Fleiri fréttir

Extra Bladet safnaði fyrir Íslendinga

Extra Bladet hendir gaman að ástandinu á Íslandi og stóð fyrir söfnun fyrir eldfjallaeyju í kreppu sem rann á rassinn, eins og það er orðað.

Varað við fljúgandi hálku

Fljúgandi hálka er á Hellisheiði og þar hafa bílar farið út af. Einn hefur auk þess oltið og annar ekið á vírgirðingu á milli akreina, en enginn hefur slasast.

Banki í gjörgæslu Fjármálaeftirlitsins

Stjórn Landsbankans hefur verið vikið frá. Hluthafar bankans tapa öllu sínu. FME tryggir áframhaldandi rekstur í skjóli nýrra laga. Óvíst að staðan hefði komið upp með láni frá Bandaríkjamönnum, segir fjármálaráðherra.

Welding áfram forstjóri Glitnis

Glitnir banki hf. tilkynnir hér með að Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að taka yfir vald hluthafafundar Glitnis banka hf. og víkja félagsstjórn í heild sinni frá störfum þegar í stað. FME hefur skipað skilanefnd sem tekur við öllum heimildum stjórnar þegar í stað.

Íslendingar ættu að leita ráða hjá Norðmönnum

Íslendingar ættu að leita til Norðmanna eftir ráðgjöf í þeim þrengingum sem nú standa yfir í landinu, segir Rögnvaldur Hannesson, professor við Viðskiptaháskóla Noregs. Rætt er við hann á norska viðskiptavefnum e24.no þar sem farið er yfir atburði dagsins og þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að leita til Rússa um lán.

Stoltenberg vill veita Íslandi 500 milljóna evra lán

Í Kastljósi Sjónvarpsins kom fram að Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs héldi því fram að Noregur væri til í að veita Íslandi 500 milljón evra lán. Davíð Oddsson seðlabankastjóri sem þar var í viðtali svaraði því þannig til að allt væri hey í harðindum.

Þýskir fíkniefnasmyglarar áfram í gæsluvarðhaldi

Þýskur karlmaður á sjötugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna.

Norðmenn vilja íslenska vini

Forsætisráðherra segir Íslendinga hafa þurft að leita sér nýrra vina í þrengingunum núna, eftir að rótgrónir vinir hafi ekki rétt hjálparhönd. Iðnaðarráðherra segir Bandaríkin gefa Íslendingum fingurinn. Fjármálaráðherra Noregs segir Norðmenn tilbúna í viðræður um aðstoð, en íslensk stjórnvöld hafi ekki leitað eftir henni.

Lögreglan leitar enn tveggja manna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn tveggja manna sem eru grunaðir um rán og líkamsárás á Laugavegi um hálffjögurleytið aðfaranótt sunnudags.

Ætlum að verja fjölskyldurnar í borginni

Aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar vegna breytinga í fjármála- og atvinnuumhverfi var samþykkt samhljóða í borgarstjórn fyrr í dag með öllum greiddum atkvæðum. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir samstöðuna sem náðist um málið í borgarstjórn skipta miklu máli.

Ölgerðin lækkar verð

Frá og með deginum í dag mun Ölgerðin lækka verð á öllum innfluttum mat og sérvörum um sex til níu prósent.

Auglýsa Ísland sem ódýran áfangastað

Forsvarsmenn Icelandair hafa hrint af stað auglýsingaherferð á markaðssvæðum sínum í útlöndum þar sem fólki er bent á að hversu hagkvæmur áfangastaður Ísland er orðið.

Meta þörfina fyrir fjármálaþjónustumiðstöð

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, segir að fullur kraftur sé í vinnu ráðuneyta, stofnanna og ýmissa samstarfsaðila til að samræma og tryggja ráðgjöf og þjónustu við þá sem þurfa á slíku að halda vegna þeirra fjármálaþrenginga sem nú ganga yfir.

Emergency law

On October 6th Icelandic Parliament passed an emergency law due to special circumstances on the financial market. The law took effect immediately.

SA stofna vinnuhóp til að fylgjast með ástandinu

Samtök atvinnulífsins hafa stofnað vinnuhóp til að fylgjast með afleiðingum fjármálakreppunnar fyrir atvinnulífið í landinu. Í tilkynningu frá SA segir að vinnuhópurinn sé skipaður fulltrúum allra aðildarsamtaka SA og fulltrúa Viðskiptaráðs Íslands.

Lögreglan í Færeyjum leitar íslenskrar konu

Lögreglan í Færeyjum leitar nú íslenskrar konu sem er 61 árs gömul og úr Hafnarfirði. Ekkert hefur spurt til hennar síðan á laugardag. Hún átti bókað flug til Íslands í gærkvöld en skilaði sér aldrei í flugið. Kringvarp Forøyja segir að konunnar sé leitað bæði á sjó og landi. Bátar, þyrla og leitarhundar séu notaðir við leitina.

Gjaldskrár óbreyttar í Reykjavík

Aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar vegna breytinga í fjármála- og atvinnuumhverfi var samþykkt samhljóða í borgarstjórn fyrr í dag með öllum greiddum atkvæðum.

Óskynsamlegt að lýsa yfir auknum þorskkvóta

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að það yrði mjög óskynsamlegt af sinni hálfu að lýsa því yfir að til stæði að auka þorskkvóta. Slíkar ákvarðanir eigi sjávarútvegsráðherra að taka á grundvelli ráðlegginga vísindamanna.

