Fleiri fréttir

Ekkert í svörum ESA sem gerir kröfu um aðskilnað lána hjá Íbúðalánasjóði

Í svörum Eftirlitsstofnunar EFTA við fyrirspurnum Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns Vinstri - grænna, er ekkert að finna sem gerir kröfu um að Íbúðalánasjóður aðskilji félagsleg og almenn lán. Þetta fullyrti þingmaðurinn á Alþingi í dag. Formaður félags- og tryggingamálanefndar segir engar stórbreytingar á sjóðnum í pípunum.

Meintur mannræningi ákærður fyrir þjófnað á 0,2 tonnum af humri

Liðlega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að brjótast inn í frystigám í eigu fyrirtækisins Atlastaðafisks ehf sem stóð við Fitjabraut í Reykjanesbæ og stela þaðan 170 kílógrömmum af humri, að áætluðu verðmæti 680 þúsund krónur.

Í fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í eins mánaðar fangelsi fyrir ölvunarakstur en þetta var í þriðja sinn sem hann var dæmdur fyrir slíkt brot.

Grunur um brot á útlendingalögum

Aðgerð lögregluyfirvalda við dvalarstaði hælsileitenda í Njarðvíkum er lokið en ráðist var til inngöngu á grundvelli úrskurða Héraðsdóms Reykjaness eftir því sem segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum.

Enn leitað að hættulegum manni

Lögregla leitar enn að liðlega þrítugum útlendingi sem hún lýsti formlega eftir í gær vegna líkamsárásar í húsi við Mánagötu um síðustu helgi. Maðurinn, sem heitir Ivan Konovalenko, er sagður hættulegur og mun eiga afbrotaferil í heimalandi sínu.

Hvalurinn sem hvarf

Hvalurinn, sem rak upp í fjöru í Þernuvík, innst í Ísafjarðardjúpi í gær, var á bak og burt þegar lögreglan á Ísafirði kom á vettvang. Þetta var hnúfubakur og göntuðust viðmælendur Fréttastofunnar með það að hvalurinn hafi líklega haft eitthvað misjafnt á samviskunni og forðað sér áður en lagannna verðir komu á vettvang.

Skriða lokaði veginum um Fagradal

Vegurinn um Fagradal á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar lokaðist í gærkvöldi vegna skriðufalla. Mikið vatnsveður var eystra í gær og dæmi eru um skriðuföll á þessum slóðum í miklum rigningum.

Annað verkfall ljósmæðra hafið

Tveggja sólarhringa verkfall ljósmæðra hófst á miðnætti eftir árangurslausan samningafund þeirra með fulltrúum ríkisins í gær.

Þorgerður Katrín heiðrar Norðurlandameistara

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, býður Norðurlandameisturum grunnskóla í skák 200, skáksveit Rimaskóla, til móttökuathafnar í Þjóðmenningarhúsinu á morgun fimmtudag.

Samfylkingin er múlbundin Sjálfstæðisflokknum

Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, segir að Samfylkingin sé múlbundin Sjálfstæðisflokknum. Hann segir í nýlegum pistli á heimasíðu sinni merkilegt að Samfylkingin hafi staðið að frumvarpi til laga um sjúkratryggingar sem varð að lögum í dag. Þingmenn Framsóknarflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Guðjón óttast ekki Sigurjón

Guðjón Arnar Kristjánsson hræðist ekki slag um formannsembætti Frjálslynda flokksins á næsta landsþingi flokksins. ,,Ég hef aldrei óttast kosningar og ég hef aldrei farið á tauginni yfir einni einustu kosningu," segir Guðjón og kveðst ekki hafa hug á að byrja á því núna.

Ný þjóðarsátt?

Ný þjóðarsátt kann að vera í uppsiglingu. Samtök atvinnulífsins hafa kynnt forystumönnum í verkalýðshreyfingunni svokallað tólf punkta plagg þar sem fram koma hugmyndir um hvernig megi ná jafnvægi í efnahagsmálum.

