Fleiri fréttir

Reyndu að brjótast inn í þinghúsið

Hópur fólks klauf sig út úr hópi mótmælenda sem nú mótmæla fyrir utan Alþingishúsið og reyndi að brjóta sér leið inn í þinghúsið. Tveir lögreglumenn sem stóðu fyrir utan vörnuðu fólkinu inngöngu. Ekki kom til neinna átaka en bumbusláttur og flaut glumdi inni í þinghúsinu þegar fólkið reyndi að troða sér inn í anddyrið.

Kristján Þór: Samningarnir alfarið á ábyrgð ríkisstjórnarinnar

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir fáheyrt að ríkisstjórn sjálfstæðs og fullvalda ríkis skuli afsala jafnmikilvægum og sjálfsögðum rétti líkt og ríkisstjórnin hafi gert með undirritun sinni við samkomulagi sínu við bresk og hollensk stjórnvöld. Hann segir samkomulagið alfarið á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Kristján mælti fyrir framhaldsnefndarálit fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd þegar þriðja og lokaumræða um Icesave hófst í dag.

Rannsókn lögreglu á íkveikju gagnrýnd

Hörð gagnrýni á störf rannsóknarlögreglu á íkveikju á Kleppsvegi kom fram fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Aðalmeðferð málsins var framhaldið í morgun en upphaflega stóð til að kveða upp dóm í málinu þann 11. ágúst.

Mikið breytt eftir umfjöllun fjárlaganefndar

Verulegar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave í meðförum fjárlaganefndar. Þetta segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Hann mælti fyrir nefndaráliti meirihlutans þegar þriðja og lokaumræða frumvarpsins hófst í dag. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, sagði ríkisstjórnina hafa orðið afturreka með upphaflega samkomulagið við Breta og Hollendinga.

Skólastoðin safnar ritföngum og bókum í Kringlunni

Í dag og á morgun fer fram ritfanga- og bókasöfnun Skólastoðarinnar en hún hefur það að markmiði að leggja skólabörnum lið við upphaf skólans nú í september. Leitað er til almennings og fyrirtækja um framlög, hvort heldur er í formi skólavarnings eða frjálsra fjárframlaga að því er fram kemur í tilkynningu.

Sigmundur baðst afsökunar við upphaf þingfundar

„Vegna veru minnar í pontu síðastliðinn fimmtudag urðu mér á mistök sem ber að biðjast afsökunar á. Það er hér með góðfúslega gert," sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar við upphaf þingfundar í dag.

Icesave líklega samþykkt í dag

Árni Þór Sigurðsson, fulltrúi VG í fjárlaganefnd, telur allt eins líklegt að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave verði samþykkt á Alþingi í dag.

Lögreglan varar við flugmiðasvikurum

Lögreglan á Suðurnesjum hefur síðustu daga haft afskipti af 12 aðilum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna þess að greitt hafði verið fyrir farmiða þeirra með stolnum greiðslukortum. Um svikamyllu virðist vera að ræða en lögregla segir að þeir sem keyptu miðana virðast ekkert tengjast innbyrðis og er frásögn þeirra af því hvernig þeir keyptu miðana öll á sömu lund.

Innbrotalaust á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafði ekki borist nein tilkynning um innbrot klukkan hálfsjö í morgun, sem ótvírætt telst til tíðinda eftir mikla innbrotahrynu síðustu vikurnar.

Brotist inn í Lindina á Laugarvatni

Brotist var inn í veitingastaðinn Lindina á Laugarvatni í nótt og þaðan stolið uppgjöri nokkurra daga úr sjóðsvélinni, eða peningakassanum.

Segja aðgerðir stjórnvalda engan veginn duga

Fyrir liggur að þær aðgerðir, sem þegar hefur verið gripið til af hálfu stjórnvalda og fjármálastofnana duga engan veginn til að mæta þeim vanda sem við blasir, segir í ályktun miðstjórnar ASÍ um greiðsluvanda heimilanna.

Afskriftir húsnæðislána fari ekki fram í bönkum

Það er „fáránlegt“ að láta bankana leita leiða til að aðstoða fólk við að standa í skilum af húnsæðislánum. Bankarnir hafa þá einu hagsmuni, í slíkri aðgerð, að tryggja hagsmuni bankans.

Skyggnst inn í framtíðina

36 tonna tæknitrukkur frá fyrirtækinu IBM er nú staddur hér á landi. Trukkurinn er búinn öllum nýjasta tæknibúnaði frá IBM.

Bankarnir eru stútfullir af peningum

Innstæður í bönkum landsmanna nema nú um 2.000 milljörðum króna. Í maí voru þær um 1.700 milljarðar en voru um 1.400 milljarðar fyrir hrun

Gert að upplýsa um seljandann

Hæstiréttur hefur fallist á kröfu manns um að formaður skilanefndar SPRON upplýsi hann um það fyrir dómi hver seldi honum stofnfjárbréf í SPRON árið 2005 fyrir 55,5 milljónir króna.

Gátu sótt tekjur til lífskjaratryggingar

Um síðustu áramót fengu sveitarfélög heimild til að hækka útsvar um 0,25 prósent. Hefði Reykjavíkurborg nýtt sér þetta hefðu tekjur borgarinnar aukist um 670 milljónir.

Skólarnir starfa í 174 daga á ári

Samanlagður fjöldi kennsludaga og prófadaga í framhaldsskólum landsins var að meðaltali 174,7 dagar á síðasta skólaári. Að meðaltali fóru 25 dagar í próf og námsmat.

Fáheyrð afstaða ráðherra

„Það er algjörlega fáheyrt að ráðherra hvetji til þess að menn sniðgangi lög,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Sameining Magma og GGE til skoðunar frá upphafi

Möguleikinn á sameiningu Geysis Green Energy og kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy hefur verið til skoðunar frá því fyrirtækin ræddu fyrst samstarf innan HS Orku. Forsvarsmenn fyrirtækjanna segja sameiningu þó ekki í kortunum alveg á næstunni.

Uppgrip hjá þýðendum

Helsta þýðingarmiðstöð Evrópusambandsins þyrfti að ráða tugi íslenskra þýðenda í vinnu ef Ísland gengi í ESB.

Ekki hlaupið að því að sanna tjónið

Ekki kemur á óvart að stjórnvöld vilji skoða möguleikann á því að höfða skaðabótamál gegn gerendum í bankahruninu, en mörg ljón eru í veginum fyrir því að útrásarvíkingar verði dæmdir til að greiða himinháar bætur segir lagaprófessor.

Ummæli óskiljanleg og sorgleg

Málflutningur forsvarsmanna Samtaka iðnaðarins og Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um fyrirtæki í framleiðslu og innflutningi á sementi er dapurlegur, segir Bjarni Ó. Halldórsson, framkvæmdastjóri Aalborg Portland á Íslandi.

Söfnun fyrir krabbameinssjúk börn

Söfnunarþátturinn „Á allra vörum“, á vegum Krabbameinsfélagsins, verður á Skjá einum næstkomandi föstudagskvöld klukkan 21.00. Í fyrrasumar söfnuðust ríflega 50 milljónir sem voru notaðar til að kaupa ný tæki til að greina brjóstakrabbamein betur.

Ofurlaun þrátt fyrir nauðasamning Stoða

Jón Sigurðsson, fyrrum forstjóri Stoða sem áður hét FL Group, er enn á ofurlaunum hjá félaginu þótt það hafi komist í þrot fyrr á árinu og sé nú í meirihlutaeigu ríkisfyrirtækja.

Ekki gott að Sigmundur neitaði

Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur segist fastlega gera ráð fyrir að framkoma Sigmundar Ernis Rúnarssonar alþingismanns í ræðustól Alþingis hafi skaðað hann. Hefur Sigmundur Ernir viðurkennt að hafa smakkað vín áður en hann hélt ræðu um Icesave-málið síðastliðinn fimmtudag. Var hann að koma úr golfmóti MP-banka.

