Fleiri fréttir

Veðja á Jón Gnarr

Jón Gnarr verður næsti borgarstjóri í Reykjavík ef marka má spár þeirra sem veðja á vefsíðunni Betsson. Næstlíklegust þykja þau Hanna Birna Kristjánsdóttir og Dagur B. Eggertsson. Þá eru einhverjir sem spá því að næsti borgarstjóri komi ekki úr hópi þeirra sem bjóða sig fram til borgarstjórnar en langólíklegast þykir að Sóley Tómasdóttir verði borgarstjóri.

Segir skemmdarvarga tengda Samfylkingunni

Mikil harka er hlaupin í kosningabaráttuna í Kópavogi. Kosningastjóri framsóknarflokksins sakar aðila tengda frambjóðanda Samfylkingarinnar um að hafa skemmt fjölda kosningaskilta á vegum flokksins í bænum. Frambjóðandinn segir ásakanirnar fásinnu.

Fjórir handteknir vegna innbrota í 38 sumarbústaði

Fjórir ungir karlmenn voru í dag handteknir á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um fjölda innbrota í sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Að sögn lögreglu er yngsti maðurinn 15 ára og sá elsti 18 ára. Sá hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðald. Þess sama verður krafist á tvo til viðbótar. Yngsti meðlimurinn verður að tilstuðlan barnaverndaryfirvalda vistaður á Stuðlum.

Markaðsátak þegar farið að skila sér

Vísbendingar eru um að markaðsátakið „Inspired by Iceland" sem unnið er í samvinnu iðnaðarráðuneytisins og Reykjavíkurborgar við aðila ferðaþjónustunnar sé þegar farið að skila árangri, segir Katrín Júlíusdóttir

Eignarhald á auðlindum rætt á ríkisstjórnarfundi

Það er full ástæða til þess að hefja vinnu að breytingum á lagaumhverfi um eignarhald á náttúruauðlindum til samræmis við það sem er gert til dæmis í Noregi, segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra. Hún fór yfir málið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

Fyrrum Kaupþingsstjórar frjálsir ferða sinna

Kaupþingsmennirnir fjórir sem úrskurðaðir voru í farbann vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á meintum brotum Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins 2008 eru frjálsir ferða sinna.

Kanna möguleika á barnaþingi í Reykjavík

Á fundi Mannréttindaráðs í morgun var samþykkt að komið verði á fót starfshóp sem kanna á möguleikann á því að haldið verði barnaþing í Reykjavík í haust í samstarfi vð félagasamtök sem vinna að velferð og hagsmunum barna.

Ekkert heyrst frá Guðlaugi

Fréttastofa hefur frá því í morgun reynt að ná tali af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur það ekki borið árangur. Guðlaugur hefur hvorki svarað í síma né tölvupósti.

Svandís ekki með frumvarp um eignarhald í smíðum

Umhverfisráðherra er ekki með frumvarp í smíðum um að eignarhald á orkufyrirtækjum verði breytt þannig að einkaaðilar megi ekki eiga meira en þriðjung í orkufyrirtækjum eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum í vikunni. Þetta segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.

Auðir seðlar flokkaðir sérstaklega

Búist er við að einhverjir óánægðir kjósendur sýni þann hug í verki með auðum kjörseðli á morgun. Formaður yfirkjörstjórnar segir að auðir seðlar verði sérstaklega flokkaðir og taldir.

Hasar í Kópavogi - Framsóknarskiltin eyðilögð

Auglýsingaskilti Framsóknarflokksins í Kópvogi sem komið hafði verið fyrir víðsvegar um bæjarfélagið voru eyðilögð í nótt. Kosningastjóri framsóknarmanna segir að málið verði tilkynnt til lögreglu. Hann segir rangt að bæjarfulltrúi flokksins hafi misnotað aðstöðu sína.

Oddviti Framsóknar lánaði sjálfum sér auglýsingaskilti

„Sem vallarstjóri tekur hann og notar eigur bæjarins í sína prívat þágu," segir Lára Jóna Þorsteinsdóttir, kosningastjóri VG í Kópavogi, sem er allt annað enn sátt við Ómar Stefánsson, oddvita framsóknarmanna í Kópavogi. Hún segir að Ómar hafi tekið svokallaða búkka sem eru í eigu Kópavogsvallar og komið fyrir víðsvegar um bæinn með auglýsingum frá Framsóknarflokknum. Lára Jóna bendir á öðrum framboðum hafi ekki staðið slíkt til boða. Þetta hafi auk þess verið gert í trássi við ákvörðun byggingarfulltrúa bæjarfélagsins.

Rúmlega 107 þúsund nemar á Íslandi

Heildarfjöldi nemenda á öllu landinu skólaárið 2009-2010 er 107.012. Þeim hefur fjölgað um 1529 frá árinu áður eða um 1,4%. Þetta kemur fram á heimasíðu Hagstofunnar.

Helmingur oddvitanna í Reykjavík hefur reykt hass

Fjórir af átta oddvitum framboðanna sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík hafa reykt hass. Einn þeirra hefur auk þess prófað kókaín. Þetta kemur fram í DV í dag.

Sjöundi meirihlutinn sem fellur

Bæjarstjórnarmeirihlutinn í Kópavogi er sjöundi meirihlutinn sem fellur, samkvæmt skoðanakönnunum Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, sem mynda meirihlutann, tapa fylgi frá síðustu könnun, sem gerð var 8. apríl.

Kannabisræktun stöðvuð í Grafarvogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti umsvifamikla kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Grafarvogi seint í gærkvöldi samkvæmt ábendingum.

Fjölmörg innbrot á höfuðborgarsvæðinu

Ýmsum verðmætum var stolið í innbrotafaraldri á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Greiðsluposa var stolið úr húsnæði Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð, en þá mun vera hægt að nota til að svíkja út fé. Einhverjum verðmætum var stolið úr bílum í Garðabæ og Breiðholti. Veiðibúnaði og verkfærumn var stolið úr geymslu í húsi í Seláshverfi, auk barnavagns, sem þjófurinn hefur að líkindum notað til að flytja þýfið á brott. Loks braust þjófur inn í fyrirtæki í Hálsahverfi og stal þaðan fartölvu. Ræstingamaður kom að honum, fylgdi honum eftir á hlaupum af vettvangi, en var í símasambandi við lögreglu og gat vísað henni á þjófinn, sem var gripinn.

Bensínverð kann að hækka á næstu dögum

Bensínverð hér á landi kann að hækka á næstu dögum vegna spár um fleiri fellibylji á Atlantshafi í ár, en verið hafa undanfarin fimm ár. Eftir að spáin var birt í gær hækkaði hráolíuverð á heimsmarkaði strax um tæp fjörur prósent, og er nú komið upp í rúma 74 dollara á tunnu.

Rafmagnstruflanir í Reykjavík

Háspennubilun varð í aðveitustöð Orkuveitunnar við Meistaravelli í Reykjavík laust upp úr klukkan fimm í morgun og varð rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og frá Kaplaskjólsvegi að Umferðarmiðstöðinni. Bilunarinnar varð vart víða í borginni í formi rafmagnsflökts, en rafmagn komst á fyrrnefnd svæði innan hálftíma. Orkuveitan tilgreinir ekki orsakir bilunarinnar, í tilkynningu um málið.

Vonast eftir betri niðurstöðu í kosningunum

„Þetta eru nú ákveðin vonbrigði. Ég stóð í þeirri trú að við myndum bæta við okkur jafnt og þétt. Ég hef stefnt að því allan tímann að ná hreinum meirihluta til að við getum staðið fyrir einhverjum alvöru breytingum í borginni,“ segir Jón Gnarr, efsti maður á lista Besta flokksins.

D-listinn vinnur mann af Besta flokknum í borginni

Stuðningur við Sjálfstæðis-flokkinn í Reykjavík hefur aukist síðustu vikuna, á meðan dregur úr fylgi Samfylkingarinnar og Besta flokksins, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var í gærkvöldi.

Frumvarp um stjórnarráð kemur eftir helgi

Reyna á að leggja frumvarp um breytingar á stjórnarráði fyrir Alþingi eftir helgi. Frumvarpið var rætt í þingflokkum stjórnarflokkanna í gær, en Vinstri græn frestuðu umræðunni fram á mánudag. Vonir standa til að frumvarpið verði að lögum á þessu þingi og breytingarnar að veruleika um áramótin.

Lagalegir fyrirvarar vefjast fyrir Bretum

Bjartsýnustu menn bjuggust jafnvel við fundi um Icesave-deiluna fyrir helgi, en ljóst er að það gengur ekki eftir. Það var ekki síst vegna aðkomu Svía að málinu að þær vonir vöknuðu. Þeir hafa átt í óformlegum samskiptum við Breta og Hollendinga og vonuðust sjálfir til að þáttaskil yrðu fljótlega í málinu. Sama bjartsýni ríkir ekki í íslenska stjórnkerfinu.

Stöðvuðu útflutning á sjö veikum hrossum

Frá því að vart varð við smitandi hósta í hrossum í byrjun apríl hafa verið flutt út til Evrópu 59 hross í þeim mánuði og 57 hross í maí. 5. maí fóru ellefu hross til Mið-Evrópu, en 8. maí fóru 46 hestar til Norðurlandanna. Sjö hestar voru teknir úr þeim hópi við útflutningsskoðun vegna gruns um sýkingu. Þetta segir Gunnar Örn Guðmundsson héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarumdæmis.

Slátruðu nítján lömbum í gámi

Tveir karlmenn og ein kona hafa verið sýknuð af ólögmætri sauðfjárslátrun með því að hafa slátrað lömbum í gámi. Héraðsdómur Vesturlands kvað upp dóminn.

Þórunn vonar að aðrir hugsi sinn gang

Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar segist vonast til að afsögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur setji þrýsting á stjórnmálamenn í öðrum flokkum.

Mörður inn fyrir Steinunni Valdísi

Mörður Árnason er fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík norður og mun því taka sæti Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur sem sagði af sér þingmennsku í dag.

Þurfum aðstoð ef Hera vinnur

Tilfinningarnar eru blendnar. Þetta segir Páll Magnússon útvarpsstjóri um þá velgengni sem íslenska lagið í Eurovisjón á að fagna í Evrópu. Hann bendir á að Norðmenn hafa varið meira fé til keppninnar en því sem RÚV veltir á ári. Ef Íslands sigraði í keppninni þyrfti að leita samstarfs við önnur lönd.

Braut gegn dóttur sinni og vinkonu hennar

Hæstiréttur staðfesti í dag 10 mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gangvart dóttur sinni og vinkonu hennar fyrir tveimur árum. Stúlkurnar voru þá 12 ára gamlar.

Hreyfingin gagnrýnir Stöð 2 harðlega

Þingmenn Hreyfingarinnar mótmæla harðlega vinnubrögðum Stöðvar 2 nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga en stöðin hyggst gera upp á milli framboða í Reykjavík með því að bjóða aðeins sumum framboðum að koma fram í umræðuþætti annað kvöld. Þetta kom fram í tilkynningu frá Hreyfingunni sem hún sendi frá sér fyrr í dag.

Embættismenn ræða Icesave en ekki samninganefndir

Hollendingar og Bretar hafa verið ófáanlegir til þess að setjast við samningaborðið vegna Icesave en kosningar eru nýafstaðnar í báðum löndunum. Þó eru enn þá samskipti í gangi að sögn Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra.

Fréttablaðskössum og lausasölustöðum fjölgar

Breytingar verða gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins um næstu mánaðamót. Skilin verða skerpt, þannig að blaðinu er dreift ókeypis í lúgur og svokallaða Fréttablaðskassa á kjarnadreifingarsvæði, en annars staðar verður blaðið selt á kr. 150 eintakið.

Isavia semur við Félag flugmálastarfsmanna

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins samþykkti kjarasamning við Isavia / SA sem undirritaður var 7. maí sl. Já sögðu 106 eða 63,10%, nei sögðu 53 eða 31,55% og 9 skiluðu auðu eða 5,36%.

Oddviti L-listans: Bíðum róleg

„Við erum róleg og vitum að að leikurinn er ekki búinn fyrr en dómarinn flautar. Við bíðum því róleg eftir því hvað kemur upp úr kjörkössunum," segir Geir Kristinn Aðalsteinsson sem skipar fyrsta sæti á framboðslista L-listans, lista fólksins, á Akureyri.

Vegagerðin dregur stórlega úr þjónustu

Þar sem fjármagn til viðhalds og þjónustu vegakerfisins verður töluvert minna en á síðustu árum er óhjákvæmilegt annað en að draga úr viðhaldi og sumarþjónustu í ár hjá Vegagerðinni.

Lítið ber í milli í fráveitudeilu Hafnarfjarðar og Garðabæjar

„Garðabær væntir þess að málinu ljúki með sanngjarnri niðurstöðu fyrir báða aðila eins og bærinn leitast jafnan við í samningum við sína viðskiptavini,“ segir í tilkynningu frá bæjarstjórn Garðabæjar vegna deilunnar um fráveituna sem Garðbæingar nýta sér en Hafnfirðingar borga fyrir.

Sjá næstu 50 fréttir