Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Guðrún fær lyklavöld í Kópavogi Guðrún Pálsdóttir, nýr bæjarstjóri í Kópavogi, tekur við lyklavöldum á skrifstofu bæjarstjóra klukkan tíu í dag, af Gunnsteini Sigurðssyni sem verið hefur bæjarstjóri í tæplega ár. Þar áður var Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Kópavogs. 16.6.2010 08:28
Þingfundur stóð til morguns Þingfundur stóð til klukkan rúmlega sex í morgun þar sem fjallað var um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Þingfundur hefst aftur klukkan ellefu þar sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, mun mæla fyrir frumvarpi um um fækkun ráðuneyta. Þá mun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, mæla fyrir þingsályktunartillögu um samvinnuráð um þjóðarsátt. 16.6.2010 07:45
Slökktu eld á frívakt Mikil mildi þykir að ekki fór verr þegar eldur kviknaði í feitispotti á eldavél í heimahúsi á Selfossi í gærkvöldi. Heimafólk kallaði á slökkvilið, en slökkviliðsmaður og sjúkraflutningamaður, sem bjuggu í grennd við húsið, en voru báðir á frívakt, fengu skeyti um útkallið og þustu á staðinn með eigin slökkvitæki. 16.6.2010 07:26
Ráðherrar skrifast á um Icesave Breski fjármálaráðherrann, George Osborne, hefur svarað bréfi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra um viðræður vegna Icesave-deilunnar. 16.6.2010 06:00
Grunur um herpessýkingar í hestum „Það eru vísbendingar um að veirusýkingar valdi upphafi hrossapestarinnar og streptokokkasýking valdi erfiðari hluta hennar,“ segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir um gang rannsókna á hrossapestinni illræmdu. Halldór segir þessar vísbendingar hafa komið fram í rannsóknum á Keldum. 16.6.2010 06:00
Kafli um fjármálakerfi bíður Hægt verður að hefja aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið þrátt fyrir að ekki hafi náðst samkomulag við bresk og hollensk stjórnvöld um Icesave-málið. 16.6.2010 05:30
Sífellt fleiri vilja leiðréttingu Almenn niðurfelling skulda upp á 20 prósent kostar 114 milljarða, setur Íbúðalánasjóð á hausinn og eykur útgjöld hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna og bönkunum. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í ræðu á Alþingi í gær. 16.6.2010 05:15
Drukknir á skytteríi í óleyfi Tilkynnt var til lögreglunnar á Vestfjörðum um síðustu helgi að þrír menn væru að skjóta fugla í Æðey og væru drukknir í ofanálag. Ekki tókst betur til hjá veiðimönnunum en að gúmmítuðran sem þeir voru á varð vélarvana og þurftu þeir að leita aðstoðar hjá ábúandanum sem þeir höfðu verið að skjóta hjá í óleyfi. 16.6.2010 05:00
Fer niður um ellefu krónur N1 lækkaði listaverð á 95 oktana bensíni um ellefu krónur í gær. Algengasta hæsta verðið hjá olíuversluninni fór við það úr 201 krónu í fyrradag niður í 188,8 krónur. Hæsta verðið var hjá Skeljungi á höfuðborgarsvæðinu í gær, 192,5 krónur á lítrann. 16.6.2010 04:30
Stóra kókaínmálið til ákæruvaldsins Rannsókn lögreglu á umfangsmiklu kókaínsmygli hingað til lands í apríl er lokið. 16.6.2010 04:30
Fréttaskýring: Leiðtogar samþykkja að hefja viðræður Hvaða áhrif hefur Icesave-málið á fyrirhugaðar aðildarviðræður íslenskra stjórnvalda við Evrópusambandið? 16.6.2010 04:00
Líst ekki illa á sameininguna stjórnsýsla Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemd við undirbúning sameiningar skattumdæma landsins, samkvæmt skýrslu sem gefin var út í gær. Um síðustu áramót voru embætti ríkisskattstjóra og níu skattstjóra víðs vegar um landið sameinuð í eitt og landið gert að einu skattumdæmi. 16.6.2010 03:30
Metfjöldi frjókorna í loftinu Aldrei hafa fleiri frjókorn mælst í Reykjavík en í apríl og maí síðastliðnum. Þá mældust 2000 frjókorn á rúmmetra á sólarhring. Þetta kemur fram í frjómælingum Náttúrufræðistofnunar Íslands. 16.6.2010 02:30
Rannsakaði ung fötluð börn Freyja Haraldsdóttir hlaut í gær viðurkenningu úr minningarsjóði Ásgeirs S. Björnssonar fyrir lokaverkefni sitt í BA-námi í þroskaþjálfarafræði. 16.6.2010 02:15
Metfjöldi umsókna á Hólum Metfjöldi umsókna barst um skólavist í háskólanum á Hólum nú í vor. Fjölgunin er tæplega 46 prósent milli ára. 16.6.2010 02:15
Námsbrautum í Háskólanum í Reykjavík fækkað um þrjár Námsbrautum í Háskólanum í Reykjavík verður fækkað um þrjár og fjöldi starfsmanna missir vinnuna. Skólameistari segir aðgerðirnar mjög sársaukafullar en það eina skynsamlega í stöðunni. 15.6.2010 18:35
