Innlent

Kynferðisofbeldi ekki liðið

Fimmtán trúfélög sameinast um átak gegn kynferðislegu ofbeldi og Háskóli Íslands boðar til fyrirlestraraðar um sama efni.
Fimmtán trúfélög sameinast um átak gegn kynferðislegu ofbeldi og Háskóli Íslands boðar til fyrirlestraraðar um sama efni.

Samstarfshópur á vegum Þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúfélaga mun hleypa af stokkunum átaki gegn kynferðislegu ofbeldi næstkomandi þriðjudag. Alls taka fimmtán trúfélög þátt í átakinu.

Þetta samkirkjulega átak nær beint og óbeint inn í allar kirkjur og til allra kristinna söfnuða landsins. Kortum og plakötum verður dreift því til áréttingar að kynferðisofbeldi verði aldrei liðið í kristnum söfnuðum. Þar er fjallað um hvar kynferðislegt ofbeldi getur átt sér stað. Kynferðislegt ofbeldi er skilgreint, algengar tilfinningar þeirra sem lenda í kynferðislegu ofbeldi tilgreindar auk þess sem fólki er bent á ýmsar leiðir sem í boði eru fyrir þá sem hafa lent í slíku ofbeldi.

Á sama tíma heldur guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, auk Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum, fyrirlestraröð undir yfirskriftinni Kirkjan og kynferðisofbeldi.

Í tilkynningu segir að síðustu daga hafi verið hávær umræða í samfélaginu um kynferðisbrot innan kirkjunnar og að úrræði skorti í kirkjunni til að taka á slíkum málum. Í fimm erindum verður tekist á við birtingarmyndir kynferðisofbeldis og leitað svara. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×