Fleiri fréttir

Vegagerðin dregur stórlega úr þjónustu

Þar sem fjármagn til viðhalds og þjónustu vegakerfisins verður töluvert minna en á síðustu árum er óhjákvæmilegt annað en að draga úr viðhaldi og sumarþjónustu í ár hjá Vegagerðinni.

Lítið ber í milli í fráveitudeilu Hafnarfjarðar og Garðabæjar

„Garðabær væntir þess að málinu ljúki með sanngjarnri niðurstöðu fyrir báða aðila eins og bærinn leitast jafnan við í samningum við sína viðskiptavini,“ segir í tilkynningu frá bæjarstjórn Garðabæjar vegna deilunnar um fráveituna sem Garðbæingar nýta sér en Hafnfirðingar borga fyrir.

Stefnir í stórsigur L-listans á Akureyri

L-listinn, listi fólksins, vinnur stórsigur í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri á laugardag og fær fimm bæjarfulltrúa af ellefu, samkvæmt könnun Capacent Gallup fyrir fréttamiðilinn Vikudag. Núverandi meirihlutaflokkar mælast með þrjá bæjarfulltrúa.

Frestað að skipa í rannsóknarnefnd Reykjavíkur

Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, sakar meirihluta borgarstjórnar, um að draga lappirnar í skipun rannsóknarnefndar Reykjavíkurborgar sem á að skoða mál borgarinnar líkt og rannsóknarnefnd Alþingis gerði. Skipa átti í nefndina í dag en þegar hafa 30 einstaklingar sótt um starfið að sögn Þorleifs.

Fékk á sig brotsjó

Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði og Suðurnes í Reykjanesbæ voru kallaðar út á tólfta tímanum í dag þegar tilkynning barst um að bátur hefði fengið á sig brotsjó og væri að sökkva. Báturinn var þá staddur um þremur sjómílum suðvestur af Garðskaga. Einn maður var um borð.

Noti grímur vegna öskufjúks

Mikið öskufjúk hefur undanfarna daga verið víða í nágrenni Eyjafjallajökuls. Verst var ástandið undir Eyjafjöllum í gær þegar skyggni var um tíma innan við 100 metrar.

Vill færa réttarhöld nímenningana inn í leikhús

„Við hvetjum bara fólk til þess að mæta og verða vitni af þessu áður en það fer í vinnuna,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, um sérkennilegan tíma Héraðsdóms Reykjavíkur á þinghaldi yfir svokölluðum nímenningum sem hafa meðal annars verið ákærðir fyrir að ráðast á Alþingi.

Tilkynnt um reyk hjá Össuri

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst skömmu eftir klukkan eitt í dag tilkynning um brunalykt og reyk í húsnæði stoðtækjafyrirtækisins Össurar á Grjóthálsi 5. Dælu- og sjúkrabílar voru sendir á vettvang og slökkviliðsmenn ekki orðið vart við eld.

Réðst á ungling vopnaður hafnaboltakylfu

Fullorðinn karlmaður réðist á táningspilt vopnaður hafnaboltakylfu á leiksvæði á Egilsstöðum um helgina samkvæmt fréttavef Austurgluggans, agl.is. Þar segir að árásin hafi verið kærð til lögreglunnar.

Losna úr farbanni á morgun

Hreiðar Már Sigurðsson, Magnús Guðmundsson, Ingólfur Helgason og Steingrímur Kárason, fyrrverandi stjórnendur hjá Kaupþingi, losna allir úr farbanni á morgun.

Best að ljúka Icesave málinu við samningaborðið

Fjármálaráðherra segir að stjórnvöld muni taka til varna vegna áminningar ESA. Vænlegast sé þó að ljúka Icesave málinu við samningaborðið, ef ásættanleg niðurstaða fáist. Ákveðin áhætta felist í því ef málið fer fyrir EFTA dómstólinn.

Jón birtir svörin á íslensku

Svör sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins við spurningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um sjávarútvegsmál í tengslum við aðildarumsókn Íslands að ESB hafa verið þýdd yfir á íslensku í samræmi við ákvörðun Jón Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Framboðsfundur í Hafnarfirði í kvöld

Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða fram til bæjarstjórnar í Hafnarfirði boða til sameiginlegs framboðsfundar í Hafnarborg í kvöld. Talsmenn flokkanna verða með framsögu og svara síðan fyrirspurnum áheyrenda í sal.

Aðgerðir gegn akstri utan vega

Umhverfisráðuneytið hefur unnið aðgerðaráætlun gegn akstri utan vega til þriggja ára, undir heitinu Ávallt á vegi. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, kynnir áætlunina í dag.

Samfylkingin auglýsir mest

Mikill munur er á auglýsingakostnaði stjórnmálaflokkanna vegna sveitarstjórnarkosninganna næstkomandi laugardag. Samfylkingin ver mestu fé en Framsóknarflokkurinn minnstu.

Ásta Ragnheiður hittir varaforseta Bandaríkjanna

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, fer á morgun til Washington ásamt þingforsetum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja til fundar við Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjanna.

Stálu peningum úr sjóðsvél

Brotist var inn í matsölustað við Suðurlandsbraut í nótt og þaðan stolið peningum úr sjóðsvél. Þjófurinn braut rúðu í útihurð til að komast inn og komst undan áður en lögreglan kom á vettvang.-

Yfirlýsingu um goslok frestað framyfir helgi

Opinberri yfirlýsingu um að gosinu í Eyjafjallajökli sé lokið verður frestað fram yfir helgi, samkvæmt ákvörðun, sem tekin var á samráðsfundi Almannavarna og visindamanna í gær.

Stöðvaður á 160 kílómetra hraða

Ungur ökumaður var stöðvaður á Hellisheiði í gærkvöldi eftir að lögreglumenn höfðu mælt bíl hans á tæplega 160 kílómetra hraða. Hann verður sviptur ökuréttindum í þrjá mánuði, fær þrjá punkta í ökuferisskrána og þarf að greiða 140 þúsund krónur í sekt. Tveir aðrir voru stöðvaðir skömmu síðar, báðir á 135 kílómetra hraða.-

Flestir vilja Hönnu Birnu í borgarstjórastólinn

Flestir Reykvíkingar, eða rösklega 41 prósent, vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir verði áfram borgarstjóri, samkvæmt skoðanakönnun Morgunblaðsins. Heldur fleiri konur styðja Hönnu Birnu en karlar.

Tap í apríl 1,5 milljarðar króna

Talið er að ferðaþjónustan hafi orðið af einum og hálfum milljarði króna í apríl vegna áhrifa eldgossins í Eyjafjallajökli á flug. Tölur fyrir maímánuð liggja ekki fyrir.

Beittu garðklippum á fingur manns

Þrír menn hafa verið dæmdir til fangelsisrefsingar fyrir brot gegn frjálsræði, líkamsárás og tilraun til fjárkúgunar. Einn þeirra var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi, annar í tuttugu mánuði og sá þriðji í fimm mánaða fangelsi.

Þarf mögulega lengri tíma

Ráðherrarnir þrír, sem sakaðir eru um vanrækslu í starfi í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hafa, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, frest til 8. júní til að senda þingmannanefnd um málið skýrslu. Atli Gíslason, formaður nefndarinnar, vildi ekki staðfesta tímasetninguna, en sagði athugasemdafrestinn dæmi um gagnsæja stjórnsýslu nefndarinnar.

Þinghald á óvenjulegum tíma

Þinghald yfir nímenningunum, sem ákærðir hafa verið fyrir innrás á Alþingi í búsáhaldabyltingunni í desember 2008, hefur verið boðað 29. júní klukkan hálf níu. Ragnar Aðalsteinsson, einn verjenda nímenninganna, kveðst aldrei fyrr hafa verið boðaður til þinghalds klukkan 8.30, hvorki í Héraðsdómi Reykjavíkur né Bæjarþingi Reykjavíkur þar áður.

Steinunn Valdís segi af sér

Innan borgarstjórnarhóps Samfylkingar er mikið rætt um að Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður flokksins, eigi að segja af sér þingmennsku, að sögn Hjálmars Sveinssonar, sem er í fjórða sæti listans.

Tíðni óvæntra skaða á spítölum í rannsókn

Rannsókn landlæknisembættisins, á tíðni óvæntra skaða á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri er hafin. Hún er gerð í samvinnu við viðkomandi stofnanir og heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

Óvæntur reikningur fyrir húsmæðraorlof

Orlof húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu efndi í fyrra til tveggja orlofsferða fyrir húsmæður. Alls nam kostnaður vegna starfseminnar 3,2 milljónum króna á því ári og er sveitarfélögum á svæðinu, lögum samkvæmt, ætlað að greiða tæpar 1,6 milljónir af því.

Undirbúa sig fyrir sumarið

Vegfarendum á Suðurlandsbraut varð hverft við þegar lögreglumenn á bílum og vélhjólum dreif að byggingu Hótel Nordica upp úr klukkan hálf þrjú í gær. Lögregluliðið safnaðist fljótlega saman á bílastæðinu að baki hótelinu. Almennir borgarar sem urðu vitni að atganginum áttu erfitt með að koma auga á glæpinn í öllu saman enda hafði enginn glæpur verið framinn.

Segist ekki hafa þegið styrki

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi og frambjóðandi H-listans, segist ekki hafa þegið persónulega styrki eftir að hann hætti í Sjálfstæðisflokknum, en það var árið 2001. Síðan hefur hann setið sem fulltrúi F-lista og óháðra.

Segir keppinauta njóta forskots

Fulltrúar C-listans í Grímsnes- og Grafningshreppi gagnrýna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Sólheimum í Grímsnesi í dag.

Jón Gnarr gerir kröfu til borgarstjórastólsins

Jón Gnarr gerir kröfu til þess að verða borgarstjóri Reykjavíkur, nái Besti flokkurinn mestu fylgi í komandi kosningum á laugardag. Þetta kom fram í umræðuþætti á Skjá einum í kvöld þar sem oddvitar framboðanna í Reykjavík tókust á.

Slökkt í sinunni á Mýrum

Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum sinuelda í landi Jarðlangsstaða á Mýrum rétt fyrir klukkan níu í kvöld. Eldurinn hafði logað frá því klukkan fjögur en talið er að hann hafi kviknað út frá útblástursröri fjórhjóls. Að sögn lögreglu á eftir að meta skemmdir á svæðinu en þónokkuð brann af kjarri auk sinunnar.

Grunaðir kókaínsmyglarar áfram í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms þess efnis að tveir menn sem grunaðir eru um stórfelldan innflutning á hreinu kókaíni hingað til lands skuli sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 18. júní næstkomandi.

VW Polo vann sparaksturskeppnina

Volkswagen Polo bar sigur úr býtum í sparaksturskeppni sem haldin var í dag. Formaður FÍB segir ökumenn geta sparað tugþúsundir með sparakstri. Keppnin er samstarfsverkefni FÍB og Atlantsolíu en henni er ætlað að efla vitund og þekkingu ökumanna fyrir sparakstri og umferðaröryggi. Að þessu sinni voru 15 bílar skráðir til leiks þeim var skipt niður í flokka eftir vélarstærð og gerð.

Þyrla Magnúsar seld úr landi

Lúxusþyrla Magnúsar Kristinssonar, útgerðar- og athafnamanns í Vestmannaeyjum, sem hefur verið þjónustuð af Þyrluþjónustunni, hefur verið seld og var flutt úr landi í morgun eftir að hafa verið á sölu í eitt og hálft ár.

Dregst líklega að flugvöllurinn fari

Formaður skipulagsráðs Reykjavíkur segir að reikna megi með því að flutningi flugvallarins úr Vatnsmýrinni verði eitthvað seinkað miðað við gildandi aðalskipulag. Frambjóðandi Besta flokksins segir málið ekki mest aðkallandi á kjörtímabilinu.

Sinueldur á Mýrum

Slökkvilið frá Borgarnesi og Reykholti vinna nú að því að slökkva sinueld sem blossaði upp um klukkan fjögur í dag. Eldurinn brennur í landi Jarðlangsstaða á Mýrum. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi var um óhapp að ræða en eldurinn kviknaði út frá útblástursröri vélhjóls.

Áætlun um atvinnuuppbyggingu í fullum gangi

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir það af og frá að stefna ríkisstjórnarinnar varðandi atvinnumál í Þingeyjarsýslu séu óljós. Gunnlaugur Stefánsson, forseti bæjarstjórnar Norðurþings, sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag að fólk á svæðinu vildi skýrari svör, en þau sem hefðu fengist á fundi með iðnaðarráðherra og forstjóra Landsvirkjunnar í gæ

Álit ESA styrkir stöðu Íslands

„Við höfum verið í miklum samskiptum við þingmenn í Bretlandi og þá helst þingmenn Frjálslyndra demókrata og þeir hafa sýnt okkur skilning,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins en hann telur að bráðabirgðarálit ESA, sem er eftirlitsstofnun EFTA, muni styrkja stöðu Íslands auk þess sem breyttir tímar í pólitísku landslagi Bretlands gæti orðið okkur í hag.

Búast við 120 skemmtiferðaskipum í sumar

Það eru ekki allir ferðamenn sem koma fljúgandi til landsins í sumar. Tugþúsundir koma siglandi með skemmtiferðarskipum sem hafa viðkomu víða um land.

Óvanalega mikið um sjúkraflug

Undanfarin sólarhring hafa borist óvenju margar sjúkraflugsbeiðnir, og hafa meira en 3000 kílómetrar verið lagðir að baki í sjúkraflugi.

Álit ESA skiptir verulegu máli varðandi samningsstöðu Íslands

„Það er erfitt að leggja mat á það en þetta skiptir verulegu máli varðandi samningastöðuna,“ segir Gylfi Magnússon, viðskipta- og efnahagsráðherra, spurður hvort álit ESA um að Íslendingar eigi að borga lágmarksinnistæður vegna Icesave, skaði ekki samningsstöðu Íslands gagnvart Hollandi og Bretlandi.

Óvíst um samningsstöðu Íslands í Icesave málinu

Það er ekki gott að segja hvaða áhrif bráðabirgðaálit ESA hefur á samningsstöðu Íslendinga gagnvart Bretum og Hollendingum í Icesave málinu, segir Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.

Sjá næstu 50 fréttir