Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Símasambandslaust á Eskifirði í tæpan sólarhring Stór hluti Eskifjarðar hefur verið símasambandslaus frá því klukkan þrjú í gær. Vilhelm Jónasson, íbúi á svæðinu, segist mjög ósáttur við þjónustu Símans því engin svör fáist hvenær samband kemst á aftur. „Það eina sem þeir segja er að viðgerð standi yfir sem er ekki rétt því það er enginn að vinna í þessu,“ segir Vilhelm og bendir á að ástandið sé mjög bagalegt því stór hluti íbúanna hafi nú hvorki heimasíma né Internettengingu. 19.8.2008 10:48
Tveir fluttir með hraði á sjúkrahús eftir harðan árekstur Þriggja bíla harður árekstur varð á Krýsuvíkurvegi fyrir stundu og eru lögregla og slökkvilið komin á vettvang. 19.8.2008 10:15
Segja rekstrargrundvöll fjölda sauðfjárbænda brostinn Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda segir að rekstrargrundvöllur fjölda sauðfjárbænda sé brostinn ef hækkun á afurðaverði til bænda í haust verður aðeins 15 prósent eins og verðlisti Norðlenska gefur til kynna. 19.8.2008 10:11
Bílvelta við Grófarvegamót Tveir slösuðust, en þó ekki alvarlega, þegar lítill fólksbíll fór út af veginum og valt við svonefnd Grófarvegamót síðdegis í gær, þar sem vegurinn í Reykholtsdal og Borgarfjarðarbraut mætast. Þeir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar en voru útskirfaðir að því loknu. Bíllinn er hinsvegar ónýtur. Að sögn lögreglu hafa þónokkur óhöpp og slys orðið á þessum vegamótum á undanförnum árum.- 19.8.2008 08:22
Lögreglan stöðvaði ölvaðan hjólreiðamann Þrettán ökumann voru teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir ölvunarakstur um helgina. Það er vart í frásögu færandi nema fyrir það að einn þeirra var á reiðhjóli. 19.8.2008 08:16
Flugdólgar teknir i Leifsstöð Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo karlmenn á þrítugsaldri í Flugstöð Leifs Eiríkssonar laust fyrir miðnætti, vegna óláta og óspekta. Áður höfðu þeir verið til vandræða í Flugleiðavél, sem var að koma frá Manchester, og héldu upteknum hætti í flugstöðinni. 19.8.2008 08:10
Ökumaður kranabíls á gjörgæslu eftir líkamsárás Ökumaður kranabíls liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að eigandi bíls, sem hann var að fjarlægja að ósk lögreglu í Keflavík í gærkvöldi, sló hann þungu höggi í andlitið. 19.8.2008 07:00
Öryggisvörður í 10-11 með kylfu Öryggisvörður í verslun 10-11 í Austurstræti á yfir höfði sér kæru fyrir brot á vopnalögum eftir að hafa verið með kylfu þegar hann var að handtaka þjóf í versluninni í nótt. 19.8.2008 06:52
Guðlaugur styður Gísla Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra og fyrrverandi borgarfulltrúi, segir að Gísli Marteinn Baldursson muni ekki skaðast af því að mennta sig í Edinborg. Hann styður ákvörðun Gísla sem mun starfa áfram sem borgarfulltrúi en ekk gegna nefndarstörfum á meðan. 18.8.2008 22:04
Gísli: Borgarstjórnarflokkurinn styður mig Gísli Marteinn Baldursson segir að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins styðji sig einhuga en nýverið greindi Gísli frá því að í vetur hyggst hann stunda nám í borgarfræðum við Edinborgarháskóla. Gísli mun ekki gegna nefndarstörfum á meðan en starfa áfram á vettvangi borgarstjórnar. 18.8.2008 20:58
Heitavatnslaust á Akranesi Bilun varð á aðveituæð Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og er heitavatnslaust á Akranesi. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur er unnið að viðgerð og er búist við að henni verði lokið í nótt eða undir morgun. 18.8.2008 22:30
Borgarstjóri verðlaunaði fegurð í Reykjavík Á 222 ára afmæli Reykjavíkurborgar í dag afhenti Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, fegrunarviðurkenningar vegna fegurstu lóða fjölbýlishúsa og fyrirtækja, og endurbóta á eldri húsum í Reykjavík fyrir árið 2008. Athöfnin fór fram síðdegis í Höfða. 18.8.2008 21:14
Eldfjallasérfræðingar funda Ráðstefna Alþjóða Eldfjallafræðasambandsins er einn stærsti viðburður í vísindum á Íslandi í langan tíma. Hingað eru komnir allir helstu sérfræðingar í eldgosum í heiminum frá fimmtíu löndum. 18.8.2008 19:30
Ræddu friðargæslu á Srí Linka Rohiþa Bogollagama, utanríkisráðherra Srí Lanka, átti í morgun fundi með Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra. 18.8.2008 19:00
Ólafur: Sjálfstæðismenn vildu reka yfirmann hjá borginni Sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur vildu reka Ragnhildi Bjarnadóttur, sviðsstjóra leikskólaviðs, þar sem hún hlýddi ekki skilyrðislaust, að sögn Ólafs F. Magnússonar fráfarandi borgarstjóra. 18.8.2008 19:00
Þrettán teknir ölvaðir við akstur - Einn var á reiðhjóli Þrettán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Til viðbótar tók lögreglan einn ölvaðan ökumann í Reykjavík en viðkomandi, karl um fimmtugt, var á reiðhjóli. 18.8.2008 17:49
Marsibil segir sig úr Framsóknarflokknum Marsibil Sæmundardóttir varaborgarfulltrúi hefur ákveðið að segja sig úr Framsóknarflokknum en hún mun þó starfa áfram sem óháður varaborgarfulltrúi. Þetta kemur fram á bloggsíðu hennar. 18.8.2008 16:19
Ingibjörg fundar um Georgíu í Brussel Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, tekur á morgun þátt í sérstökum fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins um stríðsátökin í Suður-Ossetíu í Georgíu. 18.8.2008 18:30
Ólafur og F-listinn boða til blaðmannafundar Borgarstjórnarflokkur F-listans efnir til blaðamannafundar á morgun um stöðu og stefnu framboðsins og ,,samstarfsslitin af hálfu Sjálfstæðisflokksins," líkt og segir í tilkynningu frá Ólafi F. Magnússyni, fráfarandi borgarstjóra. 18.8.2008 17:28
Fyrrverandi borgarfulltrúi sjálfstæðismanna gagnrýnir Gísla harðlega Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir Gísla Martein Baldursson borgarfulltrúa harðlega fyrir að ætla að sinna borgarfulltrúastörfum frá Edinborg. 18.8.2008 16:27
Níu bakarí sektuð vegna galla í verðmerkingum Neytendastofa hefur sektað níu bakarí á höfuðborgarsvæðinu fyrir að fara ekki að tilmælum stofunarinnar um verðmerkingar. Nema sektirnar samtals 1,1 milljón króna. 18.8.2008 16:24
Kennarasambandið styður kjarabaráttu ljósmæðra Sameiginlegur fundur stjórnar og kjararáðs Kennarasambands Íslands lýsir fyrir hönd sambandsins yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu ljósmæðra. 18.8.2008 16:08
Tóm tjara að fjármálaóreiða hafi einkennt stjórnartíð Ólafs Ragnars Einar Karl Haraldsson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, var á sínum tíma framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins þegar Ólafur Ragnar Grímsson var þar formaður. Hann segir af og frá að fjármálaóreiða hafi einkennt stjórnartíð Ólafs eins og kemur fram í dagbók Matthíasar Johannessen, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins. 18.8.2008 15:56
Sektaður og sviptur vegna fíkniefnaaksturs Héraðsdómur Suðurlands hefur sektað karlmann um 70 þúsund krónur og svipt hann ökuleyfi í þrjá mánuði fyrir að hafa stýrt bíl undir áhrifum svokallaðrar THC-sýru. 18.8.2008 14:40
Alþýðubandalagið eyddi um efni fram Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, staðfestir í samtali við Vísi að þegar hún hafi tekið við formennsku í flokknum hafi fjárhagsstaða hans verið einkar slæm og skuldir numið yfir fimmtíu milljónum króna. Hún neitar hins vegar fyrir að fyrirrennari hennar í formennskustólnum, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi í kjölfarið tekið lán upp á annað hundrað milljónir króna til þess að greiða skuldir flokksins, meðal annars vegna óhóflegrar einkanotkunar hans á Visa-korti flokksins, eins og haldið er fram í dagbókarfærslum Matthíasar Johannessen. 18.8.2008 14:27
„Bókamúrar" verði lækkaðir með niðurfellingu gjalda ódýrustu pakka Ef neytandi kaupir bækur, geisladiska eða annað í smáum stíl að utan bætist við vsk. og í öðrum tilvikum tollur. Umsýsla við að reikna vsk. kostar 450 kr. - oft mun hærri fjárhæð en vsk. sjálfur. Úr þessu vill talsmaður neytenda bæta þannig að heim kominn pakki verði mun ódýrari en nú er. 18.8.2008 14:08
Útlit fyrir metfjölda í maraþoninu Um fimmtungi fleiri hafa skráð sig til leiks í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ár en um svipað leyti í fyrra. 18.8.2008 14:06
Kærður fyrir að hafa rofið akstursbann Lögreglan á Selfossi hyggst leggja fram kæru á hendur manni fyrir að hafa rofið akstursbann. 18.8.2008 13:46
Reykjavík 222 ára í dag Reykjavíkurborg fagnar 222 ára afmæli sínu í dag en borgin hlaut kaupstaðarréttindi árið 1786. Saga Reykjavíkur nær þó mun lengra aftur en hana má rekja allt til þess að landnámsmaðurinn Ingólfur Arnason tók þar land eftir að öndvegissúlur hans eiga að hafa rekið hér á land. 18.8.2008 13:38
Sex á palli Ökumaður dráttarbíls hefur verið kærður fyrir að hafa á bíl sínum flutt jeppa fullan af fólki. 18.8.2008 13:34
Málari slasaðist við fall af þaki Málari að vinnu á þaki Kvennaskólans við Fríkirkjuvegi féll fyrr í dag á neðra þak hússins og slasaðist lítillega. 18.8.2008 13:32
Guðrún Katrín fékk enga sérmeðferð „Þetta er á einhverjum miskilngi byggt hjá Matthíasi,“ segir Páll Torfi Önundarson læknir, sem annaðist Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur forsetafrú í veikindum hennar á sínum tíma. Matthías Johannessen segir frá því í dagbókarfærslum sínum að reikningur vegna meðferðar Guðrúnar Katrínar sem hún gekkst undir í Bandaríkjunum hafi valdið uppnámi á stjórnarheimilinu. Það hefur Matthías eftir Davíð Oddsyni sem er sagður hafa haft miklar áhyggjur af því hver ætti að borga reikninginn. Páll Torfi segir í samtali við Vísi að Guðrún Katrín hafi ekki notið neinnar sérmeðferðar heldur hafi mál hennar farið sína leið hjá Tryggingastofnun eins og önnur mál af þessu tagi. 18.8.2008 13:27
Umhverfisráðherra S-Afríku kynnir sér orkumál hér á landi Umhverfisráðherra og orkumálaráðherra Suður-Afríku hittu Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra í Þjóðmenningarhúsinu í morgun til að kynna sér umhverfis- og orkumál hér á landi. 18.8.2008 13:20
Óskar segist mæta vel mannaður til leiks Sjálfstæðismenn og Framsókn í borgarstjórn vinna nú að því að klára málefnasamning sín á milli og þar næst verður skipað í ráð og nefndir. Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segist mæta mjög vel mannaður til leiks á næsta borgarstjórnarfundi þótt hann sé sá eini sem geti gegnt formennsku ráða. 18.8.2008 13:16
