Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hagstæðustu vextir Seðlabanka til álita efnahagsmál Stjórnvöld eru að kanna hvort í lögum finnist nægileg leiðsögn til að bregðast við dómi Hæstaréttar í gær um að gengistryggð lán séu ólögmæt. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra bendir á að samkvæmt þeim beri kröfuhafa að endurgreiða skuldara þá fjárhæð sem hann hefur ranglega af skuldara haft. Þeir sem hafa borgað of mikið af erlendum lánum gætu því átt von á endurgreiðslu. Sé krafan óverðtryggð á samkvæmt lögunum að miða við hagstæðustu óverðtryggðu útlánsvexti Seðlabankans. 17.6.2010 03:00
Oddný vill búa til nýtt kerfi Systkinaforgangur verður tekinn upp á ný á leikskólum borgarinnar samkvæmt málefnasamningi Besta flokks og Samfylkingar. Þetta stangast á við lög, að mati borgarlögmanns. 17.6.2010 02:30
Horfur slæmar í efnahagslífi Efnahagsmál Aðstæður í efnahagslífinu eru slæmar að mati 87 prósenta stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum 400 stærstu fyrirtækja landsins. Könnunin var gerð í maí og byrjun júní en afstaða stjórnenda hefur ekki breyst frá síðustu könnun sem gerð var í febrúar og mars síðastliðnum. Aðeins eitt prósent stjórnenda taldi aðstæður góðar í efnahagslífinu en tólf prósent töldu þær hvorki góðar né slæmar.- mþl 17.6.2010 02:15
Jesús litli sýning ársins Sýningin Jesú litli hlaut Grímuna fyrir sýningu ársins 2010. Þá hlaut Hilmir Snær Guðnason Grímuna fyrir leikstjórn en hann leikstýrði Fjölskyldunni. En Margrét Helga Jóhannsdóttir hlaut einnig Grímuna fyrir aðalhlutverk í sama verki. 16.6.2010 22:10
Ingvar og Margrét bestu leikararnir Ingvar E. Sigurðsson og Margrét Helga Jóhannsdóttir hlutu Grímuna í ár fyrir leik í aðalhlutverki. 16.6.2010 21:38
Gunnar Einarsson áfram bæjarstjóri í Garðabæ Bæjarstjórn Garðabæjar kom saman til fyrsta fundar miðvikudaginn 16. júní 2010 í ráðhúsinu við Garðatorg. Í bæjarstjórn eru sjö bæjarfulltrúar og þar af eru þrír nýir bæjarfulltrúar. Í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru 29. maí sl. voru úrslit kosninganna í Garðabæ á þá vegu að fimm bæjarfulltrúar koma frá D-lista Sjálfstæðisflokks, einn bæjarfulltrúi kemur frá M-lista Fólksins í bænum og einn bæjarfulltrúi er frá S-lista Samfylkingar. 16.6.2010 21:04
Eldur í gamalli rútu Kviknað hefur í gamlli rútu á Smiðjuveginum í Kópavogi. Engin hús eru í hættu. Lögreglan og slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu eru á vettvangi. Engar frekari upplýsingar var að fá. 16.6.2010 20:43
BP skal greiða 120 milljarða bandaríkjadollara fyrir olíuslys Breska olíufyrirtækið BP skal greiða 120 milljarða bandaríkjadollara í sérstakan sjóð ætlaðan fórnalömbum einhvers mesta umhverfisslyss Bandaríkjanna í Mexíkóflóa. 16.6.2010 20:34
Tæplega 100 milljónum ríkari eftir að hafa spilað í Víkingalottói Íslendingur sem verslaði miða í Víkingalottói í Snælandi á Selfossi er 98 milljónum ríkari fyrir vikið. 16.6.2010 19:42
Íslandsbanki ætlar að hlíta niðurstöðu Hæstaréttar og stjórnvalda Íslandsbanki segir í tilkynningu að þó bankinn hafi ekki verið aðili að dómsmálunum í dag þá muni bankinn hlíta úrskurði Hæstaréttar sem dæmdi gengistryggð krónulán ólögmæt í dag. 16.6.2010 19:27
Engir gengistryggðir lánasamningar hjá Arion Arion Banki segir í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér að engir gengistryggðir samningar séu hjá bankanum. 16.6.2010 18:56
Gígarnir á Fimmvörðuhálsi nefndir Magni og Móði Gígarnir tveir sem mynduðust í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi hafa fengið nöfn sem sótt eru í Ásatrú. 16.6.2010 18:51