Fjármagn fyrir seinni áfanga álvers tryggt

Forsvarsmenn Norðuráls sem vinna að því að byggja álver í Helguvík segja ekkert að vanbúnaði fyrir fyrirtækið að ráðast í seinni áfanga álversins, fjármagn sé tryggt. Í tilkynningu frá Reykjanesbæ segir að framkvæmdir við byggingu kerskála hafi hafist í september og að þær gangi samkvæmt áætlun.

Óttast um hag sinn og fjölskyldna sinna

Starfsfólk í Landsbankanum er uggandi yfir sínum hag eftir að skilanefnd á vegum Fjármálaeftirlitsins tók yfir stjórn Landsbankans í samræmi við nýsamþykkt lög.

Yoko Ono til Íslands á morgun

Yoko Ono, ekkja bítilsins Johns Lennon, er væntanleg til landsins á morgun til að afhenda friðarverðlaun Lennon-Ono og tendra ljósið á friðarsúlunni í Viðey.

Fjárhagsáhyggjur fólks aukast

Fleiri Íslendingar leita sér aðstoðar vegna kvíða tengdum fjárhagsáhyggjum samkvæmt Sigurbjörgu Jónu Ludvigsdóttur hjá Kvíðameðferðarmiðstöðinni.

Búast við sprengingu í fjölda ferðamanna

Ísland er í kjölfar algjörs hruns krónunnar orðinn einn hagkvæmasti áfangastaður ferðamanna. Þetta segir blaðamaður This is London, og hefur það eftir sérfræðingum að búist sé við "minniháttar sprengingu" í straumi ferðamanna til landsins.

Lífeyrisréttindi skerðast vegna kreppunnar

Eignir lífeyrissjóða landsins munu rýrna vegna ástands á fjármálmörkuðum og neyðarlaga Alþingis sem þýðir að lífeyrisréttindi skerðist á næsta ári.

Geir: Allar gáttir opnar hjá íslenskum stjórnvöldum

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld hafi allar gáttir opnar til þess að styrkja gjaldeyrisvaraforða landsins í því umróti sem nú er. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Össur: Bandaríkjamenn sýndu okkur fingurinn

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og starfandi utanríkisráðherra, segir Bandaríkjamenn hafa sýnt Íslendingum fingurinn þegar leitað hafi verið eftir aðstoð bandarískra stjórnvalda við þeim efnahagsþrenginum sem ganga yfir landið.

Annar árásarmannanna handtekinn

Búið er að handtaka annan mannanna sem grunaðir eru um að hafa barið og rænt mann á sjötugsaldri á Laugarvegi aðfaranótt sunnudags. Ekki er búið að yfirheyra manninn, og samverkamanns hanns er enn leitað.

Tyggjótrúður tekinn úr umferð

Kjörís hefur ákveðið að kalla inn ísinn Tyggjótrúð og hætta framleiðslu hans í núverandi mynd eftir atvik á dögunum. Þá var þriggja ára drengur hætt kominn þar sem tyggjókúla úr ísnum stóð föst í hálsi hans.

Afrek að tryggja áframhaldandi starfsemi Landsbankans

Það var mikið afrek unnið við það að stýra Landsbanka Íslands frá þroti og að tryggja það að Landsbankinn opnaði með eðlilegri starfsemi i morgun. Þetta sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra á blaðamannafundi sem hann og Geir Haarde forsætisráðherra héldu sameiginlega í Iðnó klukkan ellefu.

Geir: Þegar gamlir vinir bregðast þarf að leita nýrra

Geir Haarde forsætisráðherra segir að vinaþjóðir okkar hafi brugðist síðustu daga og því verði menn að leita sér nýrra vina. Á blaðamannafundi í Iðnó þar sem Geir svaraði spurningum erlendra blaðamanna var hann spurður hvers vegna leitað hafi verið til Rússa um gjaldeyrislán.

Breytingarnar á bankanum gerðar í góðri sátt

Halldór J. Kristjánsson, annar bankastjóra Landsbanka Íslands, segir að breytingarnar sem hafi verið gerðar á stjórn bankans í morgun séu gerðar í góðu samstarfi við stjórn bankans og bankaráð.

Ekki búið að ganga frá láni frá Rússum

Ekki er búið að ganga frá fjögurra milljarða evra láni frá rússneskum yfirvöldum sem tilkynnt var um í morgun. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Iðnó fyrir stundu.

Hagar fagna ákvörðun stjórnvalda um fast gengi krónunnar

Hagar fagna ákvörðun stjórnvalda um að gengi krónunnar sé fest tímabundið og aðgangur að gjaldeyri sé tryggður. Það er von Haga að þessi aðgerð leiði síðan til styrkingar íslensku krónunnar þannig að verðbólguþróun undanfarna mánuði snúist í verðhjöðnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Finni Árnasyni, forstjóra Haga.

Geðsvið Landspítalans styrkt

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fól í gærkvöld forstjóra Landspítala að hefja undirbúning að því að styrkja og undirbúa geðsvið spítalans þannig að það geti sem best þjónað þeim einstaklingum sem þurfa aðstoð til að takast á við erfiðleika sem upp koma vegna núverandi aðstæðna á fjármálamarkaði.

Sjá næstu 50 fréttir