Innlent

Tíðni óvæntra skaða á spítölum í rannsókn

Rannsökuð verður tíðni óvæntra skaða á Landspítala háskólasjúkrahúsi og á sjúkrahúsinu á Akureyri.
Rannsökuð verður tíðni óvæntra skaða á Landspítala háskólasjúkrahúsi og á sjúkrahúsinu á Akureyri.

Rannsókn landlæknisembættisins, á tíðni óvæntra skaða á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri er hafin. Hún er gerð í samvinnu við viðkomandi stofnanir og heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

Markmið rannsóknarinnar er að kanna tíðni óvæntra skaða á fyrrnefndum stofnunum. Stuðst er við rannsóknaráætlanir sambærilegra rannsókna erlendis. Söfnun upplýsinga fer fram með skoðun eitt þúsund sjúkraskráa sem fundnar verða með slembiúrtaki úr sjúklingabókhaldi stofnana fyrir árið 2009.

Landlæknisembættið hefur fengið tvo styrki, samtals 700 þúsund krónur, til að gera umrædda rannsókn á ofangreindum sjúkrahúsum. Styrkina veita heilbrigðisráðuneytið og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Umræða um öryggi sjúklinga er vaxandi í heiminum, en upplýsingar um fjölda óvæntra skaða á sjúkrahúsum hérlendis liggja ekki fyrir, að því er fram kemur á heimasíðu landlæknisembættisins. Ef niðurstöður úr erlendum rannsóknum eru yfirfærðar á Ísland má gera ráð fyrir 50 til 300 dauðsföllum árlega hér á landi vegna óvæntra skaða. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×