Bush og Medvedev senda Ólafi Ragnari heillaóskir Helstu þjóðarleiðtogar heims hafa sent Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, heillaóskir í tilefni af nýju kjörtímabili forseta og embættistöku 1. ágúst. 18.8.2008 13:08
Leggja tólf milljónir í uppbyggingu brunna í Malaví SPRON og Hjálparstarf Kirkjunnar hyggjast leggja til 12 milljónir króna til styrktar uppbyggingu 75 vatnsbrunna í Malaví sem á að tryggja enn fleiri íbúum þar í landi aðgang að hreinu vatni. 18.8.2008 12:59
Sumarbúsaðaeigendur stöðvuðu þjófa Ungmenni í ránsferð um sumarbústaði við Bjarkarborgir í Grímsnesi voru stöðvuð við iðju sína á dögunum 18.8.2008 12:56
Hlaut opið beinbrot í borunarvinnu Starfsmaður Jarðborana hlaut opið beinbrot þegar rör féll á fót hans þar sem hann var að störfum við borun í landi Klausturhóla í Grímsnesi. 18.8.2008 12:48
Engin leið að nýta orku við Bitru án borana Það er engin leið að nýta orkuna við Bitru á Hellisheiði nema bora þar í jörðu, segir Einar Gunnlaugsson, deildarstjóri rannsókna hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Gerlegt væri að nýta orkuna án þess að reisa Bitruvirkjun en það yrði dýrt og hefði meiri áhrif á umhverfið. 18.8.2008 12:27
ASÍ hafnar ásökunum Haga Dómkvaddir matsmenn hafa staðfest að virðisaukaskattslækkun á matvælum skilaði sér að fullu til viðskiptavina verslana 10-11 - öndvert við það sem fram kom í verðkönnunum Alþýðusambandsins. 18.8.2008 12:20
Síðasta vika sú þriðja versta á fasteignamarkaði frá upphafi mælinga Síðasta vika var enn ein undirmálsvikan á fasteignamarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu og var aðeins 49 kaupsamningum þinglýst. Þetta er þriðja versta söluvikan frá því mælingar hófust. 18.8.2008 12:13
Tiltekt nauðsynleg til að auka skilvirkni Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir það mikilvægt að embættið festist ekki í gömlum kærumálum þar sem á litlu er að byggja. Nauðsynlegt sé að auka skilvirkni í meðferð kærumála. 18.8.2008 12:08
Enn haldið sofandi eftir umferðarslys á Suðurlandsvegi Ökumanni jeppa sem slasaðist í árekstri jeppans, rútu og sendibíls á Suðurlandsvegi fyrir viku er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. 18.8.2008 11:20
Lögreglan lét 700 mál niður falla á einu bretti Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu lét um 700 kærumál niður falla á einu bretti í byrjun þessa árs. Þetta var gert til þess að hreinsa til í málaskrá hin nýstofnaða embættis sem varð til með sameiningu lögreglunnar í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. 18.8.2008 11:08
Jón Baldvin man eftir reikningnum Jón Baldvin Hannibalsson var sendiherra í Washington þegar Guðrún Katrín Þorbergsdóttir leitaði sér lækninga í Seattle í Bandaríkjunum. Hann segist muna eftir því að sendiráðinu hafi borist reikningur vegna læknismeðferðar Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar. Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, vitnar í dagbókarfærslu sinni frá árinu 1998 í samtal sem hann átti við Davíð Oddson, þáverandi forsætisráðherra. Davíð segir Matthíasi frá því að sendiráðinu í Washington hafi borist reikningur að upphæð fimmtán milljónir króna vegna læknismeðferðar Guðrúna Katrínar. 18.8.2008 10:43