Fleiri fréttir

Óskar áhyggjulaus yfir setu Guðlaugs í borgarráði

Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segist engar áhyggjur hafa af vangaveltum um hvort varamaður hans í borgarráði, Guðlaugur Sverrisson, megi sitja í ráðinu. Á borgarráðsfundi í morgun var lagt fram álit skrifstofustjóra borgarstjórnar þar sem kemur fram að reglur í varðandi gjaldgengi varamanna í borgarráði séu óljósar. Guðlaugur var á lista framsóknarmanna fyrir síðustu kosningar en hann er hins vegar ekki varamaður Óskars Bergssonar. Málinu hefur verið vísað til forsætisnefndar og segist Óskar þess fullviss að málið verði til lykta leitt þar.

Bílasali sakar samkeppnisaðila um brot á neytendalögum

„Aðferðir Bílalands (Bílaoutlet) eru að hækka ásett verð bifreiða upp og sýna sem hæstan afslátt við sérstakt verð sem er að svínnvirka hjá þeim,“ segir Þröstur Karelsson, sölustjóri Bílamarkaðsins í Kópavogi, og telur að með þessu brjóti Bílaland neytendalög.

Áskriftarblöð munu aldrei ná fyrri styrk

Áskriftarblöð eins og Morgunblaðið munu aldrei ná sínum fyrri styrk í samkeppninni við fríblöð. Hins vegar eru ágætar líkur á að bæði íslensk fríblöð og áskriftarblöð lifi krepputímana af, þrátt fyrir örlög Nyhedsavisen, segir sérfræðingur.

Harmar að Breiðavíkursamtökin hafi kynnt frumvarpsdrög um bætur

Forsætisráðuneytið harmar að Breiðavíkursamtökin skuli hafa valið þá leið að kynna fyrirliggjandi drög að frumvarpi um bætur til fyrrverandi vistmanna á Breiðavík í fjölmiðlum án þess að leita samþykkis eða samráðs um slík. Þetta kemur fram á vef forsætisráðuneytisins og þar er jafnframt sagt að frumvarpsdrögin séu vinnuskjal.

Spurt um Breiðavíkurmálið í borgarráði

Á borgarráðsfundi sem lauk á tólfta tímanum í dag lögðu fulltrúar minnihlutans í ráðinu fram fyrirspurn sem snýr að afdrifum Breiðavíkurmálsins svokallaða í borgarkerfinu. Í mars var samþykkt að taka málið til ítarlegrar skoðunnar innan borgarinnar og vilja minnihlutamenn nú fá að vita hvernig þeirri úttekt hefur miðað.

Stjórn Landsvirkjunar einhuga um nafnleynd

Stjórn Landsvirkjunar telur að það kunni að draga úr umsóknum hæfra einstaklinga verði opinberað hverjir sækja um forstjórastöðu fyrirtækisins, að sögn Ingimundar Sigurpálssonar stjórnarformanns Landsvirkjunar. ,,Ég heyrði engar mótbárur við því að þessi leið væri farin í stjórninni. Þetta er mjög almennt viðhorf."

Ólafur Ragnar heimsótti Peres og Abbas

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átti í gær fundi með Shimon Peres forseta Ísraels og Mahmoud Abbas forseta Palestínustjórnarinnar. Á fundunum var fjallað um friðarhorfur í Mið-Austurlöndum, samningaviðræður undanfarna mánuði og hvernig sagan sýnir að smá ríki geti stuðlað að sáttargjörð og friðarsamningum, að því er segir í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Strætó fær rauða akrein

Malbikunarframkvæmdir fara fram í dag á Miklubraut þar sem verið er að malbika sérakrein fyrir strætisvagna með rauðu malbiki. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem notað er rautt sérinnflutt granít frá Skotlandi. Malbikið er blandað járnoxíði þannig að sem rauðastur litur fáist á yfirborð vegarins. „Með þessu er verið að tryggja að rauði liturinn haldist þegar malbikið slitnar,“ segir Ólafur Ólafsson, deildarstjóri framkvæmda hjá Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar.

Hafa opnað neyðarlínu fyrir verðandi mæður

Tveggja sólarhringa verkfall ljósmæðra hófst á miðnætti og er nú neyðaráætlun í gildi. Ljósmærðafélag Íslands hefur opnað símanúmer, og kallar það rauðu línuna.

Lést um borð í fiskibáti

Karlmaður á sjötugsaldri lést um borð í litlum fiskibáti í gærkvöldi og rak bátinn upp í fjöru á Geldinganesi við Grafarvog í Reykjavík.

Lögguhrotti fékk of vægan dóm

Dómurinn yfir manninum, sem réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í apríl, er of mildur að mati Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík. Ágúst Fylkisson var í morgun dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fjóra skilorðsbundna, fyrir alvarlega líkamsárás á lögregluþjón eftir mótmæli vörubílstjóra í vor.

Bætur til Breiðavíkurdrengja minni en vænst var

Bætur til þeirra sem vistaðir voru á Breiðavíkurheimilinu sem drengir, á árunum 1959-1972, verða frá 375 þúsund krónum, upp í rúmar 2 milljónir, eftir því sem fram kom í fréttum Ríkissjónvarpins.

Ákærð 10-11 lögga enn við störf

Lögreglumaðurinn sem réðst á pilt í apríl síðastliðnum er enn við störf hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Geirs Jóns Þórissonar yfirlögregluþjóns.

Lést af völdum höfuðáverka við Skúlagötu

Bráðabirgðaniðurstöður krufningar hafa staðfest að maðurinn sem fannst látinn í íbúð sinni við Skúlagötu í fyrrakvöld lést af völdum höfuðáverka. Þetta staðfestir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Íslenskur augnlæknir slær í gegn

Einar Stefánsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Landspítalans, fær svokölluð Jules Gonin verðlaun á þessu ári.

10-11 lögga ákærð fyrir brot í starfi

Ríkissaksóknari hefur ákveðið að gefa út ákæru á hendur lögreglumanni sem á myndbandi á vefnum YouTube sést taka ungan pilt kverkataki í verslun 10-11 í Grímsbæ.

Neyðarástand gæti skapast strax í nótt

Formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands segir að neyðarástand geti skapast strax í nótt komi til verkfalls ljósmæðra eins og allt stefnir í.

Þorsteinn Kragh laus úr haldi

Þorsteinn Kragh, athafnamaðurinn sem setið hefur í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að stóra hassmálinu svokallaða, er laus úr haldi. Hann hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag en Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu lögreglu um að framlengja gæsluvarðhaldið. Þorsteinn var hins vegar úrskurðaður í farbann til 9. október. Lögregla hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar.

Nærri 20 kíló af hassi og tvö kíló af amfetamíni í smyglbíl

Tæplega 20 kíló af hassi og nærri 1,8 kíló af amfetamíni reyndust í bílnum sem lögregla og tollayfirvöld stöðvuðu við komuna til landsins með Norrænu í gær. Efnið hefur nú verið flutt til Reykjavíkur og var í dag sýnt fjölmiðlum en athygli vekur að hluti efnanna var falinni í niðursuðudós.

Margrét Frímannsdóttir: Sólskin og rólegheit á Litla Hrauni

Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla Hrauni segir að menn ættu að varast að vera með oftúlkanir og lýsingar sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum þegar kemur að fangelsinu. Á forsíðum Fréttablaðsins og DV er fjallað um átök á milli manna á Litla Hrauni og sagt í DV að Pólstjörnufangarnir, sem dæmdir voru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl í febrúar svokölluðu hafi tekið völdin í fangelsinu. Margrét segir lífið ganga sinn vanagang á Hrauninu.

Sprengingar hefjast í Bolungarvík

Fyrsta sprengjuhleðslan í Bolungarvíkurgöngum verður sprengd seinnipartinn á morgun. Sprengt verður Bolungarvíkurmegin og mun Kristján L. Möller, samgönguráðherra, sprengja fyrstu hleðsluna.

Hluti fíkniefna falinn í niðursuðudós

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leyfði í dag fjölmiðlum að mynda fíkniefnin sem haldlögð voru hjá öldruðum Þjóðverja sem kom til landsins með Norrænu í gær.

Óheppilegt að gera róttækar breytingar á starfsumhverfi banka nú

Geir H. Haarde forsætisráðherra telur það óheppilegt við þær aðstæður sem uppi eru núna að gera róttækar breytingar á starfsumhverfi bankanna. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag.

„Þegiðu nú, Guðni“

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, sagði samstarfsfélaga sínum úr stjórnarandstöðu, Guðna Ágústssyni, formanni Framsóknarflokksins, að þegja við umræður um orku- og stóriðjumál á Alþingi í dag.

Heræfingar fram yfir ljósmæður

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna, sagði í umræðum á þingi fyrr í dag að ríkisstjórnin tæki heræfingar fram fyrir samning við ljósmæður.

Segir Samfylkinguna beita Albaníuaðferðinni

Að mati Magnúsar Stefánssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, vekur athygli hversu opinskáir þingmenn og ráðherrar Samfylkingarinnar eru í gagnrýni sinni á störf sjálfstæðismanna í fyrri ríkisstjórnum.

Þrengra um vik að leiðrétta laun vegna efnahagsástands

Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir að vegna stöðunnar í efnahagsmálum sé þrengra um vik að gera leiðréttingar á launum ríkisstarfsmanna eins og ljósmæðra. Þetta kom fram við fyrirspurnartíma á Alþingi nú eftir hádegið þar sem yfirvofandi verkfall ljósmæðra var rætt.

Sigurbjörn jarðsunginn á laugardaginn

Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, sem andaðist 28. ágúst verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju á laugardaginn klukkan 14. Sjónvarpað og útvarpað verður frá athöfninni.

Þrír teknir grunaðir um stórfellda þjófnaði

Lögregla lagði í gær hald á mikið magn þýfis sem stóð til að senda úr landi. Upp komst um málið þegar lögregla rannsakaði þjófnað í raftækjaverslun í Holtagörðum. Sá verknaður náðist á myndband og í framhaldi af því var einn maður handtekinn.

Hækka verð á fóðri um sömu upphæð

Fyrirtækin Lífland og Fóðurblandan, sem annast nær allan innflutning og dreifingu á fóðri til bænda, hafa bæði hækkað flutningsgjöld á fóðri, og það um sömu upphæð, eða 9,3 prósent.

Hundrað milljónir í heræfingar

Kostnaður Íslendinga vegna Norður Víkings, heræfingarinnar sem nú stendur yfir, er um fimmtíu milljónir króna. Þetta kemur fram í 24 stundum í dag.

Sjá næstu 50 fréttir