Innlent

Sprengingar hefjast í Bolungarvík

Kristján L. Möller, samgönguráðherra, og Bolvíkingurinn, Einar K. Guðfinnsson.
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, og Bolvíkingurinn, Einar K. Guðfinnsson.

Fyrsta sprengjuhleðslan í Bolungarvíkurgöngum verður sprengd seinnipartinn á morgun. Sprengt verður Bolungarvíkurmegin og mun Kristján L. Möller, samgönguráðherra, sprengja fyrstu hleðsluna.

Samkvæmt útboði skal verkinu vera að fullu lokið 15. júlí árið 2010. Jarðvinna hófst við gangamunnana beggja vegna í júlí.

Heildarkostnaður við göngin og önnur samgöngumannvirki í tengslum við framkvæmdina er áætlaður fimm milljarðar króna.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×