Innlent

Makríllinn þvælist fyrir sjómönnum

Skip, sem veiða uppsjávarfisktegundir, eru að lenda í vandræðum með að veiða kvóta sinn úr Norsk- íslenska síldarstofninum, þar sem mikill makríll veiðist með síldinni og þau eru að verða búin með makrílkvótannn.

Tilraunir skipstjórnarmanna til að sneiða frá makrílnum ganga mis vel og bendir nú ýmislegt til þess að sum skipanna nái ekki síldarkvótanum í ár, vegna þessa. Það er þó bót í máli að hærra verð fæst fyrir makrílinn en síldina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×