Innlent

Stórhækkuð gjöld fyrir vistun hesta

Gjöld fyrir að vista hesta á höfuðborgarsvæðinu hafa hækkað gríðarlega frá því í fyrra og mörg dæmi eru um að fólk fækki hrossum sínum eða hætti alveg í hestamennsku.

Algengt gjald fyrir að hýsa einn hest á mánuði, með fóðri og sagi í stíuna, var 15 til 18 þúsund í fyrra en er nú gjarnan á bilinu 25 til 30 þúsund. Kostnaðurinn hefur því nokkurn veginn tvöfaldast á einu ári. Algengt er að hestar séu hafðir á húsi í um það bil sex mánuði á ári og er kostnaður vegna þess fyrir einn hest þá kominn upp í 150 til 180 þúsund á vetri í staðinn fyrir 90 til 110 þúsund krónur í fyrra.

Þeir sem reka svona þjónustu bera við stórhækkuðu verði á heyi og sagi, auk þess sem aðrir rekstrarliðir hafi allir hækkað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×