Innlent

Ekki frítt fyrir háskólanema í strætó í vetur

Strætókort fyrir framhalds- og háskólanema verða ekki ókeypis í vetur eins og síðustu tvo vetur.

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa hins vegar ákveðið að niðurgreiða hvert kort um helming, og munu kortin því kosta fimmtán þúsund krónur.

Ríkisstjórnin samþykkti í síðustu viku að hefja gerð áætlunar um sjálfbærar samgöngur. Þá kom fram að bæði umhverfisráðherra og samgönguráðherra vilji kanna mögulega aðkomu ríkisins að verkefninu um frítt í strætó.

Stúdentaráð Háskóla Íslands á nú í viðræðum við umhverfisráðherra um málið.

- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×