Fyrstu loforð nýrrar borgarstjórnar efnd Ókeypis verður í sund fyrir börn í Reykjavík frá næsta laugardegi og út sumarið. Þetta var ein af tíu tillögum sem nýi borgarstjórinn lagði fyrir borgarráð í dag. Áætlaður kostnaður er 12-14 milljónir króna. 16.6.2010 18:48
Orkuverðið verður verðtryggt Tenging orkuverðs við álverð er afnumin í nýjum samningum um orkusölu til álversins í Straumsvík, en orkuverð verður verðtryggt í staðinn. Forstjóri Landsvirkjunar segir nýju samningana skila fyrirtækinu verulegum tekjuauka miðað við álverð í dag. 16.6.2010 18:45
Dómurinn mun skapa vandræði á fjármálamarkaði Þorri allra gengistryggðra bílalána og hluti húsnæðislána landsmanna var að líkindum dæmdur ólöglegur í tímamótadómum sem féllu í Hæstarétti nú síðdegis. Langmesta réttarbót sem íslenskur almenningur hefur fengið frá hruni og þjóðin hefur nú ástæðu til að fagna á þjóðhátíðinni á morgun, segja verjendur. 16.6.2010 18:41
Guðlaugur Þór vill fund vegna dóms Hæstaréttar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eftir fundi hjá viðskiptanefnd til að ræða dóm Hæstaréttar vegna gengistryggðra lána. 16.6.2010 18:22
Mál fornbókasala vísað aftur til héraðsdóms Hæstiréttur hefur vísað máli Ara Gísla Bragasonar, fornbókasala, aftur til Héraðsdóms Reykjavíkur sem áður hafði vísað frá ákæruliðum á hans hendur. Hann var ákærður fyrir að hafa tekið við hundruði fornbóka úr hendi Böðvars Ingva Jakobssonar, vitandi vits að hann væri að selja honum þýfi. Þessu neitar Ari hinsvegar fullum fetum. 16.6.2010 18:17
Fischer verður grafinn upp Hæstiréttur Íslands snéri ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði hafnað því að líkamsleifar skáksnillingsins Bobby Fischers yrðu grafnar upp til þess að unnt væri að fá lífsýni og bera saman við meinta dóttur Fischers, Jinky Young. 16.6.2010 18:14
Gengistryggð lán ólögleg - ekki lán sem eru veitt í erlendri mynt Landsbankinn áréttar í tilkynningu sem hann sendi frá sér að dómur Hæstaréttar um gengistryggð lán í dag nái eingöngu til þeirra lána en ekki lána sem veitt eru í erlendri mynt. 16.6.2010 17:59
Hefur áhrif á fjármálafyrirtækin og lántakendur Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu vegna dóms Hæstaréttar varðandi gengistryggðu lánin en þar kemur meðal annars fram að málið hafi fyrst og fremst áhrif á fjármálafyrirtæki og lántakendur. 16.6.2010 17:57
Dómar yfir mansalsmönnum mildaðir Dómar yfir mansalsmönnum frá Litháen voru mildaðir um ár hjá öllum nema einum. Þeir voru dæmdir í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Einn mannanna, Gediminas Lisauskas, þótti eiga mestan þátt í að flytja litháenska stúlku til landsins með það að markmiði að selja hana í vændi. 16.6.2010 17:28
Sigraði í Hæstarétti og ætlar að fá sér bjór í tilefni dagsins „Ég er enn með gæsahúð,“ segir Óskar Sindri Atlason sem sigraði í máli sínu gegn SP-fjármögnun varðandi gengistryggð lán og þar af leiðandi er réttaróvissu um gengistryggðu bílalánin úr sögunni. Óskar, sem keypti bíl á kaupleigusamningi áriuð 2006 er laus allra mála eftir úrskurð Hæstaréttar. 16.6.2010 17:10
Neytendur voru sýknaðir „Ég er mjög ánægður,“ segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda um nýfallin dóm Hæstaréttar vegna bílalána í erlendri mynt. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að lánin væru ólögmæt. 16.6.2010 16:34
Gengistryggð bílalán dæmd ólögmæt Gengistryggð bílalán hafa verið dæmd ólögmæt og óheimil í Hæstarétti Íslands. Skuldbindingarnar teljast hafa verið í íslenskum krónum og því falla þau undi bann við gengistryggingu. Dómurinn var kveðinn upp í dag en málin voru tvö og vörðuðu bílalán frá fyrirtækjunum Lýsingu hf. og SP-fjármögnun. 16.6.2010 16:19