Samið um þinglok - vatnalögin söltuð og fækkun ráðuneyta í nefnd Flokkarnir á Alþingi hafa komist að samkomulagi um þinglok. Þá mun vatnafrumvarpið verða sett í salt þangað til í haust. Frumvarp sem snertir á greiðsluvanda heimilanna, eða svokallaður heimilispakki, verður afgreiddur fyrir þinglok. Varnamálalög munu verða samþykkt en með breytingum þó. Fækkun ráðuneyta verður afgreitt í nefnd. 15.6.2010 18:06
Ný bæjarstjórn tekin við í Kópavogi Ný bæjarstjórn Kópavogs tók við völdum í dag. Í upphafi fyrsta fundar nýrrar bæjarstjórnar var kynntur málefnasamningur um meirihlutasamstarf Lista Kópavogsbúa, Næst besta flokksins, Samfylkingar og Vinstri grænna. Þá var kosið í helstu embætti, nefndir og ráð og var Guðrún Pálsdóttir kjörin nýr bæjarstjóri Kópavogs. Hún tekur við af Gunnsteini Sigurðssyni sem verið hefur bæjarstjóri frá 1. júlí 2009. Honum voru, á fundinum, þökkuð störf í þágu sveitarfélagsins. 15.6.2010 17:58
Stefán: Reyndi að keyra á vin minn og tvo hunda „Maðurinn gerði þetta viljandi. Hann bakkaði bílnum áður en hann lagði til atlögu svo hann kæmist hraðar og reynir að keyra á vin minn og báða hundana," segir Stefán Már Guðfinnsson hundaeigandi í samtali við Vísir.is. 15.6.2010 16:54
Gerir ekki athugasemd við sameiningu embætta Um síðustu áramót voru embætti ríkisskattstjóra og níu skattstjóra víðs vegar um landið sameinuð í eitt. Þar með var landið gert að einu skattumdæmi. 15.6.2010 17:03
Borgarstjóri: „Love is all you need“ Jón Gnarr var settur í embætti borgarstjóra á fundi borgarstjórnar í dag og að loknum fundi tók hann við lyklum að skrifstofu borgarstjóra úr höndum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur fyrrverandi borgarstjóra. 15.6.2010 16:34
Samkomulag um vinnustaðaskírteini undirritað Fulltrúar Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og aðildarsamtaka þess og Samtaka atvinnulífsins (SA) undirrituðu í dag samkomulag um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum. Í tilkynningu segir að samkomulagið byggi á lögum nr. 42/2010 sem samþykkt voru á Alþingi 11. maí sl. um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni. 15.6.2010 16:19
Kynnti áætlun um aukið samstarf á milli háskóla Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnti fyrir ríkisstjórn í morgun áætlun um aukið samstarf og verkaskiptingu opinberu háskólanna með hugsanlega sameiningu að markmiði. 15.6.2010 16:10
Skrifað undir skjöl til VÍS með músinni VÍS er nú að innleiða breytingar sem gera viðskiptavinum félagsins kleift að fylla út og undirrita á netinu tjónstilkynningar og önnur form sem þeir þurfa að senda félaginu. Allir viðskiptavinir VÍS sem eru með nettengingu og tölvupóst geta nýtt sér þessa tækni án nokkurs aukabúnaðar, segir í tilkynningu. 15.6.2010 15:43
Árleg sólstöðuganga í Reykjavík Hinn árlega sólstöðuganga í Reykjavík verður farin á mánudaginn en þá eru sumarsólstöður, sem er lengsti dagur ársins. 15.6.2010 15:01
Aukin vernd lífríkis sjávar með reglugerð um kjölfestuvatn Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett reglugerð um kjölfestuvatn. Markmið reglugerðarinnar er að takmarka losun kjölfestuvatns skipa til að koma í veg fyrir að framandi lífverur, svo sem þörungar, krabbadýr og sýklar, berist til hafsvæða og stranda umhverfis Ísland. 15.6.2010 14:53
Þrjár námsbrautir HR lagðar niður Þrjár námsbrautir hjá Háskólanum í Reykjavík verða lagðar niður þegar núverandi nemendur hafa lokið sínu námi. 15.6.2010 14:27
Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, var kosinn borgarstjóri Reykjavíkur á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. 15.6.2010 14:17
Sóley kosin fyrsti varaforseti borgarstjórnar Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, var kosin fyrsti varaforseti borgarstjórnar á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. Allir borgarfulltrúar Reykjavíkur kusu hana, alls 15. 15.6.2010 14:15
Hanna Birna kosin forseti borgarstjórnar Hanna Birna Kristjánsdóttir var kosin forseti borgarstjórnar á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur rétt í þessu. Allir borgarfulltrúar kusu hana, alls 15 15.6.2010 14:08
Skorið niður hjá Háskólanum í Reykjavík Nám í kennslufræði og lýðheilsufræði verður fellt niður í Háskólanum í Reykjavík vegna niðurskurðar á framlagi ríkisins til skólans. Á annan tug starfsmanna var sagt upp um síðustu mánaðamót, segir í frétt RÚV. 15.6.2010 13:58