Yrði mikilvæg samgönguúrbót

Sveitarstjórnir á Norðausturlandi þrýsta nú á samgönguyfirvöld að klára að malbika vegarkaflann um Hófaskarðsleið. Verklok áttu að vera í september en mikið hefur gengið á og mun framkvæmdin líklega frestast um að minnsta kosti eitt ár.

Vissi ekki um lán til Al-Thani

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Existu og fyrrum stjórnarmaður í Kaupþingi, segir að hann hafi ekki vitað um lán Kaupþings til Sjeiks Mohameds bin Khalifa Al-Thani.

Kysstust í mótmælaskyni

Rússneskt lesbíupar kysstist fyrir utan dómsal í Moskvu í mótmælaskyni eftir að fyrirtöku máls sem þær höfðuðu á hendur ríkinu var frestað.

Kengúrur valda flestum slysum

Kengúrur og valla­-bíur eru helsta ógnin við bílstjóra í dreifbýli Ástralíu, samkvæmt nýrri rannsókn. Þar voru teknar saman upplýsingar frá 1996 til 2005 um árekstra á vegum úti í Ástralíu, þar sem dýr komu við sögu.

Gæti tekið fjóra mánuði í viðbót

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að umsókn Menntaskólans hljóti enga sérmeðferð við leyfisveitingu. Skoða þarf umsóknina í heild. Gæti meðferð ráðuneytisins tekið um fjóra mánuði.

700 greindir á átta vikum

Tæplega sjö hundruð tilfelli svínaflensu hafa verið tilkynnt hér á landi frá lokum júnímánaðar.

Jarðskjálftar við Bárðarbungu

Jarðskjálfti af stærð 3.4 á richter reið yfir norðaustanverða Bárðarbungu á Vatnajökli um klukkan átta í kvöld samkvæmt Veðurstofu Íslands. Nokkrir minni skjálftar fylgdu á eftir en sá stærsti var af stærð 2.6 á richter.

Fréttaskýring: Af sótölvuðum ráðherra og fullum þingmönnum

Áfengisdrykkja Sigmundar Ernis Rúnarssonar hefur vakið verðskuldaða athygli hér á landi en þingmaður Samfylkingarinnar hefur beðist afsökunar á því að hafa drukkið tvö léttvínsglös áður en hann fór í púlt og hélt mikla eldmessu yfir þingheimi.

ASÍ: Stjórnvöld vanrækja skuldug heimili

Miðstjórn ASÍ sendi frá sér ályktun síðdegis í dag þar sem hart er deilt á stjórnvöld vegna skulda heimilanna. Í ályktunni segir að þau úrræði sem þegar hafa litið dagsins ljós séu ónæg. Úrræði séu í raun ómarkviss og hafi skilað mjög takmörkuðum árangri.

Forsetinn fundaði með Magma

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti fund með Ross Beaty, forstjóra Magma Energy, fyrr í mánuðinum. Þeir ræddu umsvif Magma, sem hyggst hasla sér völl í íslenskum orkuiðnaði.

Subway styrkti fjölskylduhjálp

Skyndibitastaðurinn Subway gaf Fjölskylduhjálp Íslands 1,3 milljón króna í formi gjafakorta að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur, formanns fjölskylduhjálpar.

Sonurinn ók kenndum Sigmundi í þingsal

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, viðurkenndi í dag að hafa drukkið áfengi áður en hann tók þátt í umræðum á Alþingi. Forseti Alþingis segir þingmenn bera ábyrgð á sjálfum sér.

Vilja vegarspotta strax vegna klúðurs

Vegagerðin og sveitarfélög á Norðausturlandi þrýsta nú á að stuttur vegarspotti við Kópasker sleppi við umhverfismat svo ekki tefjist um meira en ár að opna nær tilbúinn þrjátíu kílómetra veg yfir Melrakkasléttu til Þórshafnar og Raufarhafnar.

Býður sig fram í formann Heimdallar

Árni Helgason, sem lét nýverið af störfum sem framkvæmdarstjóri þingflokks Sjálfstæðismanna, gefur kost á sér sem formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík.

Sjá næstu 50 fréttir