Innlent

Margrét Frímannsdóttir: Sólskin og rólegheit á Litla Hrauni

Margrét Frímannsdóttir.
Margrét Frímannsdóttir.
Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla Hrauni segir að menn ættu að varast að vera með oftúlkanir og lýsingar sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum þegar kemur að fangelsinu. Á forsíðum Fréttablaðsins og DV er fjallað um átök á milli manna á Litla Hrauni og sagt í DV að Pólstjörnufangarnir, sem dæmdir voru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl í febrúar svokölluðu hafi tekið völdin í fangelsinu. Margrét segir lífið ganga sinn vanagang á Hrauninu.

„Það er sólskin hérna og rólegheit og allir úti að vinna eða í skóla," segir Margrét. „Auðvitað geta átt sér stað atvik í fangelsum, það eru engir kórdrengir hér, en menn skulu varast að vera með oftúlkanir og lýsingar sem eiga sér ekki stoð í sannleikanum," segir hún og segir að ekki hafi borið á meiri óróleika innan veggja Litla Hrauns síðustu daga. Hún vill þó ekki ræða málefni einstakra fanga. „Það er alltaf erfitt þegar eitthvað kemur upp á en við tökum á því með hörku þegar eitthvað kemur upp á og svo fellur lífið yfirleitt strax í sínar skorður."

Að sögn Margrétar kemur að sjálfsögðu fyrir að menn vistist saman á Litla Hrauni sem eigi sér einhverja sögu utan múrana, jafnt góða sem slæma. Hún bendir á að félagsráðgjafar og sálfræðingar frá Fangelsismálastofnun taki á málunum ef slíkt kemur upp í samvinnu við málsaðila, „og oftast tekst það mjög vel," segir Margrét.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×