Íslandi stefnt fyrir EFTA dómstólinn Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að stefna Íslandi fyrir EFTA-dómstólinn. Stofnunin telur að lög frá árinu 2007 um skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn sína til tímabundinna starfa á Íslandi samræmist hvorki ákvæðum EES-samningsins um frjálsa þjónustustarfsemi né ákvæðum tilskipunar um útsenda starfsmenn. 16.6.2010 15:14
Þriggja ára fangelsi fyrir að misnota dóttur sína Hæstiréttur Íslands staðfesti þriggja ára fangelsisdóm yfir karlmanni sem misnotaði sjö ára gamla dóttur sína árið 2003. 16.6.2010 17:35
Árekstur í Vesturbæ Þriggja bíla árekstur var á Hringbraut við Melatorg klukkan um fjögur í dag. 16.6.2010 17:07
Landsvirkjun undirritar nýjan samning um orkusölu við Alcan á Íslandi Landsvirkjun og Alcan á Íslandi hafa samið um orkusölu til álversins í Straumsvík. Samningurinn er undirritaður með hefðbundnum fyrirvörum, meðal annars samþykki stjórna beggja félaganna, sem gert er ráð fyrir að verði uppfylltir eigi síðar en 31. ágúst næstkomandi, segir í tilkynningu. 16.6.2010 15:45
ASÍ segir sig frá stöðugleikasáttmálanum Miðstjórn ASÍ gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir að standa ekki við fyrirheit um starfsendurhæfingu í stöðugleikasáttmálanum og samtökin hafa því ákveðið að segja sig formlega frá stöðugleikasáttmálanum. Lögbinding þessara ákvæða var síðasta hálmstráið sem rökstuddi aðild ASÍ að sáttmálanum að því er segir í tilkynningu frá ASÍ. „Nú er sú von að engu orðin og lýsir miðstjórn ASÍ því formlega yfir að engar forsendur eru fyrir aðkomu þess að frekari samstarfi á þeim grunni." 16.6.2010 15:30
Birna: Hæpið að skattleggja bankana frekar á óvissutímum Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka og formaður Samtaka fjármálafyrirtækja, segir að sérstakur eignaskattur á bankanna geti skapað þeim mikil vandræði, taki skatturinn ekki mið af rekstrarniðurstöðu. Skatturinn gæti haft alvarleg áhrif á eiginfjárhlutfall þeirra og gert það að verkum að einhverjir bankar færu niður fyrir lágmarks eiginfjárkröfur Fjármálaeftirlitsins. 16.6.2010 15:20
Laus úr gæsluvarðhaldi Karlmaður sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald vegna gruns um aðkomu að umfangsmikilli kannabisframleiðslu og sölu er laus úr haldi. Karl Steinar Valsson hjá fíkniefnalögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sagði að ekki hefði verið talin ástæða til að halda honum lengur. Maðurinn var yfirheyrður ásamt fleirum í gær og að því loknu var honum sleppt. 16.6.2010 14:16
Opnað inn í Þórsmörk Að höfðu samráði við vísindamenn hefur lögreglustjórinn á Hvolsvelli ákveðið að aflétta lokun á veginum inn í Þórsmörk. 16.6.2010 13:50
Ókeypis í sund fyrir börn og unglinga í sumar Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að frá og með laugardeginum 19. júní og fram til 31. ágúst næstkomandi yrði ókeypis í sund fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri. Í tilkynningu frá borginni segir Jón Gnarr, borgarstjóri, þessa ákvörðun vera í samræmi við samstarfsyfirlýsingu Besta flokksins og Samfylkingarinnar en þar er þetta á lista yfir fyrstu verk nýs meirihluta. 16.6.2010 13:25
Hugmyndum Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ um samstjórn hafnað Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ tók ekki vel í hugmyndir Íbúahreyfingarinnar og því strönduðu viðræður um samstjórn í bæjarfélaginu. Þetta fullyrðir Íbúahreyfingin í yfirlýsingu til fjölmiðla. 16.6.2010 13:24
