Innlent

Allt að 200.000 börnum hætt við heimilisofbeldi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Gjafir gefnar í minningu drengsins „P“ sem fannst látinn á heimili sínu í ágúst 2007 eftir að hafa sætt ofbeldi alla sína 18 mánaða löngu ævi.
Gjafir gefnar í minningu drengsins „P“ sem fannst látinn á heimili sínu í ágúst 2007 eftir að hafa sætt ofbeldi alla sína 18 mánaða löngu ævi. MYND/Telegraph/Paul Grover
Allt að 200.000 bresk börn búa við þannig heimilisaðstæður að þeim er hætt við ofbeldi eða misnotkun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu breska félagsmálaráðuneytisins þar sem krafist er skjótra og raunverulegra úrbóta. Eins kemur fram að 350.000 börn eigi foreldra sem stríði við alvarleg fíkniefnavandamál og 1,3 milljónir barna eigi ofdrykkjufólk sem foreldra. Tímabilið 2007 til 2008 voru 55 börn í Bretlandi myrt af foreldrum eða ættingjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×