Kærir mann sem keyrði á hund Eigandi hundsins sem ekið var á aðfaranótt mánudags í Elliðaárdalnum ætlar að kæra ökumanninn í dag, að sögn móður hans. 15.6.2010 13:17
Magnús Orri: Umtalsverðar fjárhæðir með bankaskatti Tvær leiðir eru færar í hinum svokallaða „bankaskatti" sem Samfylkingin hefur hug á að koma á: Tekjuskattur eða skattur á eignir, að sögn Magnús Orra Schram, þingmanns Samfylkingarinnar. Hagnaður bankanna væri jafnframt skattlagður. 15.6.2010 12:45
Ný bæjarstjórn Kópavogs kemur saman Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar í Kópavogi hefst klukkan 16 í dag. Þar verður Guðrún Pálsdóttir, kjörin nýr bæjarstjóri, en jafnframt verður kosið í helstu embætti, nefndir og ráð. 15.6.2010 12:43
Aðstæður kvenfanga mun lakari en karlfanga hér á landi Kvenfangar búa við mun lakari aðstæður en karlfangar á Íslandi. Fangelsismálayfirvöld segja brýnt að bæta aðstöðu þeirra með nýrri fangelsisbyggingu. 15.6.2010 12:21
100 milljarða svigrúm til leiðréttingar Helgi Hjörvar stjórnarþingmaður segir 100 milljarða króna svigrúm til að leiðrétta lán heimilanna. Án almennra leiðréttinga væru þau skilaboð send út í þjóðfélagið að skuldagleðin ein njóti skilnings. Forsætisráðherra tók ekki undir þessi orð á Alþingi í morgun. 15.6.2010 12:16
Landssamband veiðifélaga vilja ekki afnema vatnalögin Landssamband veiðifélaga mótmælir fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar um afnám vatnalaga frá 2006. 15.6.2010 12:06
Vill að Árni Páll komi út í sólina Í umræðum um niðurfellingu skulda við upphaf þingfundar í dag gripu þingmenn til líkingamáls og blandaðist litaraft Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra, auk þess í umræðuna. Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Framsóknarflokksins, líkti aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar við það þegar enginn kemur til dyra þegar dyrabjöllu er hringt. Árni Páll kallaði tillögur Guðmundar og stjórnarandstöðunnar bjölluat. 15.6.2010 11:26
Jóhanna: Þurfum einn dag til viðbótar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að sér sýnist vera þörf á því að þingmenn komi saman til þingfundar í einn dag í viðbót síðar í þessum mánuði. Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að þingstörfum ætti að ljúka í dag en Jóhanna svaraði því til við óundirbúnar fyrirspurnir í þinginu í dag að einn dag þurfi til viðbótar. 15.6.2010 10:26
Læknafélagið styður landlækni í deilunni við Jónínu Benediktsdóttur Læknafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við greinargerð landlæknis vegna svokallaðrar detox-meðferða á vegum Jónínu Benediktsdóttur, íþróttafræðings. 15.6.2010 10:15
Hanna Birna verður forseti borgarstjórnar Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, ákveðið að taka boði Besta flokksins og Samfylkingarinnar um að gerast forseti borgarstjórnar. Sömu heimildir herma að Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, verði fyrsti varaforseti borgarstjórnar. Ekki liggur fyrir hver aðkoma Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna verður að öðru leyti að stjórn borgarinnar og hvort að flokkarnir muni til að mynda stýra einhverjum nefndum. 15.6.2010 09:41
Yfir 20 mál á dagskrá Alþingis Þingfundur hefst klukkan tíu og eru 23 mál á dagskrá. Enn er ósamið um þinglok. 15.6.2010 09:17
Mannréttindafulltrúi SÞ ræðir um eflingu og verndun mannréttinda Í tilefni af komu Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna til Íslands, stendur utanríkisráðuneytið, í samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, fyrir opnum fundi um eflingu og verndun mannréttinda á morgun, 16. júní. 15.6.2010 08:46
Ætla að stuðla að uppbyggingu í Vatnsmýrinni Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að nýr meirihluti í borginni ætli að stuðla að uppbyggingu í Vatnsmýrinni, en ekki er þó ljóst hvort það þýðir að flugvöllurinn verði endanlega fluttur þaðan. Dagur kynnti málefnasamning Samfylkingarinnar og Besta flokksins í gærkvöldi, þar sem þetta kom farm og að stefnt sé að sameiningu ýmissa sviða og ráða í borginni, til hagræðingar. 15.6.2010 07:52
Hjólhýsi fauk aftan úr bíl og splundraðist Hjólhýsi fauk aftan úr bíl og splundraðist utan vegar rétt austan við Ólafsvík á Snæfellsnesi, undir kvöld í gær, en ökumann og farþega bílsins sakaði ekki. Bíllinn hélst á veginum. 15.6.2010 07:50
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent