Fleiri fréttir

Breiðavíkursamtökin fagna afsökunarbeiðni stjórnvalda

Félagsfundur Breiðavíkursamtakanna lýsir yfir innilegu þakklæti sínu fyrir afsökunarbeiðni Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, fyrir hönd stjórnvalda, til fyrrum vistmanna Breiðavíkurheimilisins og fjölskyldna þeirra.

Heildaafli á föstu verði eykst um 27 prósent

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, var 27 prósent meiri en í febrúar 2008. Aflinn nam alls 99.648 tonnum í febrúar 2009 samanborið við 85.808 tonn í sama mánuði árið áður. Þetta kemur fram á heimasíðu Hagstofunnar. Þar segir einnig að Botnfiskafli hafi aukist um tæp 1.900 tonn frá febrúar 2008 og nam 43.100 tonnum. Þorskafli jókst um rúm 3.000 tonn og karfaaflinn um rúm 2.300 tonn. „Ýsuaflinn dróst hins vegar saman um 3.200 tonn og ufsaaflinn um 2.000 tonn samanborið við febrúar 2008,“ segir einnig.

Þingrof tilkynnt í dag

Á þingfundi sem hefst klukkan hálfellefu er fyrsta mál á dagskrá tilkynning forsætisráðherra um þingrof og kosningar. Jóhanna Sigurðardóttir mun þá formlega tilkynna um þingrof og kosningar til Alþingis sem hafa verið boðaðar þann 25. apríl næstkomandi.

Allt að 200.000 börnum hætt við heimilisofbeldi

Allt að 200.000 bresk börn búa við þannig heimilisaðstæður að þeim er hætt við ofbeldi eða misnotkun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu breska félagsmálaráðuneytisins þar sem krafist er skjótra og raunverulegra úrbóta.

Tvö umferðaróhöpp í gærkvöldi

Allir sluppu ómeiddir úr tveimur umferðaróhöppum, sem urðu um svipað leyti á Suðurlandi í gærkvöldi. Fólksbíll eyðilagðist þegar honum var ekið upp á umferðareyju og á skilti á mótum Suðurlandsvegar og Biskupstungnabrautar. Annar eyðilagðist þegar hann valt út af veginum á Þingvöllum.

Sautján innbrot á Suðurlandi í vikunni

Innbrotsþjófar leika lausum hala á Suðurlandi og hefur lögreglunni á Selfossi verið tilkynnt um sautján innbrot í vikunni. Langflest innbrotin, eða tólf, eru í sumarbústaði, einkum í Brekkuskógi, Úthlíðarlandi og Reykjaskógi.

Biðst forláts á Jórunnarbréfi

Íþróttafélagið Þróttur hefur beðið félagsmenn afsökunar á því að póstlisti félagsins hafi verið notaður til að senda í gær út bréfið „Þróttara á þing“ frá Jórunni Frímannsdóttur sjálfstæðiskonu. Það hafi verið gert í hugsunarleysi.

Íslendingar getið fengið vinnu í Sviss

Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) hafa boðið í gerð stórrar vatnsaflsvirkjunar í Sviss ásamt þremur erlendum fyrirtækjum. Hópurinn átti lægsta boðið og stefnir því allt í að ÍAV verði þátttakendur í verkinu.

Borgin ætlar í hart við Landsbanka

Gamli Landsbankinn hafnaði í gær kröfu Reykjavíkurborgar um að bankinn greiði henni að andvirði 1,3 milljarða, sem borgin telur sig hafa átt í peningabréfum fyrir bankahrun. Einnig er því hafnað að færa féð yfir í sparibréf, eins og borgin hafði farið fram á föstudaginn 3. október, og fengið rafræna staðfestingu á að hefði verið gert.

Borgarahreyfing og L-listi ná ekki flugi

Nýju framboðin tvö myndu ekki ná manni inn á þing, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, hvort með um tveggja prósenta fylgi. Sýnir örugg tök fjórflokksins, segir prófessor í stjórnmálafræði. Lítil breyting hjá öðrum.

Segir ekki hve margir sóttu um

Fjármálaeftirlitið vill ekki gefa upp hversu margir sóttu um stöðu forstjóra eftirlitsins þar sem enn er beðið eftir umsóknum sem kunna að hafa verið póstlagðar.

Meirihluti vill Samfylkingu og Vinstri græn í ríkisstjórn

Rúm 54 prósent kjósenda vilja að Samfylking og Vinstri græn myndi ríkisstjórn eftir kosningar. Um 13 prósent vilja stjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Ekki mikill munur á afstöðu eftir kyni eða búsetu fólks.

Enginn útilokar beinlínis ESB-viðræður

Enginn talsmanna þingflokkanna útilokaði beinlínis ESB-viðræður á næsta kjörtímabili, á viðskiptaþingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, var einn um að lýsa miklum efasemdum sínum og telur að krónan kunni að gagnast Íslendingum best á næstu árum.

Mat á Icesave-ábyrgð kannski of bjartsýnt

Ekki eru allir sammála skilanefnd Landsbankans um að aðeins muni um 72 milljarðar af Icesave-ábyrgðunum falla á íslensku þjóðina, segir fjármálaráðherra. Siv Friðleifsdóttir vill tefja samningaviðræður og telur það okkur í hag.

