Innlent

Mál fornbókasala vísað aftur til héraðsdóms

Ari Gísli Bragason segist ekki hafa vitað til þess að bækur sem maður seldi honum hefðu verið illa fengnar.
Ari Gísli Bragason segist ekki hafa vitað til þess að bækur sem maður seldi honum hefðu verið illa fengnar.

Hæstiréttur hefur vísað máli Ara Gísla Bragasonar, fornbókasala, aftur til Héraðsdóms Reykjavíkur sem áður hafði vísað frá ákæruliðum á hans hendur. Hann var ákærður fyrir að hafa tekið við hundruði fornbóka úr hendi Böðvars Ingva Jakobssonar, vitandi vits að hann væri að selja honum þýfi. Þessu neitar Ari hinsvegar fullum fetum.

Það voru aðstandendur Böðvars Kvarans sem kærur málið og krefja þá um 33 milljónir í skaðabætur fyrir að hafa annarsvegar stolið nálægt 300 fornbókum út dánarbúi hans og að hafa tekið við þýfinu.

Það er Hjörleifur B. kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, sem lagði fram kröfuna fyrir hönd bræðra sinna.

Málið vakti talsverða athygli í janúar 2008 en þá sagði Hjörleifur í viðtali við dagblaðið 24 stundir, að Ari, sem er sonur Braga Kristjónssonar fornbókasala, væri samsekur í málinu. Ari kom þá í viðtal á Stöð 2 þar sem hann hótaði að fara í meiðyrðamál vegna ásakanna Hjörleifs.

Ari sagðist hafi keypt bækur úr safninu í góðri trú af einstaklingi sem hafi boðið þær til sölu. Bókunum hafi hins vegar verið skilað þegar upp komst að um þýfi væri að ræða. Hann sagði ásakanir Hjörleifs vera úr lausu lofti gripnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×