Fleiri fréttir

Lögguhrotti fær hálfs árs fangelsisdóm

Ágúst Fylkisson var í morgun dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fjóra skilorðsbundna, fyrir alvarlega líkamsárás á lögregluþjón eftir mótmæli vörubílstjóra í vor.

Utanríkisráðherra Spánar í Iðnó

Miguel Angel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar, er í opinberi heimsókn hér á landi þessa dagana og efnir Samfylkingin til opins fundar með honum í dag klukkan 15 í Iðnó.

"Skítt með kerfið" brot á siðareglum pönkara?

Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að auglýsingaherferð Vodafone, "Skítt með kerfið", hafi ekki brotið siðareglur auglýsingastofa. Ónefndur aðili kærði herferðina og vildi meina að textinn væri brot á siðareglum því hann væri "óguðlegur" og "ósiðlegur" auk þess sem hann „bryti í bága við almennt siðferði og væri óæskilegur.“ Það er hins vegar spurning hvort siðareglur pönkara hafi ekki verið brotnar.

Konur á steypinum krefja Árna um efndir

Tuttugu verðandi mæður skrifa Árna Matthiesen, fjármálaráðherra, opið bréf í dag vegna yfirvofandi verkfalls ljósmæðra. Fyrsta verkfallið hefst á miðnætti á í kvöld og stendur í tvo sólarhringa.

Smyglarar sækja í ellilífeyrisþega og fjölskyldufólk

Menn úr fíkniefnadeild lögregunnar á höfuðborgarsvæðinu eru enn að leita að meiri fíkniefnum í bílnum sem tekinn var úr umferð við komuna til Seyðisfjarðar með Norrænu í gær. Talið er víst að smyglarinn eigi sér vitorðsmenn her á landi. Lögregla segist hafa orðið vör við breyttar áherslur í smygli á síðustu misserum.

Reyna að blekkja fé af afgreiðslufólki

Lögreglan varar afgreiðslufólk verslana og banka við bífræfnum mönnum af erlendum uppruna sem notað hafa blekkingar til að ná peningum af starfsfólki.

Pólstjörnufangar kröfðu samfanga um verndartolla

Fangar sem afplána dóma á Litla-Hrauni vegna Pólstjörnumálsins hafa verið aðskildir vegna meintrar ofbeldisfullrar hegðunar innan veggja fangelsisins. Þeir hafa krafið samfanga um verndartolla, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Þá hafa þeir tvívegis ráðist á og slasað samfanga.

Bráðabirgðalög vegna skjálfta staðfest

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur lagt fram frumvarp sem ætlað er að staðfesta bráðabirgðalög um breytingu á lögum um Viðlagatryggingu Íslands. Bráðabirgðalögin voru sett í lok maí eftir að snarpur skjálfti reið yfir Suðurland með tilheyrandi tjóni.

Vilja að íslensk stjórnvöld leggist gegn eldflaugavarnakerfi

Þrír þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem lagt er til að Alþingi feli ríkisstjórninni að mótmæla áformum Bandaríkjamanna og eftir atvikum NATO að koma upp eldflaugavarnakerfi í Austur-Evrópu.

Lá mikið á að komast í heiminn

Foreldrar drengs sem fæddist í heimahúsi í Hafnarfirði í nótt segja að litla snáðanum hafi legið svo á að þeim hafi verið hætt að standa á sama.

Glímdu við strípaling og laumufarþega á Seyðisfirði

Lögreglan á Seyðisfirði glímdi við allnokkur verkefni í liðinni viku, þar á meðal strípaling og laumufarþega í Norrænu. Þannig var maður kærður fyrir blygðunarsemisbrot en hann spókaði sig nakinn á palli við sumarhús í umdæminu.

Ingibjörg liggur undir feldi

Ingibjörg Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verzlunarmanna og varaforseti ASÍ, íhugar nú stöðu sína vegna komandi formannskjörs í ASÍ. Nýr formaður verður kosinn á ársfundi sambandsins í október. Stjórnir VR og LÍV skoruðu í dag á Ingibjörgu að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands.

Öryggi verður tryggt komi til verkfalls ljósmæðra

Mönnun á fæðinga- og sængurlegudeild Landspítala verður með eðlilegum hætti komi til aðgerða ljósmæðra og neyðarþjónusta yrði veitt í heimabyggð svo sem lög kveða á um. Þetta kemur fram í tilkynningu sem heilbrigðisráðuneytið sendi frá sér fyrir stundu.

Grunuðum kynferðisbrotamanni sleppt

Þrjátíu og þriggja ára gömlum karlmanni, sem handtekinn var í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um kynferðisbrot gegn fósturdóttur sinni, hefur verið sleppt.

Nær jafnmargir með og á móti umhverfismati Bakkaálvers

Capacent kannaði í síðasta mánuði afstöðu almennings til uppbyggingar álvera, orkufreks iðnaðar og ákvörðunar Þórunnar Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, að framkvæmdir við fyrirhugað álver Bakka við Húsavík fari í sameiginlegt umhverfismat.

Tíu stútar teknir um helgina

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, fimm á laugardag og fjórir á sunnudag.

Flensan komin til landsins?

Inflúensa af B-stofni greindist í eins árs gamalli stúlku frá Hafnarfirði í lok nýliðins ágústmánaðar.

Reyna að tryggja fæðingarhjálp á Suðurlandi

Reynt verður að tryggja fæðingarhjálp á fæðingardeildinni á Selfossi þrátt fyrir boðað verkfall ljósmæðra 4. og 5. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Magnúsi Skúlssyni, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

AFL kærir þýska vertinn

AFL starfsgreinafélag hefur kært árás vertsins á Cafe Margret á Breiðdalsvík, Horst Muller, á Sverri Má Albertsson framkvæmdastjóra félagsins. Í frétt í 24 stundum á dögunum greint frá því að veitingamaðurinn borgi veitingastúlkum sínum lág laun auk þess sem þau séu ekki gefin upp til skatts. Í fréttinni var vitnað í Sverri og sárnaði Horst það svo mjög að hann lagði á sig 160 kílómetra ökuferð til þess eins að ráðast á hann.

Ingibjörg: „Lítið hald í hávaðanum“

Inbibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar sagði í sinni ræðu á Alþingi í dag að það væri „lítið hald í hávaðanum“ og átti þar við ræðu Steingríms J. Sigfússonar sem talaði á undan henni. Hún gagnrýndi stjórnarandstöðuna og sagði að í þeirra málatilbúnaði væri meira um upphrópanir og fátt um lausnir.

Guðni: Lýsir fullri ábyrgð á hendur Sjálfstæðisflokki

Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi áðan lýsa fullri ábyrð á hendur Sjálfstæðisflokknum vegna stöðunnar í efnahagsmálum. „Ég þekki ekki Sjálfstæðisflokkinn fyrir þann flokk sem ég vann með," sagði Guðni og bætti við að þá þorði flokkurinn á takast á við mál.

Steingrímur: Geir boðar kjaraskerðingu

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, boði kjaraskerðingu og svo virðist sem að launamenn eigi að taka efnahagsvandann alfarið á sig. Hann segir að launamenn fái enga kauphækkun á móti 14,5 prósent verðbólgu. Þetta kom fram í ræðu Steingríms á Alþingi áðan í umræðum um skýrslu forsætisráðherrra um efnahagsmál.

Gjaldeyrisvaraforðinn styrktur um 30,5 milljarða

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að yfirvegaðar aðgerðir séu mikilvægari en upphrópanir. Alþingi koman saman að nýju í dag eftir að því var frestað í maílok. Skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál var eina málið á dagskrá. Í ræðunni tilkynnti Geir að ríkisstjórnin hyggist taka 250 milljóna evru lán til þess að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans.

Forseti borgarstjórnar verið með bílstjóra í áratugi

Það er ekki nýtilkomið að forseti borgarstjórnar skuli hafa aðgang að bifreið og bílstjóra, að sögn skrifstofustjóra borgarstjórnar. Nokkur umræða hefur spunnist um einkabílstjóra borgarstjórnar undanfarið en Ólafur Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar segir að þetta fyrirkomulag hafi tíðkast í fjöldamörg ár eða áratugi.

Umferð dregst saman fimmta mánuðinn í röð

Fimmta mánuðin í röð dregst umferð saman. Þó dró örlítið minna úr umferð í ágústmánuði en mánuðina á undan þegar umferðin dróst saman um allt að 5,6 prósent í júní sé miðað við mánuðina á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Þingmenn og ráðherrar verði skyldaðir til að opinbera fjárhagsleg tengsl

Mikilvægt er að þingmenn og ráðherrar séu skyldaðir til að gera opinber öll fjárhagsleg tengsl til að auka trúverðugleika stjórnmálamanna að mati varaformanns Vinstri grænna. Samfylkingin útilokar ekki að slíkt verði gert að skyldu en sjálfstæðismenn eiga enn eftir að taka afstöðu til málsins.

Tveir yfirheyrðir vegna mannsláts á Skúlagötu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu yfirheyrir nú tvo menn vegna rannsóknar á andláti manns, sem fannst látinn á heimili sínu við Skúlagötu í Reykjavík í gærkvöldi,- með höfuðáverka.

Vill láta kjósa um framtíð flugvallar í mars á næsta ári

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins og fyrrverandi borgarstjóri, vill að kosið verði á ný í mars á næsta ári um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Þá vill hann að allar upplýsingar um kostnað vegna kjörinna fulltrúa og embættismanna Reykjavíkurborgar og fyrirtækja í hennar eigu verði lagðar fram.

Sjá næstu 50 fréttir