Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Auglýst eftir skólameistara við nýjan framhaldsskóla Menntamálaráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti skólameistara við framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Stefnt er að því að byggja yfir skólann í Ólafsfirði fyrir allt að 120 nemendur. Samkomulag um skólann var undirritað í mars sl. 19.11.2009 21:47
Birgir: Leið ríkisstjórnarinnar mun dýpka kreppuna „Hækkun skatta á heimilin og fyrirtækin í landinu dregur úr getu þeirra til að takast á við stöðu, sem þegar er mjög erfið. Stór hluti íslenskra fyrirtækja berst í bökkum og heimilin berjast við að mæta stóraukinni skuldabyrði á sama tíma og tekjur fara lækkandi. Við þessar aðstæður geta skattahækkanir ekki haft aðrar afleiðingar en að dýpka kreppuna,“ segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í pistli sem birtist á vefsíðunni AMX.is 19.11.2009 20:02
Þvinguð á námskeið Velferðarráð Reykjavíkur vill að gerð verði sú breyting á lögum að þeir sem fá framfærslustyrk frá borginni verði skikkaðir til að mæta á námskeið. Að öðrum kosti fái fólk ekki bætur. 19.11.2009 19:30
Sorpbrennslan horfir til útlanda eftir verkefnum Til greina kemur að selja Sorpeyðingarstöð Suðurnesja til Þjóðverja og Bandaríkjamanna sem vilja brenna þar úrgangsolíu úr skipum. Einu verkefnunum sem hefur fjölgað að undanförnu er brennsla á eiturlyfjum. 19.11.2009 19:01
Skattbyrðinni dreift með sanngjörnum hætti Forseti Alþýðusambands Íslands hefur áhyggjur af áhrifum skattahækkana á kaupmátt og atvinnustig í landinu. Ríkisstjórninni hafi hins vegar tekist að dreifa skattbyrðinni með sanngjörnum hætti. 19.11.2009 18:54
Einsýnt að forsetinn staðfesti ekki Icesave Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd telja einsýnt að forseti Íslands muni hafna því að staðfesta Icesave frumvarpið enda séu fyrirvarar Alþingis frá í sumar sem forsetinn taldi mikilvæga, að engu orðnir. Þá muni samkomulagið fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. 19.11.2009 18:48
Klaga til samkeppnisyfirvalda Veitingamenn og ferðaþjónustuaðilar telja að boðaðar skattahækkanir dragi úr atvinnuuppbyggingu og nýsköpun í greininni. Þeir ætla að leita til samkeppnisyfirvalda vegna hækkunar á virðisaukaskatti. 19.11.2009 18:33
Meiðslin ekki talin alvarleg Ekið var á barn á mótum Hringbrautar og Bræðraborgarstígs í Reykjavík síðdegis. Barnið var að hjóla yfir götu en tildrög slyssins eru óþekkt að öðru leyti. Barnið var flutt á brott í sjúkrabíl. Eftir því sem næst verður komist slasaðist það ekki alvarlega. Hringbraut var lokuð um tíma en opnað hefur verið fyrir umferð á ný. 19.11.2009 18:27
Stjórn KSÍ fundar um kampavínsmálið Stjórn Knattspyrnusambands Íslands situr á fundi og ræðir mál Pálma Jónssonar, fjármálastjóra sambandsins. Eins og kunnugt er heimsótti hann strípibúllu í Sviss fyrir fjórum árum þar sem hann notaði greiðsluskort KSÍ. 19.11.2009 17:28
Hæstiréttur ómerkir slysadóm Hæstiréttur Íslands ómerkti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og sendir aftur í hérað. Um er að ræða sýknudóm yfir konu sem var að aka vestur Breiðholtsbrautarinnar í febrúar 2007. 19.11.2009 16:57
Ekið á barn á reiðhjóli Ekið var á barn á reiðhjóli við Hringbraut, skammt frá Bræðraborgarstíg, klukkan 25 mínútur í fjögur í dag. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvort barnið hafi slasast alvarlega. En Vísir mun greina nánar frá slysinu þegar frekari upplýsingar hafa borist. 19.11.2009 16:52
Klessti á og sló lögregluþjón Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm yfir karlmanni sem sló lögregluþjón. Maðurinn sló lögregluþjóninn á Bústaðavegi árið 2007. 19.11.2009 16:47
Sýknaður af flöskuárás Hæstiréttur Íslands sýknaði karlmann á þrítugsaldri fyrir að hafa slegið annan mann í höfuðið með glerflösku. Hann var hinsvegar dæmdur fyrir hnefahögg þar sem hann hafði játað brotið. Árásin átti sér stað í miðborg Reykjavíkur í júlí árið 2007. 19.11.2009 16:40
Dómur yfir Evu norn og félögum hennar staðfestur Hæstiréttur staðfesti í dag dóm yfir þremur karlmönnum og konu sem ákærð voru fyrir brot á allsherjarreglu. Fólkið hafði, ásamt fjórum öðurum mönnum, lokað veginum að Hellisheiðarvirkjun við mótmælaaðgerðir. Voruð þau ákærð fyrir að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögregu um að opna veginn aftur fyrir umferð og hverfa af vettnvangi. 19.11.2009 16:39
Ritstjóri með áhyggjur af rauðhærðri frænku sinni „Eins og ég sé þetta þá er verið að boða árás á ættmenni mín og börn,“ segir Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og Heyrt, um „Kick a ginger day“ sem hefur verið boðaður á Facebook. 19.11.2009 16:26
ASÍ telur skattahækkanir vera í takti við stöðugleikasáttmálann Alþýðusamband Íslands telur að ríkisstjórnin hafi, við útfærslu beinna skattahækkana, staðið við markmið sem sett voru við gerð stöðugleikasáttmálans. ASÍ hefur áhyggjur af umfangi skattahækkananna á næsta ári og líklegum áhrifum þess á eftirspurn og atvinnustig í landinu. Hins vegar fagnar ASÍ því að dregið hafi verið úr áformuðum skattahækkunum um þriðjung, að því er segir í tilkynningu frá samtökunum. 19.11.2009 16:00
Rafmagnslaust á Vestfjörðum Rafmagnið fór af Ísafirði fyrir stundu en að sögn lögreglunnar þá hefur engin hætta skapast vegna þess. Engin umferðarljós eru í bænum og útkall hefur borist vegna rafmagnsleysis. 19.11.2009 15:26
Segir lög um kynjakvóta skila betri stjórnun fyrirtækja Það hefur gengið mjög vel í Noregi eftir að lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja voru sett, segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna 19.11.2009 15:15
Varað við hreindýrum á Austurlandi Hálka og hálkublettir eru víða á Austurlandi, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Hellisheiði eystri er ófær. Hálka og snjókoma er á Fjarðarheiði og hálka á Oddskarði. Þæfingsfærð og snjókoma er á Breiðdalsheiði. Þá er fólk beðið um að hafa vara á sér gagnvart hreindýrum sem kunna að vera á vegum austanlands. Á Norðurlandi er víða hálka og hálkublettir. Hálka og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Þungfært er í Fljótum og ófært á Lágheiði. 19.11.2009 14:31
Misrétti gegn rauðhærðum sjaldan tekið alvarlega Íslenskufræðingurinn Esther Ösp Gunnarsdóttir segir misrétti gegn rauðhærðum sjaldnast tekið alvarlega. Sjálf er hún rauðhærð, fjölskyldan og kærastinn líka. Þar að auki þá skrifaði hún B.A. ritgerð í íslensku um rauðhærðar sögupersónur í barnabókum. Esther hefur meira að það segja prentað boli fyrir rauðhærða auk þess sem hún ásamt fjölskyldu halda úti síðunni, rauðhausar.com. 19.11.2009 14:27
Laus og liðugur á leið á rjúpu „Ég er á leið á rjúpu um helgina, þannig að það er dagurinn í dag að koma sér út úr bænum," segir Þórólfur Árnason sem lét af starfi forstjóra Skýrr í gær. Hann segist ekki vera með neitt starf í hendi. 19.11.2009 14:11
Fingralangir á Suzuki og úr í óskilum Undanfarna daga hafa þrír Suzuki jepplingar af eldri gerðinni verið gangsettir á miðborgarsvæðinu, Skúlagötu, Óðinsgötu og Njálsgötu, af óviðkomandi aðila eða aðilum og þeim ekið á brott. 19.11.2009 14:11
Hvetja skóla til þess að koma í veg fyrir ofbeldi gegn rauðhærðum Landsamtök foreldra - Heimili og skóli, beinir þeim tilmælum til skólastjórnenda að vekja athygli foreldra og nemanda á því að „Kick a ginger day“ framtakið, sem hefur verið boðað á Facebook, verði ekki liðið. 19.11.2009 13:24
Björgvin íhugaði að segja af sér þegar ríkið yfirtók Glitni Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, íhugaði alvarlega að segja af sér embætti 29. september á síðasta ári þegar áform voru kynnt um yfirtöku ríkisins á Glitni. Hann íhugaði einnig að segja af sér daginn eftir vegna framkomu Ingibjargar Sólrúnar, formanns Samfylkingarinnar við sig. 19.11.2009 13:01
Albaníuferð þingmanna kostar á aðra milljón króna Ferð Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, varaforsetanna Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur og Sivjar Friðleifsdóttur og Jörundar Kristjánssonar, alþjóðaritara á skrifstofu forseta Alþingis, kostar tæpar 1,4 milljónir króna. 19.11.2009 13:00
Icesave tekið til annarar umræðu Icesave-frumvarp ríkistjórnarinnar var tekið til annarrar umræðu á Alþingi í morgun. Fjárlaganefnd og efnahags- og skattanefnd tóku aðeins fyrir þær breytingar sem orðið hafa á frumvarpinu frá því Alþingi afgreiddi fyrirvara sína í vor. 19.11.2009 12:22
Skattahækkanir gagnrýndar á þingi Formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að afnema vísitölutengingu persónuafsláttar í skattkerfinu og að draga úr samsköttun hjóna. 19.11.2009 12:12
Slökkviálfarnir eru aðalpersónur í nýrri bók slökkviliðsmanna Slökkviálfarnir Logi og Glóð og illvirkinn Brennu-Vargur eru aðalpersónur í nýrri myndskreyttri bók sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur gefið út. Slökkviliðsmenn munu færa átta ára börnum um allt land bókina að gjöf í Eldvarnaátakinu sem stendur yfir næstu vikuna en þá heimsækja slökkviliðsmenn alla grunnskóla landsins. 19.11.2009 11:25
Borgarbúar finna fyrir öryggi að næturlagi Mikill meirihluti íbúa, eða tæplega 90 prósent, sagðist mjög eða frekar öruggur einn á gangi að næturlagi í sínu hverfi. Um 63 prósent þátttakenda sagðist hins vegar mjög eða frekar óöruggur einn á gangi í miðborg Reykjavíkur. Þetta kemur fram í skýrslunni Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2008 - Dreifing tilkynntra brota eftir svæðum og reynsla íbúa af lögreglu, öryggi og afbrotum. 19.11.2009 11:24
Áhyggjur yfir kjaraþróun fólks með meðalháar tekjur Formaður BHM lýsir áhyggjum yfir kjaraþróun fólks með meðalháar tekjur í fyrirhuguðum skattkerfisbreytingum. Formaður BSRB er áhyggjufull yfir hækkun á tryggingargjaldi. Framkvæmdarstjóri ÖBÍ vill leiðrétta skerðingu sem öryrkjar og lífeyrisþegar urðu fyrir í sumar. 19.11.2009 11:23
Óttast höfundaréttagreiðslur vegna Baugsmyndbands „Það eru brot úr Little Britain í þessu og því urðum að taka myndbandið út,“ segir Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdarstjóri Saga Film en kvikmyndafyrirtækið lét fjarlægja umdeilt myndband sem sýndi Baugsveislu í Monaco út af Youtube. Þar mátti meðal annars finna grínatriði með leikurunum úr Little Britain þar sem þeir voru að gantast með auðmönnum. 19.11.2009 11:05
Félagsmálaráðherra telur óráðlegt að hækka hámarkslán til íbúðakaupa Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segist ekki telja ráðlegt að hækka hámarkslán Íbúðalánasjóðs úr 20 milljónum í 30 milljónir. Þetta sagði Árni Páll Árnason undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi í dag. 19.11.2009 11:02
Mikill verðmunur á bökunarvörum Mikill verðmunur var á bökunarvörum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í matvöruverslunum á landinu síðastliðinn mánudag. Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða í rúmlega helmingi tilfella. Nánar tiltekið voru 26 vörur af þeim 49 vörum sem kannaðar voru ódýrastar í Bónus. Fjarðarkaup var næst oftast með lægsta verðið eða í 9 tilvikum. 19.11.2009 10:46
Sérstakir saksóknarar fengu allir eldskírn í Hafnarfirði Allir þeir sem skipaðir hafa verið sérstakir saksóknarar eiga það sameiginlegt að hafa starfað sem fulltrúar hjá Sýslumanninum í Hafnarfirði. 19.11.2009 10:24
Bankasýslan auglýsir eftir stjórnarmönnum í ríkisfyrirtæki Bankasýsla ríkisins auglýsir eftir fólki sem vill sitja í stjórnum opinberra fjármálafyrirtækja í fréttatilkynningu sem send er fjölmiðlum í dag. 19.11.2009 09:40
Skattar: BHM hefur áhyggjur af meðalmanninum BHM lýsir áhyggjum af kjaraþróun fólks með meðalháar tekjur í yfirstandandi kjaraskerðingum og fyrirhugðum skattkerfisbreytingum, sem og breytingum á vaxta- og barnabótakerfunum. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að mikilvægt sé að huga að jaðaráhrifum skattbreytinga og tekjutenginga. 19.11.2009 08:49
Sinubruni á Sævarhöfða Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins var tvívegis kallað út í nótt vegna sinubruna. Í bæði skiptin var um að ræða svæði á Sævarhöfðanum við Naustabryggju í Grafarvoginum. Að sögn var um töluvert stórt svæði að ræða sem varð eldinum að bráð en hann var fljótslökktur þegar slökkvilið kom á vettvang. Í fyrra skiptið var tilkynnt um eldinn um klukkan hálfþrjú en hann blossaði síðan aftur upp um klukkan sex í morgun. 19.11.2009 07:51
Segja fyrirtæki þvinga starfsmenn til að falla frá hækkunum Einstök fyrirtæki innan raða Samtaka atvinnulífsins hafa reynt að þvinga starfsmenn sína til þess að falla frá umsömdum launahækkunum sem komu til framkvæmda frá 1. nóvember. Þetta kom fram á fundi miðstjórnar ASÍ og gagnrýndi stjórnin þessar tilraunir harðlega. 19.11.2009 07:09
Einn starfsráðgjafi á hverja þúsund á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnun hefur aðeins ráðið þrjá náms- og starfsráðgjafa frá hruninu þrátt fyrir að atvinnulausum hafi fjölgað um mörg þúsund manns. Atvinnulausir í október voru tæplega þrettán þúsund en spár um þróun atvinnuleysis gera ráð fyrir að þeim fjölgi hratt á næstunni. Ráðgjafar á höfuðborgarsvæðinu voru sjö fyrir hrunið en eru nú tíu talsins. Fjöldi viðskiptavina hefur tífaldast frá því í október 2008 og eru þeir um tíu þúsund á höfuðborgarsvæðinu. 19.11.2009 06:00
Baldur hefur fengið stöðu sakbornings Lögreglumál Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, er kominn með réttarstöðu sakbornings í rannsókn sérstaks saksóknara á sölu hans á bréfum í Landsbankanum. Vel á annað hundrað milljónir í hans eigu voru í síðustu viku kyrrsettar vegna rannsóknarinnar, en því úrræði er aðeins beitt gegn sakborningum í málum. 19.11.2009 06:00
Óskastaðan er að fjölga fólki Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, segir ekki mögulegt að fjölga starfsfólki Vinnumálastofnunar í takt við óskir þeirra sem þar starfi. Til þess sé ekki til fjármagn. 19.11.2009 05:30
Stóraukin ásókn er í byssu- og veiðileyfi Metaðsókn hefur verið á námskeið Umhverfisstofnunar í meðferð skotvopna og vegna umsókna um veiðikort á þessu ári. Fjölgun frá síðasta ári nemur um fimmtíu prósentum, að sögn Einars Guðmann, sérfræðings stofnunarinnar sem heldur utan um námskeiðin. Síðasta námskeið þessa árs var haldið 12. nóvember. 19.11.2009 05:15
Fundu amfetamín í endaþarmi fanga Fangi á Litla-Hrauni var tekinn með fjörutíu grömm af nokkuð hreinu amfetamíni innvortis í gær. Fíkniefnahundur Litla-Hrauns, Amiga, merkti á hann eftir heimsóknartíma, þar sem hann hafði fengið heimsókn. Maðurinn var þegar tekinn til rannsóknar og fundust efnin í endaþarminum á honum. Vitað er hver var í heimsókn hjá fanganum. Málið var þegar kært til lögreglunnar á Selfossi þar sem það er til rannsóknar. 19.11.2009 05:15
Þriðja hver fartölva ónýt innan þriggja ára Tölvur Þriðja hver fartölva verður ónýt innan þriggja ára. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem bandaríska fyrirtækið SquareTrade framkvæmdi og greint er frá á vef Aftenposten. Fyrirtækið skoðaði viðgerðarsögu þrjátíu þúsund tölva á þremur árum og komst að þeirri niðurstöðu að litlar fartölvur, sem kallaðar eru á ensku netbooks, bila oftast. 19.11.2009 05:15
Verkefni Varnarmálastofnunar verði hluti af nýju félagi Starfshópur, sem Kristján L. Möller samgönguráðherra skipaði, telur að stefna eigi að sameiningu Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. í eitt félag sem fyrst. Jafnframt eigi að kanna hagkvæmni þess að sameina því félagi rekstur ratsjárkerfis og fasteignarekstur Varnarmálastofnunar Íslands á Keflavíkurflugvelli. 19.11.2009 05:00