Innlent

Hefur áhrif á fjármálafyrirtækin og lántakendur

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra.
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu vegna dóms Hæstaréttar varðandi gengistryggðu lánin en þar kemur meðal annars fram að málið hafi fyrst og fremst áhrif á fjármálafyrirtæki og lántakendur.

Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Hæstiréttur hefur kveðið upp dóma í málum er varða lögmæti gengistryggðra lána. Þessi mál varða fyrst og fremst aðila máls en hafa einnig almenn áhrif á viðskipti fjármálafyrirtækja og lántakenda.

Stjórnvöld hafa fylgst náið með ferli þessara dómsmála og hafa látið greina ítarlega áhrif mögulegra niðurstaðna Hæstaréttar.

Ákvarðanir um aðgerðir af hálfu stjórnvalda verða teknar á grundvelli þessarar greiningar.

Nánar verður skýrt frá þeim ákvörðunum á allra næstu dögum og í framhaldi af umfjöllun ríkisstjórnarinnar og að höfðu víðtæku samráði um málið.


Tengdar fréttir

Gengistryggð bílalán dæmd ólögmæt

Gengistryggð bílalán hafa verið dæmd ólögmæt og óheimil í Hæstarétti Íslands. Skuldbindingarnar teljast hafa verið í íslenskum krónum og því falla þau undi bann við gengistryggingu. Dómurinn var kveðinn upp í dag en málin voru tvö og vörðuðu bílalán frá fyrirtækjunum Lýsingu hf. og SP-fjármögnun.

Sigraði í Hæstarétti og ætlar að fá sér bjór í tilefni dagsins

„Ég er enn með gæsahúð,“ segir Óskar Sindri Atlason sem sigraði í máli sínu gegn SP-fjármögnun varðandi gengistryggð lán og þar af leiðandi er réttaróvissu um gengistryggðu bílalánin úr sögunni. Óskar, sem keypti bíl á kaupleigusamningi áriuð 2006 er laus allra mála eftir úrskurð Hæstaréttar.

Neytendur voru sýknaðir

„Ég er mjög ánægður,“ segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda um nýfallin dóm Hæstaréttar vegna bílalána í erlendri mynt. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að lánin væru ólögmæt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×