Fleiri fréttir

Geysir Green bauð kínverskum samstarfsmanni í Grímsá

Forsvarsmenn Geysis Green Energy buðu kínverskum samstarfsmanni í veiði í Grímsá í Borgarfirði fyrir tveimur vikum. Íslandsbanki, sem er í eigu ríkisins, er stór eignaraðili að Geysi Green. Forstjóri fyrirtækisins segir veiðina hafa verið ákveðna að vel athuguðu máli.

Sigmundur Ernir: Drakk en kenndi ekki áhrifa

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, viðurkennir að hafa fengið sér léttvín með mat að loknu golfmóti sem hann tók þátt í á fimmtudaginn síðastliðinn. Síðar sama kvöld tók hann þátt í umræðum um Icesave samkomulagið.

Grunnskóli í Heilsuverndarstöðinni fær leyfi

Menntaráð Reykjavíkur samþykkti umsókn um starfsleyfi fyrir grunnskóla í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á fundi sínum í dag. Í skólanum verður lögð áhersla á skapandi skólastarf sem verður verulega frábrugðið hefðbundnu skólastarfi.

Vaxandi skilningur á stöðu Íslands við setningu neyðarlaga

„Mér fannst heildarniðurstaðan vera sú að menn telja að það hafi vaknað meiri skilningur á þeirri stöðu sem Ísland var í þegar neyðarlögin voru sett en var í upphafi árs," segir Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar.

Ráða her lögmanna til að leiðrétta milljarða mistök

Lífeyrissjóðurinn Stapi hyggst ráða hóp innlendra og erlendra lögmanna til að vinna að því að leiðrétta mistök sem gerð voru hjá Lögmannsstofunni á Akureyri, en hún gleymdi að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu sjóðsins í bú Straums-Burðaráss. Sjóðurinn hefur um mánuð til að greiða úr málinu og verður einskis látið ófreistað til að ná fram leiðréttingu.

Bloggarar standa fyrir hávaðamótmælum á morgun

„Hugmyndin er sú að sá sem mætir þarna og öskrar getur unnið sér inn eina til tvær milljónir," segir Frosti Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Dohop flugleitarvélarinnar og bloggari.

Orkan á Hengilssvæðinu umfangsmeiri en talið hefur verið

Nú rannsóknarborhola á Hellisheiði gefur sterka vísbendingu um að orkan á Hengilssvæðinu sé mun umfangsmeiri auðlind en talið hefur verið. Holan er svo öflug að hún gæti séð sautján þúsund manna byggð fyrir rafmagni.

Fullbyggður vegur ónothæfur sökum klúðurs

Samgönguyfirvöld standa nú frammi fyrir einhverju mesta klúðri í sögu íslenskra vegamála. Ekki er hægt að opna nær fullbyggðan veg í stað Öxarfjarðarheiðar þar sem Vegagerðin hafði ekki tryggt sér leyfi til að leggja síðustu tvo kílómetrana. Sveitarstjórnir á Norðausturlandi er ævareiðar.

Segir svínarí með milligjafir á undanhaldi

Síðastliðið haust fór að bera á auglýsingum þar sem bílar voru boðnir til sölu gegn yfirtöku á láni og peningum í kaupbæti. Upp frá því spruttu upp sögur um fólk sem vissi að það væri hvert eð var á leið í þrot og nýtti sér því slík kjör. Hirti peninginn og lét sig hverfa.

Fjöldi kennsludaga í framhaldsskólum óbreyttur

Samanlagður fjöldi kennsludaga og prófadaga nemenda í framhaldsskólum skólaárið 2008-2009 var á bilinu 164 til 185 eftir skólum, en að meðaltali 174,7. Það er svo til óbreyttur fjöldi daga frá fyrra skólaári, að því er fram kemur á heimasíðu Hagstofunnar.

Þukl og gröfufimi á landbúnaðarsýningunni Glætu

Landbúnaðarsýningin Glæta fer fram í reiðhöllinni í Borgarnesi nú um helgina og hefst klukkan 15 á föstudaginn. Unnið hefur verið að undirbúningi sýningarinnar um tveggja mánaða skeið.

Sagður hafa hellt í sig víni

Gestir í kvöldverðarboði MP banka í síðustu viku segjast hafa orðið vitni að töluverðri áfengisneyslu Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem síðar um kvöldið flutti framsögu og tók þátt í umræðum á Alþingi um Icesave málið. Þetta kemur fram í DV í dag.

Framhaldsnefndarálitum vegna Icesave dreift í dag

Nýjum þingskjölum verður dreift á þingi á útbýtingarfundi klukkan 16 í dag. Icesave frumvarpið var afgreitt úr fjárlaganefnd á fjórða tímanum í gær með stuðningi allra nefndarmanna nema Höskuldar Þórhallssonar, þingmanns Framsóknarflokksins.

