Innlent

Slapp lítið meiddur í bílveltu á Hafravatnsvegi

MYND/Anton

Ökumaður jepplings slapp lítið meiddur þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Hafravatnsvegi við Geitháls um hádegisbil með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar og valt.

Slökkvilið og sjúkrabílar voru sendir á vettvang og þurfti að beita klippum til þess að losa ökumanninn úr bílnum. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítalans en samkvæmt upplýsingum slökkviliðs var hann ekki alvarlega slasaður. Hafravatnsvegi var lokað vegna slyssins og var ekki búist við að hann yrði opnaður fyrr en klukkan tvö.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×