Innlent

Faðir stúlku með hvítblæði vill frekari rannsóknir

Óskar Svavarsson, faðir Rósalindar.
Óskar Svavarsson, faðir Rósalindar.

„Ég vil helst að Lýðheilsustöð og umhverfisráðuneytið taki þetta að sér," segir málarameistarinn Óskar Svavarsson, en fimm ára gömul dóttir hans, Rósalind, greindist með hvítblæði vegna hárra rafsegulmengunar að mati föðurins.

Þetta segir hann vegna niðurstöðu rannsóknar Geislavarna ríkisins og Brunamálastofnunnar á rafsegulmengun. Rúmlega 130 heimili voru rannsökuð en í ljós kom að rafsegulmengun var ekki yfir hættumörkum og sambærileg því sem gengur og gerist í Svíþjóð. Skýrslan kom út fyrir helgi en hún átti að koma út í vor.

Í niðurstöðu Geislavarna og Brunamálastofnunnar segir að ekki sé tilefni til þess að rannsaka málið betur. Þessu er Óskar ósammála og vill Lýðheilsustöð og umhverfisráðuneytið í málið.

Óskar heldur því fram að þrjú börn hafi greinst með hvítblæði vegna rafsegulmengunar. Hann segir það alvarlegt mál. Áður en rafmagnið var lagað á hans heimili var fjölskyldan ítrekað veik, til að mynda með höfuðverki.

Svo kom reiðarslagið; Rósalind greindist með hvítblæði og tekst enn á við sjúkdóminn þrátt fyrir að hún sé eingöngu fimm ára gömul.

„Rósalind er veik en hefur sjaldan verið jafn frísk," segir Óskar sem hefur barist hart fyrir betrumbótum varðandi rafsegulmengun. Skýrslan nú er afrakstur þeirra baráttu.

Þá tókst Óskari að breyta tæknilegum tengiskilmálum hjá rafvirkjum. Það eykur líkurnar á því að annað eins endurtaki sig ekki á öðrum heimilum.

Óskar hyggst sækja mál gegn Orkuveitu Reykjavíkur vegna veikinda dóttur sinnar. Hann segist hinsvegar ekki á höttunum á eftir peningum.

„Stærsti sigurinn eru ekki peningar heldur að ef barn greinist með hvítblæði þá sé það ekki vegna rafsegulmengunar," segir Óskar sem hittir foreldra tveggja annarra barna sem greindust með hvítblæði vegna rafsegulmengunar.

Spurður hvað taki nú við svarar Óskar því að honum þyki eðlilegast að Lýðheilsustöð taki að sér rannsókn mála sem og umhverfisráðuneytið. Vandamálið sé augljóslega til staðar og það megi fyrirbyggja á marga vegu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×