Innlent

Óheppilegt að gera róttækar breytingar á starfsumhverfi banka nú

MYND/Vilhelm
Geir H. Haarde forsætisráðherra telur það óheppilegt við þær aðstæður sem uppi eru núna að gera róttækar breytingar á starfsumhverfi bankanna. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag.

Guðni benti á að þegar bankarnir hefðu verið einkavæddir fyrir nokkrum árum hefði verið rætt um það hvort viðskiptabankastarfsemi og fjárfestingarbankastarfsemi ætti að vera í sama fyrirtækinu. Spurningar vöknuðu um hvort bankar eins og þeir íslensku væru hlutlausir þegar þeir væru fjárfestingarbankar og viðskiptabankar í senn. Spurði hann forsætisráðherra hver væri hugsun hans í þessu efni og hvort stíga ætti ný skref fyrir viðskiptavini og hlutleysi.

Geir H. Haarde svaraði því til að hann gæti tekið undir mikilvægi bankastarfsemi og mikilvægi hlutleysis í starfsemi þeirra. Þær reglur sem hér giltu um fjárfestingarbanka og viðskiptabanka væru byggðar á samevrópskum reglum og hann vissi ekki til að Íslendingar skæru sig nokkuð þar úr.

Hins vegar væri það verðug spurning hvort það mætti gera endurbætur á þessu og það væri sjálfsagt að fara yfir það. Mikivægt væri þó að rasa ekki um ráð fram þegar bankakerfið ætti í hlut og allir þyrftu að leggjast á eitt að styðja bankakerfið í þeirri lausafjárkreppu sem nú gengi yfir. Hann hygði að það væri óheppilegt við núverandi aðstæður að gera róttækar breytingar á starfsumhverfi bankanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×