Innlent

Fréttaskýring: Af sótölvuðum ráðherra og fullum þingmönnum

Valur Grettisson skrifar
Sigmundur Erni Rúnarsson vopnaður vatnsglasi í þingsal.
Sigmundur Erni Rúnarsson vopnaður vatnsglasi í þingsal.

Áfengisdrykkja Sigmundar Ernis Rúnarssonar hefur vakið verðskuldaða athygli hér á landi. Þingmaður Samfylkingarinnar hefur beðist afsökunar á því að hafa drukkið tvö léttvínsglös áður en hann fór í púlt og hélt mikla eldmessu yfir þingheimi.

Framganga hans í ræðustóli þótti raunar svo sérkennileg að Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, ætlar að taka málið sérstaklega fyrir á fundi forsætisnefndar sem haldinn verður á morgun.

Niðurstaða forsætisnefndar þýðingarlítil

Af þeim sem Vísir hefur rætt við þá virðist það litlu skipta varðandi stöðu þingmannsins hver niðurstaða nefndarinnar verður. Í henni sitja forseti Alþingis og varaforsetar.

Verði niðurstaðan neikvæð þá yrði hún áfellisdómur. Þingmaðurinn ber hinsvegar ábyrgð á sér sjálfum. Hann þarf því að lokum að axla ábyrgð telji hann ástæðu til.

Ekki eru allir sammála Ragnheiði og harkalegum viðbrögðum við framgöngu Sigmundar en samflokksmaður hennar, Árni Johnsen, var staddur í þingsal þegar Sigmundur hélt ræðu sína.

Hann sagði í viðtali við Vísi að hann hefði ekkert fundið athugavert við framkomu Sigmundar. Hann sagði að stíll hans væri heldur sérkennilegur almennt.

Galsinn verður að Kveldúlfi

Sjálfur sagði Sigmundur í viðtali við Vísi daginn eftir fundinn að það hefði verið galsi í þingmönnum og því hefði verið mikið um frammíköll og stemmningin lævi blandinn. Raunar komst Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, betur að orði í viðtali við dv.is þegar hún lýsti andrúmsloftinu á þingi, þá sagði hún kveldúlf hafa verið í mannskapnum.

Sótölvaður á fjölmiðlafundi

En Sigmundur Ernir er langt því frá að vera eini þingmaður veraldar sem hefur sinnt embættistörfum sínum kenndur. Það var í mars á þessu ári sem japanski fjármálaráðherrann, Shoichi Nakagawa, sagði af sér sem ráðherra eftir að hafa verið sótölvaður á fjölmiðlafundi. Hann var í raun svo ölvaður að út úr honum kom ekki óbrjáluð setning.

Ofdrykkja fyrrum fjármálaráðherrans var þungt pólitískt högg fyrir ríkisstjórn Taro Aso en hún stóð höllum fæti eftir að efnahagshrunið náði til Japans. Drykkjan hafði því heldur afdrifaríkar pólitískar afleiðingar. Ríkisstjórnin lifði þó áfengisdrykkjuna af.

Forsætisráðherra drukkinn í þingsal

Það var svo í júlí árið 2007 sem fyrrum forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, viðurkenndi að hafa ávarpað ástralska þingið fullur árið 1989. Þessu ljóstraði hann upp í ævisögu sinni sem var gefin út árið 2007. Þar sagði hann sér til varnar að hann hafði tapað formannskosningum gegn samflokksmanni sínum, Andrew Peacock.

Sjálfur var John forsætisráðherra Ástralíu frá árinu 1996 til 2007. Pólitíski ósigur hans varð þó til þess að hann drakk fullmikið auk þess sem hann bað starfsfólk sitt afsökunar með tárin í augunum. Frásögnin vakti gríðarlega athygli og var umdeild.

Vildu siðareglur um áfengisdrykkju

Hann er þó ekki eini ástralski þingmaðurinn sem var drukkinn á þingi því Peter Black mætti drukkinn árið 2004 og veittist harkalega að pólitískum andstæðingi sínum, Virgina Judge, úr ræðustól.

