Innlent

Lopapeysuþjófur á ferð í Mosfellsbæ

Brotist var inn í heildverslun við Álafossveg í Morfellsbæ í nótt og þaðan stolið sex til átta lopapeysum og engu öðru. Þjófurinn komst undan og er ófundinn.

Undir miðnætti braust ungur afbrotamaður inn í leikskóla í Hafnarfirði og var að rétta vini sínum þýfi út um glugga, þegar nágranna leikskólans bar að og héldu piltinum á meðan beðið var eftir lögreglu, sem handtók hann.

Vinurinn komst hisnvegar undan með fartölvu. Þótt hinn handtekni sé aðeins sautján ára, á hann afbrotaferil að baki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×