Hótaði að skera varðstjóra á háls

Maður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í sekt fyrir að valda tjóni á íbúðarhúsi lögregluvarðstjóra í Vestmannaeyjum og hóta að skera hann á háls. Kona var einnig sektuð vegna athæfisins.

Óákveðið hvenær þing fer heim

Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær þingi verður frestað þótt ákvörðun hafi verið tekin um það að kosningar skuli fara fram 25. apríl næstkomandi. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun lesa úr forsetabréfi og tilkynna um kjördag í dag.

Borgin hagræðir með bakstri og hafragraut

Tillögum starfsmanna verður beitt til að ná fram hagræðingu hjá borginni. Meðal þeirra er að elda oftar hafragraut á leikskólum. Borgarfulltrúi minnihlutans er ósáttur við að dregið verði úr mannaflsfrekum viðhaldsframkvæmdum.

Kosning utan kjörfundar hefst þegar tilkynnt hefur verið um þingrof

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur ekki hafist fyrr en búið er að tilkynna um þingrof og kjördagur verið auglýstur formlega. Ráðgert er að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tilkynni um þingrof og þingkosningar 25. apríl þegar þingfundur hefst klukkan 10:30 í fyrrmálið.

Hefur efasemdir um að Jóhanna átti sig á ábyrgð sinni

Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að losaraleg túlkun á ýmsum grunnreglum stjórnskipunarinnar við myndun og síðan í störfum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur veki efasemdir um að Jóhanna átti sig á ábyrgð sinni sem forsætisráðherra.

Loftrýmisgæsla í fullum gangi - myndband

Danir hafa verið við loftrýmiseftirlit á Íslandi á vegum NATO frá því á mánudaginn. Fjórar F16 þotur eru á Keflavíkurflugvelli og á fimmta tug Dana eru hér á landi vegna eftirlitsins sem stendur í þrjár vikur.

Harmar kæru Nova - vill samræma verðskrár

Sigmar Vilhjálmsson, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Tals, harmar að Nova ætli að kæra Tal vegna greinar sem hann skrifaði í Morgunblaðið. Gjaldskrár símafyrirtækjanna eru ógegnsæjar að mati Sigmars og hann kallar eftir því að þær verði samræmdar.

Sendinefnd AGS fer á morgun

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem verið hefur hér á landi undanfarnar tvær vikur heldur af landi brott á morgun.

Vinstri grænir í Skandinavíu vilja róttækar breytingar

Stjórn Vinstri grænna í Kaupmannahöfn og suður Svíþjóð vill sjá róttækar breytingar í málefnum íslenskra námsmanna erlendis. Stjórnin hvetur Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, og stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til að umbylta því kerfi sem námsmenn lifa við í dag.

Samgöngumiðstöð að komast á skrið

Framkvæmdir við samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli gætu hafist síðar á árinu, samkvæmt viljayfirlýsingu sem búist er við að samgönguráðherra og borgarstjóri undirriti á næstu dögum.

Ísland numið árið 720 en ekki 874?

Fornleifafræðingar, sem grafa nú á alþingisreitnum, eru komnir niður á járngerðarofna sem benda til að endurskrifa þurfi Íslandssöguna og einhverjir hafi verið sestir að á undan Ingólfi Arnarsyni. Vísindamenn við Háskóla Íslands vonast til að geta með nýju aldursgreiningartæki svarað því með óyggjandi hætti innan árs hvort Ísland hafi verið numið 150 árum fyrr en almennt hefur verið talið.

Loftrýmiseftirlitið mikilvægt fyrir Dani

Danska þingið mat loftrýmisgæslu yfir Íslandi sem mikilvægt verkefni að sögn yfirmanns danskrar flugsveitar sem nú sinnir henni. Formaður nefndar sem vann áhættumat fyrir Ísland segir það hins vegar aðeins táknrænt en engin hernaðarógn steðji að Íslandi.

Fullkomin óvissa um frestun þingfunda fyrir kosningar

Fullkomin óvissa ríkir um frestun þingfunda fyrir kosningar, eftir að leiðtogum stjórnarflokkanna mistókst í dag að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna um afgreiðslu þingmála. Samkomulag náðist hins vegar um að tilkynna kjördag með formlegum hætti á Alþingi á morgun, þannig að utankjörfundaratkvæðagreiðsla geti hafist.

Samfylkingin stærst - lítill stuðningur við grasrótarframboð

Grasrótarframboðin nýju fá engan fulltrúa inn á Alþingi Íslendinga samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins á fylgi flokkanna. Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkur landsins og hefur fylgið lítið breyst eftir brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr stjórnmálum.

Raddir fólksins boða til útifundar

Samtökin Raddir fólksins, undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu, standa fyrir útifundi á Austurvelli laugardaginn 14. mars. Þetta er 23. vika útifundanna og 29. fundurinn á Austurvelli.

