Ekki gott að Sigmundur neitaði 27. ágúst 2009 03:00 gunnar helgi Hann segir þá spurningu um afsögn Sigmundar vakna ef hann hefur misst traust kjósenda sinna. fréttablaðið/gva
Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur segist fastlega gera ráð fyrir að framkoma Sigmundar Ernis Rúnarssonar alþingismanns í ræðustól Alþingis hafi skaðað hann. Hefur Sigmundur Ernir viðurkennt að hafa smakkað vín áður en hann hélt ræðu um Icesave-málið síðastliðinn fimmtudag. Var hann að koma úr golfmóti MP-banka. „Það er engin leið að segja þó hver langtímaáhrifin eru. Ræðst það meira af því hvernig honum gengur,“ segir Gunnar. Telur hann þetta lítil áhrif geta haft á Samfylkinguna, nema þetta verði fjölmiðlamál í langan tíma. Gunnar Helgi man ekki eftir öðrum dæmum þar sem menn hafi verið drukknir í þingstól. Gæti það þó hafa gerst hér áður fyrr þegar engar upptökur voru og þingmönnum leyfðist að leiðrétta ræður sínar eftir á hjá þingriturum. „Ekki er gott að hann hafi neitað þessu fyrst og hann er í verri málum vegna þess,“ segir Gunnar en Sigmundur neitaði fyrst staðfastlega að hafa smakkað áfengi áður en hann fór í ræðustól. En á Sigmundur að segja af sér? „Ef hann hefur misst traust kjósenda sinna og Samfylkingarinnar hlýtur sú spurning að vakna,“ segir Gunnar Helgi. - vsp
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira