Innlent

Hluti fíkniefna falinn í niðursuðudós

MYND/Anton

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leyfði í dag fjölmiðlum að mynda fíkniefnin sem haldlögð voru hjá öldruðum Þjóðverja sem kom til landsins með Norrænu í gær.

Eins og myndin ber með sér er um töluvert magn af hassi að ræða og hvít efni en athygli vekur að hluti efnanna var geymdur í niðursuðudós. Ekki liggur fyrir hversu mikið magnið er en það var flutt til Reykjavíkur í dag.

Þjóðverjinn var í morgun yfirheyrður á Seyðisfirði en til stóð að flytja hann suður yfir heiðar í dag eða á morgun. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 16. september en talið er víst að hann eigi sér vitorðsmenn hér á landi. Enginn Íslendingur hafði um hádegisbilverið yfirheyrður vegna málsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×