókn sína til baka samkvæmt tilkynningu sem þeir sendu á fjölmiðla upp úr hádegi. Þá sagði einnig í tilkynningunni að starfsmenn hefðu þær upplýsingar að Ásta hefði notið stuðnings meirihluta stjórnar Íbúðalánasjóðs.

Sjá næstu 50 fréttir