Guðrún fékk lyklavöldin Guðrún Pálsdóttir, nýr bæjarstjóri í Kópavogi, tók við lyklavöldum á skrifstofu bæjarstjóra í morgun, af Gunnsteini Sigurðssyni sem verið hefur bæjarstjóri frá 1. júlí 2009. Gunnsteinn gaf ekki kost á sér í bæjarstjórn í kosningunum í vor og hverfur því til annarra starfa. Hann hefur setið í bæjarstjórn frá árinu 1994 en þá kom hann fyrst inn sem varamaður. Hann hefur setið alls 241 bæjarstjórnarfund. 16.6.2010 13:15
Akstur Strætó 17. júní samkvæmt laugardagsáætlun Akstur allra leiða Strætó bs. á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður samkvæmt laugardagsáætlun. Á ákveðnum leiðum verður ekið lengur fram á kvöld auk þess sem á sömu leiðum verður akstur tíðari eftir kvöldmat en hefðbundið er samkvæmt laugardagsáætlun. Vegna lokana í miðbæ verður akstursleiðum jafnframt breytt á því svæði, segir í tilkynningu. 16.6.2010 12:41
Útilokað að lífeyrissjóðir taki þátt í flatri leiðréttingu Formaður Landssamstaka lífeyrissjóða útilokar að lífeyrissjóðirnir taki þátt í flatri leiðréttingu á húsnæðisskuldum - eins og stjórnarþingmaðurinn Helgi Hjörvar lagði til í gær. 16.6.2010 12:36
Varabæjarfulltrúi sakar samherja um ólýðræðisleg vinnubrögð Elfur Logadóttir, fyrsti varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, sakar samherja sína og forystumenn flokksins í bæjarfélaginu um ólýðræðisleg vinnubrögð. Hún segir þá ástunda sama vinnulag og þeir gagnrýni aðra flokka fyrir. 16.6.2010 12:33
SA: Sparnaður í stað skattahækkana Samtök Atvinnulífsins segja svigrúm til skattahækkana fullnýtt út árið 2011. Samtökin leggja til að sparnaði verði beitt til að ná böndum á ríkisfjármálin og leggja til aukinn einkarekstur í því skyni, meðal annars í heilbrigðisþjónustunni, og að lífeyrisaldur verði hækkaður. 16.6.2010 12:10
Alþingi samþykkti frumvarp um siðareglur Frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um siðareglur var samþykkt samhljóða sem lög frá Alþingi í nótt. Frumvarpið gerir ráð fyrir að settar verði almennar siðaregur fyrir alla ríkisstarfsmenn en jafnframt muni forsætisráðherra staðfesta sértækari siðareglur fyrir ráðherra annars vegar og starfsmenn Stjórnarráðs Íslands. 16.6.2010 11:38
Vilja draga ESB-umsóknina til baka Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins auk þingflokksformanns Framsóknarflokksins og þingmanns VG kröfðust þess við upphaf þingfundar í dag dagskrá Alþingis yrði breytt og að þingsályktunartillögu þar sem lagt er til að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka yrði sett á dagskrá. Leiðtogaráð ESB ákveður á fundi sínum á morgun hvort hafnar verði aðildarviðræður við Ísland. 16.6.2010 11:21
Sex doktorsvarnir við Háskóla Íslands á einni viku Þessa viku verða einstök tímamót í sögu Háskóla Íslands, þegar samtals sex doktorsvarnir fara fram á sjö daga tímabili. Er það einsdæmi í starfsemi Háskólans en þess má geta að Háskóli Íslands er eini háskólinn hér á landi sem heimilt er að brautskrá doktora af öllum fræðasviðum sínum. 16.6.2010 10:51
Eigandi Draumsins losnar úr haldi í dag Eigandi söluturnsins Draumsins losnar að öllum líkindum úr gæsluvarðhaldi í dag. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á ekki von á því farið verði fram á lengra gæsluvarðhald. 16.6.2010 10:30
Þjóðskrá Íslands tekur til starfa Alþingi samþykkti í gær lög um sameiningu Þjóðskrár og Fasteignaskrár Íslands og taka þau gildi 1. júlí næstkomandi. Hin nýja stofnun ber heitið Þjóðskrá Íslands og tekur við verkefnum áðurnefndra stofnana. 16.6.2010 10:25
Heiða Kristín ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarmanns Jóns Gnarr borgarstjóra. 16.6.2010 09:50
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent