Innlent

Misnotaði fötluð frændsystkin sín

Héraðsdómur norðurlands-eystra. Börnin urðu fyrir verulegri tilfinningaröskun og andlegum þjáningum að því er kemur fram í dóminum.
Héraðsdómur norðurlands-eystra. Börnin urðu fyrir verulegri tilfinningaröskun og andlegum þjáningum að því er kemur fram í dóminum.

Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn andlega fötluðum bróðurbörnum sínum, dreng og stúlku. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur og drengnum eina milljón króna. Þá var hann sakfelldur fyrir vörslu á miklu magni af barnaklámsmyndum, sem sýndu gróft ofbeldi gegn börnum. Það var Héraðsdómur Norðurlands-eystra sem kvað dóminn upp.

Maðurinn bjó í kjallaraíbúð en faðir barnanna á tveim efri hæðum. Þar komst maðurinn í tæri við systkinin er þau dvöldu hjá föður sínum.

Hann harðneitaði sök bæði við þingfestingu og fyrir dómi.

Við meðferð málsins bar stúlkan að maðurinn hefði meðal annars farið með þau systkinin í ökuferðir í hvítum húsbíl og þá brotið á grófasta hátt gegn þeim báðum.

Dómurinn sagði athæfi mannins til þess fallið að auka enn á vanda barnanna í lífinu.

Faðir barnanna tveggja var einnig ákærður fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni en sýknaður.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×