Innlent

Gaskútum stolið á höfuðborgarsvæðinu

Allnokkrum gaskútum var stolið á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Bæði var um ræða gaskúta sem voru teknir af fellihýsum í Grafarvogi og Mosfellsbæ en einnig var gaskútum stolið í innbroti í vesturborginni, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.

Þar kemur fram að búið er að endurheimta að hluta eða öllu leyti gaskútana sem voru teknir í Vesturbænum og einnig gaskúta sem var stolið frá fyrirtæki á öðrum stað í borginni. Á síðastnefnda staðnum sást til þjófanna en lögreglan fann fjóra gaskúta í bíl þeirra.

gaskúta í bíl þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×