Íslandi stefnt fyrir EFTA dómstólinn 16. júní 2010 15:14
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að stefna Íslandi fyrir EFTA-dómstólinn. Stofnunin telur að lög frá árinu 2007 um skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn sína til tímabundinna starfa á Íslandi samræmist hvorki ákvæðum EES-samningsins um frjálsa þjónustustarfsemi né ákvæðum tilskipunar um útsenda starfsmenn. Í tilkynningu frá ESA er bent á að samkvæmt lögunum beri fyrirtækjum sem falla undir lögin þar með talið erlendum byggingafyrirtækjum og starfsmannaleigum, að veita ákveðnar upplýsingar um sig og þá starfsmenn sem þau sem hyggjast senda til Íslands. „ESA fellst á réttmæti slíkrar upplýsingaskyldu, en telur ýmsa þætti hennar ganga lengra en nauðsyn krefur. Brjóti lögin af þeim sökum í bága við ákvæði EES-samningsins um frjálsa þjónustustarfsemi." Þá segir ennfremur að stofnunin telji að sú ákvörðun að láta ákvæði íslenskra laga og kjarasamninga um laun í veikindaforföllum og slysatryggingar ná til erlendra starfsmanna sem vinna tímabundið á Íslandi brjóta í bága við fyrrnefnda tilskipun. „Geri tilskipunin almennt ráð fyrir því að um slík réttindi fari samkvæmt lögum og/eða kjarasamninga í heimaríkjum hinna erlendu starfsmanna. Þau réttindi fylgi þeim þann tíma sem þeir eru við störf á Íslandi." ESA minnir á að íslenskum stjórnvöldum hafi verið send áminning vegna þessa máls í mars 2009 og rökstutt álit í nóvember. „Í svari íslenskra stjórnvalda kemur fram að þau fallist á álit stofnunarinnar hvað varðar upplýsingaskyldu erlendra fyrirtækja. Frumvarp um breytingu á lögunum þar sem lagt er til að dregið verði úr umfangi þessarar skyldu var samþykkt á Alþingi 15. júní 2010. Eftir þær breytingar telur ESA að lögin samrýmist að þessu leyti ákvæðum EES-samningsins og er þeim þætti málsins því lokið." Í tilkynningunni segir ennfremur að íslensk stjórnvöld hafa á hinn bóginn lýst því yfir að þau séu ósammála niðurstöðu stofnunarinnar hvað varðar túlkun hennar á tilskipuninni um útsenda starfsmenn. „Í ljósi þessa, hefur Eftirlitstofnunin ákveðið að vísa þeim þætti málsins til EFTA-dómstólsins."
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira