Fleiri fréttir

Breyta bensínbíl í rafbíl

Þrír nemar úr Háskólanum í Reykjavík, tveir úr rafmagnstæknifræði og einn úr véla- og orkutæknifræði hafa unnið að því hörðum höndum frá því í haust að breyta bensínknúnum bíl í rafmagnsbíl. Verkið er lokaverkefni þeirra frá skólanum og á morgun gefst fólki tækifæri til að kynna sér vinnu þeirra í Lagnakerfis­miðstöð Íslands í Kelduhverfi.

Landsvirkjun blæs til fundar um nýsköpun

„Sú var tíðin að allt of margir fóru í gegnum svæðið án þess að stoppa. Á Norðurlandi vestra er margt að sjá,“ segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, sem stendur fyrir samráðsfundi um umhverfisvænar áherslur í atvinnu- og menningar­lífi á svæðinu í samstarfi við Vaxtarsamning Norðurlands vestra í dag. Blásið er til fundar­ins í Blönduvirkjun og stendur hann yfir í fjórar klukkustundir.

Dregur úr verðmætasköpun

„Mér líst illa á þessar hækkanir, og fyrir því eru ýmsar ástæður,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „Þær hafa neikvæð áhrif á versta hugsanlega tíma og til lengri tíma litið er þetta ekki að auka tekjur ríkisins heldur minnka þær.

Skilar 115 milljörðum um áramótin

Verði nýtt frumvarp þingmanna Sjálfstæðisflokksins um skattlagningu séreignarsparnaðar að lögum renna samtals 115 milljarðar króna til ríkisins og sveitarfélaganna um næstu áramót; 74,6 milljarðar renna til ríkisins og 40,5 milljarðar til sveitarfélaganna.

Foreldrar ganga fyrir börnum

Breyta þarf reglum um umgegni forsjárlausra foreldra við börn sín og veita forráðamönnum þeirra tækifæri til að vernda þau fyrir ofbeldi. Þetta er krafa nýstofnaðs félags sem nefnst félag forsjárforeldra. Lögfræðingur sem rannsakað hefur þessi mál segir núgildandi fyrirkomulag jafnvel hafa verið þess valdandi að foreldrar sem afplánað hafa dóma fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum sín fá að umgangast þau eftir afplánun.

Gambri og þýfi fundust við húsleitir

Lögreglan á Hvolsvelli handtók fyrr í vikunni fimm einstaklinga af erlendum uppruna í tengslum við innbrot í bæjarfélaginu. Mikið magn þýfis, bruggtæki og töluvert magn af gambra fundust við húsleitir sem lögregla framkvæmdi í kjölfarið. Rannsókn málsins stendur enn yfir en tveir hafa viðurkennt innbrot.

Ríkisstjórn veldur UVG gífurlegum vonbrigðum

Stjórn Ungra vinstri grænna krefst þess að ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar taki upp mannúðlega stefnu í málefnum flóttamanna og hætti nú þegar að beita fyrir sig Dyflinarsáttmálanum í stað þess að taka fyrir mál þeirra flóttamanna sem hingað leita skjóls. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn UVG.

Fyllti skóbotn af fíkniefnum á klósetti í héraðsdómi

Fíkniefni fundust á fanga á Litla-Hrauni í gær eftir að hann kom úr Héraðsdómi Reykjaness. Talið líklegt að maðurinn hafi náð að fylla holan skóbotn, eða haft skóskipti, á salerni héraðsdóms en þar var saman komið fjölmenni í gær. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

Steingrímur í mestum takti við þjóðina

Séu ræður alþingismanna bornar saman við umræður á Þjóðfundinum sem fram fór um helgina virðist Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í mestum tengslum við umræður almennings. Kristján Möller samgönguráðherra er hins vegar í minnstum takti. Þetta var meðal þeirra niðurstaðna sem aðstandendur fyrirtækisins CLARA komust að eftir að þeir létu búnaðinn vinna úr gögnum þjóðfundarins og svo ræðum alþingsmanns síðastliðinn mánuðinn. Rímuðu ræður Steingríms hvað oftast við það sem fram kom á fundinum.

Undirboð bankanna

Ríkisbankarnir undirbjóða leigumarkaðinn í skjóli eignarhaldsfélaga sinna, segir framkvæmdastjóri fasteignafélags. Með þessum vinnubrögðum verði gert útaf við þau fyrirtæki sem eftir eru á einkamarkaði.

Koss dauðans

Timothy Geithner, núverandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, kallaði aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins "koss dauðans" í samtali við Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóra, nokkru áður en ríkisstjórn Íslands ákvað að leita á náðir sjóðsins.

Nýr auðlegðarskattur

Nýr skattur, svo kallaður auðlegðarskattur, verður lagður á nettóeignir umfram 90 milljónir. Á móti verður hætt við lækkun barna- og vaxtabóta á næsta ári. Innheimta tekjuskatts einstaklinga á að skila ríkissjóði 38 milljörðum í auknar tekjur á næsta ári.

Nýtt skattkerfi jafnar byrðum

Einstaklingar með tekjur undir 270 þúsund á mánuði og hjón undir 540 þúsundum munu greiða lægri tekjuskatt á næsta ári samkvæmt þriggja þrepa skattkerfi sem tekið verður upp á næsta ári. Hámarks heildarskattheimta verður 40 prósent.

Eigandinn segir lögreglu hafa sýnt snör viðbrögð

Óléttri starfsstúlku skargripaverslunar á Laugavegi var ógnað með sprautunál rétt áður en hún var spörkuð niður í dag. Þjófurinn hljóp á brott með tæplega 400 þúsund króna úr, en náðist skömmu síðar.

Samstarf um betri miðborg

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Magnús G. Friðgeirsson formaður félagsins Miðborgin okkar, undirrituðu í dag samstarfssamning sem stuðla á að eflingu miðborgarinnar.

Segir mikilvægara að auka tekjur en að skera niður

Innan BSRB og Starfsmannafélags ríkisins hafa menn verið tiltölulega jákvæðir út í þá hugmyndafræði unnið er eftir í tillögum um skattabreytingarnar sem ríkisstjórnin kynnti í dag, að sögn Árna Stefáns Jónssonar, formanns SFR.

Vilhjálmur: Í takt við það sem búist var við

„Þetta er svona í takt við það sem maður hafði búist við en ekki allt sem maður hefði skrifað upp á," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um skattatillögur ríkisstjórnarinnar. Hann segist hafa heyrt af tillögunum í fréttum en ekki kynnt sér þær umfram það.

Úraþjófur sparkaði í kvið ófrískrar konu

Karlmaður réðst inn í verslunina Jón Sigmundsson á Laugavegi rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Maðurinn sparkaði í kvið á barnshafandi starfsstúlku í versluninni og hrifsaði úr að andvirði 400 þúsund krónur. Maðurinn var handtekinn um 15 mínútum seinna, en frekari fregnir hafa ekki borist.

Tekjuskattur á millitekjufólk hækkar

Ríkisstjórnin hyggst taka upp þriggja þrepa skattkerfi. Frá þessu greindu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á blaðamannafundi sem hófst klukkan þrjú í dag.

Eldsúr sælgætisvökvi skaðaði fimm ára stúlku

Ungri stúlku voru í dag dæmdar skaðabætur upp á rúmar þrjár milljónir króna, en árið 2003 keypti hún sælgæti sem sköðuðu á henni lungun. Tímamótadómur segir lögfræðingur stúlkunnar.

Refaveiðar í lögum allt frá 13. öld

Hörð mótmæli berast nú af landsbyggðinni vegna áforma umhverfisráðherra að hætta að styrkja refaveiðar. Æðarbændur benda á að ákvæði um fækkun refa hafi verið í lögum frá 13. öld og Dalamenn vilja að ríkið ráði sérstakar refaskyttur til starfa.

Forseti Alþingis í Albaníu

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, er í opinberri heimsókn í Albaníu í boði Jozefinu Topalli, forseta albanska þingsins. Heimsókn Ástu hófst í dag og lýkur á sunnudag.

Nágranninn mætti með haglabyssu

Íbúi í kjallara mannsins sem varð fyrir árás byssumanns aðfaranótt sunnudags, mætti sjálfur á vettvang með haglabyssu þegar hann varð var við lætin á efri hæðinni. Árásarmaðurinn var þá á bak og burt.

Húnabjörgin aðstoðaði áhöfn aflvana báts

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Húnabjörg á Skagaströnd, var kallað út klukkan korter í ellefu í morgun vegna aflvana báts, 2 sjómílur suðvestur af Skagaströnd. Um 21 metra langan aftubyggðan trébát var að ræða sem hafði fengið snurvoð í skrúfuna. Þrír menn voru um borð.

Varnarmálastofnun keypti dráttarvél án útboðs

Varnarmálastofnun keypti dráttarvél á 15 milljónir króna í desember á síðasta ári, án undangengis útboðs. Utanríkisráðuneytið bað ríkisendurskoðun að kanna opinber innkaup stofnunarinnar.

Skattatillögurnar kynntar í dag

Þingflokkar stjórnarflokkanna komu saman til aukafundar í morgun til að fara yfir skattatillögur ríkisstjórnarinnar, sem verða kynntar klukkan þrjú í dag í Þjóðminjasafninu.

Reykjavíkurborg gerist aðili að Græna stafræna sáttmálanum

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi sínum í gær tillögu, sem Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri flutti, um að Reykjavíkurborg gerist aðili að „Græna stafræna sáttmálanum" um vistvæna upplýsingatækni á næsta aðalfundi Eurocities-samtakanna í Stokkhólmi.

Lögreglukórinn fagnar afmæli sínu með tónleikum

Lögreglukór Reykjavíkur ætlar að blása til tónleika í Laugarneskirkju næstkomandi laugardag til að fagna 75 ára afmæli kórsins. Hörður Jóhannesson, aðstoðarlögreglustjóri og kórfélagi, segir að kórinn hafi verið stofnaður í mars 1934 en ekki hafi gefist tími til að halda upp á afmælið fyrr vegna annríkis fyrr á árinu. Nú standi hins vegar til að halda tónleika þar sem kórinn ætli að flytja sýnishorn af dagskránni undanfarin ár.

SÁÁ skorar á þingmenn að hafna niðurskurði

Stjórn SÁÁ hefur afhent þingmönnum í fjárlaganefnd áskorun um að standa vörð um hagsmuni veikra alkóhólista og aðstandenda þeirra og hafna tillögum heilbrigðisráðuneytisins um niðurskurð á framlögum til sjúkrahússrekstur SÁÁ.

Innbrot í söluturn í Grindavík

Brotist var inn í söluturn í Grindavík í nótt. Þjófurinn komst á brott með peninga úr sjóðsvél og eitthvað af sígarettum. Lögregla telur sig þó hafa sterkar vísbendingar um um hver hafi verið að verki.

Ölvaðir ökumenn á villigötum

Tvennt var tekið grunað um ölvun við akstur með innan við klukkustundar millibili, milli klukkan tvö og þrjú í nótt. Í báðum tilfellum var tilkynnt um athæfið af borgurum, þar sem sást til viðkomandi þar sem þau ölvuðu lentu í óhappi á bifreiðum sínum að sögn lögreglu.

Bankamenn átaldir fyrir milljarðakröfur

„Mér finnst þetta vera veruleikafirrtir siðleysingjar að láta sér koma til hugar að tefla fram kröfum af þessu tagi," segir Ögmundur Jónasson, alþingismaður Vinstri grænna, um fjárkröfur háttsettra fyrrum starfsmanna Landsbanka Íslands.

Rannsaka skotvopn árásarmannsins

Lagt hefur verið hald á nokkur skotvopn á heimili mannsins sem réðist á annan á heimili þess síðarnefnda í Breiðholti aðfaranótt sunnudags.

Ekki ákært í dúfnakofamáli

Ríkissaksóknari mun ekki ákæra karlmann sem sætti gæsluvarðhaldi um skeið vegna gruns um aðild að láti konu á fertugsaldri sem fannst látin í febrúar í kofa Skrautdúfnafélags Hafnarfjarðar. Málið var fellt þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellis á hendur ofangreindum manni sem hafði réttarstöðu sakbornings við rannsóknina.

Gæsluvarðhald og geðrannsókn

Konan sem grunuð er um að hafa stungið fimm ára telpu með hnífi í brjóstið 27. september síðastliðinn hefur nú undirgengist geðrannsókn. Dómari mun síðan byggja á matsgerð um sakhæfi konunnar.

Átta Pólverjar fyrir rétti vegna þjófnaða

Nokkur viðbúnaður var í Héraðsdómi Reykjaness í gær vegna fjölda sakborninga sem þá mættu fyrir rétt í umfangsmiklu þjófnaðarmáli. Þar eru átta manns af pólskum uppruna, um og yfir tvítugu, sökuð um aðild að fjölda þjófnaðarmála víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári.

Segir samræmd próf vera ofmetna aðferð

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður starfshóps um námsmat í grunnskólum Reykjavíkurborgar, hafnar því að ekki verði haft samráð við fagaðila. Formaður Skólastjórafélags Reykjavíkur kvartaði yfir því í Fréttablaðinu í gær og taldi líklegt að niðurstaða hópsins yrði gefin fyrirfram.

Flosi hættur

Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar á næsta ári. Flosi tók sæti í bæjarstjórn árið 1998 og var áður varamaður í fjögur ár.

Hundruð milljóna í tekjur

Um sjötíu sjúklingar koma til landsins í hverjum mánuði frá Færeyjum, Grænlandi og Noregi til þess að gangast undir augnaðgerðir eða lýtaaðgerðir.

Sjá næstu 50 fréttir