Fjármálaráðherra boðar til fundar

Fjármálaráðherra hefur boðið fulltrúum af hundrað manna fundi, sem haldinn var í Grindavík í gærkvöldi vegna málefna HS Orku, að koma á sinn fund í dag og skýra afstöðu sína nánar.

370 farþegar jumbóþotu strandaglópar á Íslandi

Farþegar og áhöfn ísraelskrar Boeing 747 Jumbóþotu, samtals 370 manns, biðu um borð í vélinni á Keflavíkurflugvelli í röskar fimm klukkustundir fram á kvöld í gær, áður en fólk fékk loks að yfirgefa vélina.

Stálu flatskjám og gerfihnattamóttakara

Brotist var inn í fyrirtæki við Skútuvog í Reykjavík laust fyrir klukkan eitt í nótt og þaðan stolið þremur stórum flatskjám og gerfihnattamóttakara. Þjófarnir hafa verið eldsnöggir á vettvangi, því þjófavarnakerfi fór í gang og þegar öryggisvörður kom á vettvang nokkrum mínútum síðar voru þeir á bak og burt og eru ófundnir.

Ríkið vill skaðabætur frá útrásarvíkingum

Ríkisstjórnin samþykkti í gær að hefja undirbúning að höfðun skaðabótamála gegn einstaklingum, félögum og fyrir-tækjum sem sýna má fram á að hafi valdið ríkinu og íslenskum almenningi fjárhagslegu tjóni með athöfnum í aðdraganda bankahrunsins.

Ræða um mögulegt samstarf við Europol

Fulltrúar Evrópulögreglunnar Europol munu í dag funda með sérstökum saksóknara um það hvort og þá hvernig unnt er að nýta sérþekkingu stofnunarinnar við rannsóknina á bankahruninu.

Ráðherra vill frekar íslenska einokun en danska

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir það afdráttar-lausa skoðun sína að íslenskt iðnaðarfyrirtæki, í þessu tilfelli Sementsverksmiðjan á Akranesi, eigi meiri tilverurétt í íslensku atvinnulífi en samkeppnisaðilinn sem flytur inn danskt sement. Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) gagnrýna harðlega boðskap á þessum nótum.

Léku 33.300 holur í sumar

Skráningar á mótaröð unglinga hafa aldrei verið betri en í ár. Um helgina fór fram sjötta og síðasta stigamót á Garðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.

Peningaþvættið enn á borði saksóknara

Ríkissaksóknari hefur ákært Gunnar Viðar Árnason fyrir innflutning á um sex kílóum af amfetamíni til landsins í hraðsendingu í vor. Rannsókn málsins leiddi til þess að tveir menn til viðbótar, Sigurður Hilmar Ólason og Ársæll Snorrason, voru einnig handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeir eru hins vegar ekki ákærðir fyrir smyglið.

Miklu betur búið en í upphafi

Fjármálaráðuneytinu verður falið að kynna Bretum og Hollendingum fyrirvara Alþingis við ríkisábyrgð Icesave-lánanna og fá frá þeim formlega staðfestingu á að þeir fallist á þá.

Útskrifast af íslenskunámskeiði

Útskrifaðir voru 105 nemendur af íslenskunámskeiði hjá Háskólasetri Vestfjarða á mánudag. Allir nemendurnir náðu lágmarkseinkunn.

Starfshópurinn hefur ekki hist

Starfshópur sjávarútvegsráðherra um endurskoðun fyrirkomulags fiskveiðistjórnunar hefur enn ekki hist. Hópurinn var skipaður í byrjun júlí og er ætlað að skila álitsgerð til ráðherra fyrir 1. nóvember.

Tugmilljóna skemmdir á fráveitunni

„Slæm umgengni notenda fráveitu hefur valdið tugmilljóna tjóni,“ segir heilbrigðis-fulltrúi Suðurlands í bréfi til skipulags- og byggingarnefndar Ölfuss.

Laxeldisstöð sögð hættuleg

Eiganda aflóga laxeldisstöðvar að Læk er hótað tíu þúsund króna dagsektum lagfæri hann ekki hættu sem skipulags- og byggingarnefnd Ölfus telur stafa af stöðinni.

Launavísitala hækkar lítillega

Launavísitala hækkaði um 0,4 prósent frá júní til júlí samkvæmt Hagstofu Íslands. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 2,6 prósent

Hengilssvæði stærra en áður

Jarðhitasvæðið í grennd við Hengilinn gæti verið mun stærra en áður hefur verið talið. Ný rannsóknarborhola við Hverahlíð hefur gefið sterkar vísbendingar um að það nái lengra til suðurs.

Hvar fæst ódýrasta skóladótið?

Eflaust spyrja sig margir þessa dagana hvar ódýrasta skóladótið sé að finna. Við þessu virðist ekki vera eitt einhlítt svar.

Óvissa um hlutinn í HS Orku

Ríkið hefur ekki tök á því að kaupa hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Þetta er skoðun margra samfylkingarmanna og meirihluta borgarstjórnar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Minnir á hámark kostnaðar

Talsmaður neytenda hefur sent Lögmannafélagi Íslands ábendingu, hvar minnt er á að lögmenn séu bundnir af reglum um hámark innheimtukostnaðar. Innheimtulög og reglur um hámark innheimtukostnaðar eigi einnig við um lögmenn.

Bestu genin í íslensku konunni

„Við búumst við um 18 keppendum og konurnar koma úr mismunandi áttum," segir Gemma Taylor Magnússon, fyrrum sterkasta kona Bretlands, en hún ásamt eiginmanni sínum, Benedikt Magnússyni, skipuleggur nú keppnina Sterkustu konu Íslands sem fram fer í Vetrargarðinum í Smáralind í október.

Vandræðaleg samtöl í Kjós

„Sé um vanskil að ræða hefur starfsmaður á skrifstofu hreppsins samband við viðkomandi, en það eru að öllu jöfnu vandræðaleg samskipti,“ segir Sigurbjörn Hjaltason oddviti á heimasíðu Kjósarhrepps um milda innheimtustefnu hreppsins sem byggist á því á að treysta á skilvísi gjaldenda.

Árni Johnsen: Sigmundur Ernir hefur bara ákveðinn stíl

„Ég fann ekkert athugavert við hann,“ segir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi en hann sat í þingsal og hlustaði á eldræðu Sigmundar Ernis Rúnarssonar á fimmtudagskvöldinu.

Leiðrétting: Þingflokksformaður ræddi sérstaklega við Sigmund

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar ræddi sérstaklega við Sigmund Erni Rúnarsson eftir eldræðu mikla sem hann hélt á fimmtudagskvöldinu síðasta. Samtal þeirra var í einrúmi en tilefnið var sérkennilega framganga Sigmundar í sölum Alþingis á fimmtudagskvöldinu síðasta.

Hugsanlega lærbrotinn eftir vélhjólaslys

Fjórir einstaklingar voru fluttir á spítala eftir að vélhjól og bifreið lentu í árekstri á Korpúlfsstaðarvegi í Grafarvogi í kvöld. Atvikið átti sér stað á áttunda tímanum.

Magnús Ármann stendur í ströngu

Í nægu er að snúast hjá Magnúsi Ármann þessa daganna. Kaupþing hefur stefnt honum, sérstakur sakskóknari rannsakar meinta markaðsmisnotkun í viðskiptum sem félag í hans eigu átti auk þess sem ríkisskattstjóri rannsakar greiðslukortanotkun hans.

Hugsanlega í mál við útrásavíkinga og bankastjóra

Fjármálaráðherra segir ekki útilokað að eigendur og stjórnendur gömlu bankanna verði meðal þeirra sem skaðabótamál verði höfðuð gegn, verði sýnt fram á að þeir hafi bakað ríkinu og almenningi tjóni með athöfnum sínum fyrir og eftir bankahrun.

Meintur mannræningi með 500 E-töflur

Maðurinn sem var dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa haft undir höndum tæplega 500 E-töflur var handtekinn fyrir stuttu vegna mannráns á Akureyri. Maðurinn heitir Eyþór Helgi Guðmundsson og er tuttugu og fimm ára gamall Akureyringur.

Mannleg mistök gerð við útkall á Herðubreið

Mannleg mistök voru gerð við útkall þegar maður varð bráðkvaddur á Herðubreið síðastliðinn laugardag, segir í tilkynningu frá Landsstjórn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Farið var út fyrir faglega vinnuferla og misbrestur varð í samskiptum þeirra sem að komu.

Játar ábyrgð á sprengjuhótuninni

Maðurinn sem var handtekinn í gær vegna sprengjuhótunar í Borgarholtsskóla hefur játað að hafa hringt í skólann með hótanir um að sprengju væri þar að finna. Hann er laus úr haldi lögreglu.

Stúdentar ræða við Svandísi um frekari niðurgreiðslu í strætó

Stúdentaráð Háskóla Íslands á í viðræðum við Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um frekari niðurgreiðslu á nemakortum í strætó. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu greiða niður hvert nemakort sem framhalds- og háskólanemendur kaupa hjá Strætó bs. um 15 þúsund krónur.

Sjá næstu 50 fréttir