Skattalækkun örvi bílasölu 30. ágúst 2010 05:45
Bílgreinasambandið leggur til að tíu ára gamlir bílar verði afskrifaðir og eigendur þeirra fái á móti afslátt af innflutningsgjöldum á nýjum bíl. Sambandið vill sömuleiðis að innflutningsgjöld á nýjum bílum verði lækkuð. Markmiðið er að flýta fyrir endurnýjun bílaflotans og koma markaðnum á hreyfingu á ný eftir gífurlegan samdrátt í bílasölu eftir bankahrun. Bílgreinasambandið lagði afskriftir á gömlum bílum til við fjármálaráðuneytið snemma árs 2009. Ástæðan var hrun í sölu nýrra bíla. Að mati sambandsins þarf að flytja inn milli 14 og 15 þúsund bíla á ári til að bílaflotinn verði ekki of gamall. Á þessu ári megi hins vegar gera ráð fyrir að einungis um 3.000 nýir bílar verði fluttir inn. Sverrir Viðar Hauksson, formaður Bílgreinasambandsins, segir að þegar meðalaldur bílaflotans hækki jafnmikið og gerst hefur undanfarið þýði það aukinn viðhaldskostnað fyrir eigendur auk þess sem eldri bílar mengi meira og séu óöruggari á vegunum. Sala nýrra bíla dróst saman um 95 prósent á árunum 2007 til 2009. Fjármálaráðuneytið hefur að sögn Sverris frekar viljað fara þá leið að lækka innflutningsgjöld á bílum en hækka skatta á notkun. „Nú er búið að hækka eldsneytisskattana duglega en enn hafa innflutningsgjöldin ekki verið lækkuð," segir Sverrir. Hann segir frumvarp um lækkun innflutningsgjaldanna í smíðum og það fáist vonandi samþykkt á haustþingi og geti tekið gildi 1. janúar. Bílgreinasambandið leggur einnig til að eigendur bíla geti fengið virðisaukaskatt á viðgerðum endurgreiddan, rétt eins og virðisaukaskattur vegna vinnu við framkvæmdir við íbúðarhús hefur verið endurgreiddur. Sverrir segir viðgerðir á svörtum markaði hafa aukist mjög mikið undanfarið og nauðsynlegt sé fyrir ríkið að stíga þar inn. „Flestir þessir aðilar eru að sinna vinnu sinni við ófullnægjandi aðstæður og starfsemi þeirra er öll meira og minna óuppgefin til skatts," segir Sverrir. „Með því að útfæra hlutina til dæmis á þann veg að uppsafnaðir viðgerðarreikningar þurfi að ná ákveðinni upphæð til þess að möguleiki sé fyrir því að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts, ætti þetta að geta komið sér vel fyrir alla aðila." Ekki náðist í Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra vegna málsins. - sv
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Sjá meira