Lögreglan lýsir eftir manni sem grunaður er um líkamsárás

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir liðlegan þrítugum manni, Ivan Konovalenko, sem grunaður um stórfellda líkamsárás í húsi í Norðurmýri í Reykjavík um síðustu helgi en þar var maður stunginn með hnífi. Hinn eftirlýsti er talinn hættulegur, að sögn lögreglunnar.

Dóp og sterar finnast í húsleit

Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti í gærmorgun en um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á umtalsvert magn af sterum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Gæsluvarðhald staðfest vegna hnífstunguárásar

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að pólskur karlmaður, sem grunaður er um að hafa átt aðild að hnífstunguárás á samlanda sinn á Mánagötu á sunnudag, skuli sæta gæsluvarðhaldi fram á föstudag.

Einn handtekinn til viðbótar vegna árásar á Mánagötu

Einn þeirra sem lögregla hefur leitað að vegna hnífstunguárásar á Mánagötu á sunnudag hefur verið handtekinn. Í fyrradag voru tveir karlmenn úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna sama máls en lögregla hafði fjóra pólska menn grunaða vegna málsins og voru tveir þeirra úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær til 12. september. Þriðji maðurinn er nú í yfirheyrslum en lögregla leitar enn þess fjórða.

Fjármálaráðherra: Skuld við Impregilo kann að vera óveruleg

Fjármálaráðherra segir að skuld ríkisins við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo kunni að vera óveruleg og því hafi ekki verið gert upp við fyrirtækið. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri - grænna.

Reynslulausn mikilvægt úrræði

Páll Winkel forstjóri fangelsismálastofnunar vísar allri gagnrýni á að kynferðsiafbrotamenn fái reynslulausn á bug.

Munnlegur málflutningur um skipan verjanda Jóns Ólafssonar

Munnlegur málflutningur var í máli ákæruvaldsins gegn Jóni Ólafssyni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Við málflutninginn fékk Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Jóns, tækifæri til þess að útskýra hvers vegna ætti einnig að skipa Sigurð G. Guðjónsson sem verjanda Jóns.

Sjúkratryggingafrumvarp samþykkt á þingi

Frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar, sem gerir ráð fyrir sérstakri Sjúkratryggingastofnun sem kaupanda heilbrigðisþjónustu, var samþykkt á Alþingi fyrir stundu með 36 atkvæðum gegn sex. Sex þingmenn sátu hjá.

Skotar mála bæinn rauðan

Fjöldi stuðningsmanna skoska landsliðsins í knattspyrnu hefur lagt leið sína í miðborg Reykjavíkur í dag. Mikil stemning er í mönnum enda fer keppa Skotar við Íslendinga í kvöld á Laugardalsvelli í undankeppni HM. Skotarnir sjá ekkert annað fyrir sér en sigur í leiknum.

Ríkisstjórn 120 - þingmenn 2

Af 145 stjórnarfrumvörpum sem lögð hafa verið á yfirstandandi þingi hafa 120 orðið að lögum en einungis tvö af 74 þingmannafrumvörpum hafa verið samþykkt. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns Vinstri - grænna, á Alþingi í dag þar sem hún vakti athygli á veikri stöðu þingsins.

Jóhanna snýr heim frá Peking

Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra fylgdist með keppni í langstökki á Ólympíuleikum fatlaðra í gær. Þar keppti Baldur Ævar Baldursson fyrir Íslands hönd og hafnaði í 7. sæti.

Lofar kyrrð í borginni næstu tvö árin

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri lofaði kyrrð í borginni næstu tvö árin á hádegisverðarfundi í Valhöll í dag. Þar sat hún fyrir svörum ásamt Óskari Bergssyni, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, þar sem þau kynntu stefnu nýs meirihluta.

Sjá næstu 50 fréttir