Fer ekki fram þátt fyrir áskoranir

Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður, hefur fengið áskoranir um að hún bjóði sig fram sem formaður Samfylkingarinnar á komandi landsfundi. Hún segir þó í samtali við fréttastofu að hún hafi engin áform um að snúa aftur í stjórnmál og ætli því ekki að bjóða sig fram til formanns.

Ríkið sýknað af fjögurra milljóna króna bótakröfu

Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu frá manni sem sat í gæsluvarðhaldi árið 2006 í Hæstarétti í dag. Maðurinn var handtekinn í tengslum við svokallað BMW-mál þar sem 15 kíló af amfetamíni og 10 kíló af kannabisefnum voru haldlögð í BMW bifreið sem kom hingað til lands. Maðurinn fór fram á fjórar milljónir í skaðabætur.

Dæmdur til vistunar á Sogni

Hæstiréttur staðfesti dóm yfir manni á þrítugsaldri sem var dæmdur fyrir þjófnað, fjársvik, nytjastuldur, rán, fíkniefnalagabrot og svo umferðarlagabrot. Maðurinn áfrýjaði dómum til Hæstarréttar þar sem hann var dæmdur til þess að afplána sjö mánaða dóm á viðeigandi stofnun þar sem hann er haldinn alvarlegum geðkvillum.

Verslun dróst saman um tugi prósenta í febrúar

Velta í raftækjaverslun dróst saman um 52,9% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra og um 28,9% á breytilegu verðlagi. Á síðasta ári minnkaði velta raftækjaverslana töluvert að raunvirði. Veltan í janúar síðastliðnum var þannig 45,2% minni en í janúar í fyrra, eftir því sem fram kemur í tölu Rannsóknarseturs verslunarinnar.

Þingrof líklega tilkynnt á morgun

Afgreiðsla mála hefur gengið hratt fyrir sig á Alþingi í dag, enda mikil áhersla lögð á að afgreiða sem flest mál áður en þing lætur af störfum fyrir kosningar. Þannig hafa þingmenn lokið fyrstu umræðu um þrettán mál og umræður standa nú yfir um hið fjórtánda. Annarri umræðu er lokið í tveimur málum og þingið hefur afgreitt eina þingsályktunartillögu. Að auki hafa ráðherrar svarað fyrirspurnum þingmanna og ein utandagskrárumræða hefur farið fram. Líklegt er talið að þingrof verði tilkynnt á morgun.

Mikill verðmunur á fiski

Mikill munur er á fiskverði á milli verslana og eru dæmi um að hægt sé að spara sér yfir helming þegar fiskur er keyptur í soðið. Í nýrri könnun ASÍ sést að kílóið af þorski getur kostað allt frá 690 krónum upp í 1.490 krónur.

Meintir kannabisræktendur lausir úr haldi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mjög umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Skipasundi í gærkvöld, eftir því fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.

Endurreisn efnahagslífsins hafin

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur að stjórnvöld séu komin með miklu víðtækara hlutverk í efnahagslífinu en staðið hafði til og miklu stærra hlutverk en ríkissjóður ætti að hafa. Þetta sagði ráðherrann á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands sem haldið var um helgina. Hún gerði líka ábyrgð á bankahruninu að viðfangsefni.

VG leigja af Kristjáni í hvalnum

„Við leigjum þarna á annarri hæðinni," segir Gestur Svavarsson formaður kjördæmisráðs Vinstri grænna í suðvesturkjördæmi. Vinstri Grænir leigja skrifstofuhúsnæði á Strandgötu 11 í Hafnarfirði.

Samningur við Cayman-eyjar til að stöðva skattaflótta

Eftir umfangsmikla undirbúningsvinnu var í síðustu viku gengið frá samkomulagi milli aðildarríkja Norrænu ráðherranefndarinnar og Cayman-eyja um undirritun upplýsingaskiptasamnings. Samningurinn er liður í sameiginlegri viðleitni samningsaðilanna til að stöðva skattaflótta.

Vísa reiknikúnstum Samfylkingarinnar á bug

Fulltrúar meirihlutans í borgarráði vísa fullyrðingum og reiknikúnstum Samfylkingarinnar, sem koma fram í bókun Samfylkingarinnar um fjármagnskostnað vegna Laugavegar 4 og 6 á bug. Líkt og fram kom í frétt á Vísi fyrr í dag segir Samfylkingin að tap á uppkaupum á húsunum við Laugaveg 4 og 6 verði rúmur hálfur milljarður. Þetta kom fram í bókun Samfylkingarinnar eftir svar borgarstjóra við fyrirspurn vegna húsanna.

Borginni tókst að skera niður um 2,3 milljarða

Tillaga að endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 var lögð fram í borgarráði í dag. Endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 hófst strax í byrjun janúar með það að markmiði að mæta 2,3 milljarða króna hagræðingarkröfu.

Yfir hálfur milljarður tapast vegna Laugavegs 4 og 6

Tap Reykjavíkurborgar vegna uppkaupa húsanna við Laugaveg 4 og 6 fyrir ári síðan verður meira en 500 milljónir króna. Kostnaðurinn við uppkaupin er orðinn hátt í 700 milljónir en þetta kemur fram í bókun Samfylkingarinnar í borgarráði í dag.

Sjá næstu 50 fréttir