Verða að veiða makríl 30. ágúst 2010 16:00 Makríll.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, hefur það valdið nokkrum vandkvæðum að erfitt hefur reynst að sneiða hjá makríl á síldveiðunum. Hlutfall makríls í aflanum í einstökum holum hefur verið frá 10 prósentum og upp í 70 prósent samkvæmt frétt sem birtist á heimasíðu HB Granda. Þar kemur einnig fram að farið sé að bera á kolmunna í aflanum. Ágætur gangur hefur verið í síld- og makrílveiðum skipa HB Granda upp á síðkastið. Veiðisvæðið er stórt og hafa skipin m.a. verið að veiðum í Síldarsmugunni og færeysku lögsögunni. Þá hefur afli fengist um 40 sjómílur frá Vopnafirði. Skip HB Granda eiga nú óveidd um 15.000 tonn af síldarkvótanum en ekki eru eftir nema um 2.500 tonn af makrílkvótanum. Því má segja að makrílinn verði að veiða sem meðafla á síldveiðunum og nauðsynlegt er að haga veiðunum þannig að hlutfall makríls í aflanum verði ekki of hátt. Í gærkvöldi lauk vinnslu á Vopnafirði á afla úr Lundey NS og nú er verið að vinna afla úr Faxa RE og Ingunn AK bíður löndunar. Lundey er nú á veiðum. Í nótt var trollinu kastað aðeins um 40 sjómílur frá höfninni í Vopnafirði en á þeim slóðum fékk skipið afla í veiðiferðinni á undan. Aflinn í fyrsta holinu var 150 tonn og reyndust um 80 prósent aflans vera síld og um 20 prósent makríll. Makríl-veiðar hafa vægast sagt farið illa í breska sjómenn, þá helst skoska. Þeir hafa meðal annars heimtað hafnarbanni á íslenska og færeyska togara vegna markíl-veiðanna sem þeir líkja við rányrkju.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Sjá meira