Innlent

Jarðskjálftar við Bárðarbungu

Vatnajökull.
Vatnajökull.

Jarðskjálfti af stærð 3.4 á richter reið yfir norðaustanverða Bárðarbungu á Vatnajökli um klukkan átta í kvöld samkvæmt Veðurstofu Íslands. Nokkrir minni skjálftar fylgdu á eftir en sá stærsti var af stærð 2.6 á richter.

Dálítil virkni hefur verið á þessu svæði undanfarna viku, en lítil hrina varð þarna aðfararnótt laugardagsins 22. ágúst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×