Hún gagnrýndi þingmanninn harkalega í kjölfarið og sagði það óafsakanlegt að vera drukkinn í þingsal.

Deilan náði hámarki þegar Judge vildi setja niður siðareglur þar sem hægt væri að svipta menn þingmennsku væru þeir drukknir í vinnunni.

Færeyskir fullir á Íslandi

En frændur okkar í Færeyjum hafa átt sín drykkjuhneyksli. Reyndar átti hneykslið sér stað hér á Íslandi í nóvember á síðasta ári þegar utanríkisráðherrann Jørgens Niclasen og fjármálaráðherrann Jóhannes Eidesgaard voru í heimsókn hér á landi.

Þá var því haldið fram í færeyskum fjölmiðlum að Eidesgaard hafi verið áberandi drukkinn í matarboði með íslenskum ráðherrum. Málið var þó ekki til lykta leitt. Ráðherrarnir sögðu ekki af sér en misstu þó nokkurn trúverðugleika vegna málsins í Færeyjum en málið var rætt á þjóðþingi þar í landi.

Beðið eftir niðurstöðu Forsætisnefndar

Þegar Vísir ræddi við formann þingflokks Samfylkingarinnar, Björgvin G. Sigurðsson í kvöld, sagði hann að Sigmundur væri búinn að gera nægjanlega grein fyrir málinu að sínu mati.

Hvorki hann né þingflokkurinn myndi aðhafast frekar í málinu. Sigmundur hefur hinsvegar ekki viljað tjá sig opinberlega um málið. Það ætlar hann ekki að gera fyrr en forsætisnefnd hefur tekið málið fyrir á sínum fundi.


Tengdar fréttir

Sagður hafa hellt í sig víni

Gestir í kvöldverðarboði MP banka í síðustu viku segjast hafa orðið vitni að töluverðri áfengisneyslu Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem síðar um kvöldið flutti framsögu og tók þátt í umræðum á Alþingi um Icesave málið. Þetta kemur fram í DV í dag.

Leiðrétting: Þingflokksformaður ræddi sérstaklega við Sigmund

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar ræddi sérstaklega við Sigmund Erni Rúnarsson eftir eldræðu mikla sem hann hélt á fimmtudagskvöldinu síðasta. Samtal þeirra var í einrúmi en tilefnið var sérkennilega framganga Sigmundar í sölum Alþingis á fimmtudagskvöldinu síðasta.

Sigmundur Ernir: Næturgalsi í þingsalnum

„Upp úr klukkan tíu og fram til hálftólf var kominn mikill galsi í þingsalinn og orðafar manna eftir því," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar.

Árni Johnsen: Sigmundur Ernir hefur bara ákveðinn stíl

„Ég fann ekkert athugavert við hann,“ segir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi en hann sat í þingsal og hlustaði á eldræðu Sigmundar Ernis Rúnarssonar á fimmtudagskvöldinu.

Sigmundur Ernir: Drakk en kenndi ekki áhrifa

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, viðurkennir að hafa fengið sér léttvín með mat að loknu golfmóti sem hann tók þátt í á fimmtudaginn síðastliðinn. Síðar sama kvöld tók hann þátt í umræðum um Icesave samkomulagið.

„Fólk á ekki að vera drukkið í vinnunni“

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir sama gildi um þingmenn og aðra, þeir verði að halda sig við þær siðareglur sem gilda í samfélaginu. Hún segir það ekki vera sitt að taka afstöðu til þess hvort að Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, eigi að segja af sér þingmennsku.

„Loga ekki öll ljós í kolli háttvirts þingmanns"

„Það er nokkuð ljóst að það loga ekki öll ljós í kolli háttvirts þingmanns ef hann getur ekki munað tvær-þrjár spurningar sem beint er til hans hér úr ræðustól," sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttur, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í þingsal rétt fyrir hálftólf í gærkvöld.

Sonurinn ók kenndum Sigmundi í þingsal

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, viðurkenndi í dag að hafa drukkið áfengi áður en hann tók þátt í umræðum á Alþingi. Forseti Alþingis segir þingmenn bera ábyrgð á sjálfum sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×