Tóm tjara að fjármálaóreiða hafi einkennt stjórnartíð Ólafs Ragnars 18. ágúst 2008 15:56
Einar Karl Haraldsson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, var á sínum tíma framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins þegar Ólafur Ragnar Grímsson var þar formaður. Hann segir af og frá að fjármálaóreiða hafi einkennt stjórnartíð Ólafs eins og kemur fram í dagbók Matthíasar Johannessen, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins. Matthías rekur samtal sem hann átti við Svavar Gestsson árið 1998 þar sem fram kom að Ólafur væri með kreditkort frá flokknum sem hann „notaði óspart" auk þess sem skuldir flokksins hafi verið rúmar 50 milljónir þegar Margrét Frímannsdóttir tók við af Ólafi. Einar segir að eins og í öðrum flokkum og félagsmálahreyfingum á þessum tíma hafi verið lausatök í bókhaldinu og að sem betur fer hafi verið gerð bragarbót á því síðustu árin. „En ég fullyrði að á engum tímapunkti var nokkuð í fjármálum Alþýðubandalagsins meðan ég fékkst við þau sem mætti telja óviðurkvæmileg á nokkurn hátt." Einar segir að bókhaldið hafi verið ófullkomið og þar hafi verið að finna gamlar skekkjur sem rekja mátti til ákvarðana framkvæmdastjórnar á hverjum tíma. „En það er bara tóm tjara að einhver fjármálaóreiða hafi einkennt stjórnartíð Ólafs Ragnars. En þetta mál sýnir kannski illindin sem voru í þessum flokki á þessum árum og nauðsyn þess að leggja hann niður," segir Einar Karl, sem var framkvæmdastjóri flokksins í formannsstíð Ólafs Ragnars árin 1993 til 1996. Hann segist ekki kannast við að Ólafur hafi verið með kreditkort frá flokknum eins og Styrmir hefur eftir Svavari. „Aldrei hefði mér nú dottið í hug að tala við Matthías Johannesson um fjármál Alþýðubandalagsins og met ég hann þó mikils," segir Einar Karl að lokum.
Tengdar fréttir Alþýðubandalagið eyddi um efni fram Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, staðfestir í samtali við Vísi að þegar hún hafi tekið við formennsku í flokknum hafi fjárhagsstaða hans verið einkar slæm og skuldir numið yfir fimmtíu milljónum króna. Hún neitar hins vegar fyrir að fyrirrennari hennar í formennskustólnum, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi í kjölfarið tekið lán upp á annað hundrað milljónir króna til þess að greiða skuldir flokksins, meðal annars vegna óhóflegrar einkanotkunar hans á Visa-korti flokksins, eins og haldið er fram í dagbókarfærslum Matthíasar Johannessen. 18. ágúst 2008 14:27 Dagbók Matthíasar: Forsetinn notaði kreditkort Alþýðubandalagsins Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, birti um helgina enn eitt brotið úr dagbókum sínum sem hann hélt á meðan hann var ritstjóri. Þar kemur fram í samtali við Svavar Gestsson að Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi forseti og fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, hafi verið með kreditkort frá flokknum og notað það óspart. 18. ágúst 2008 00:12 Mest lesið Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira
Alþýðubandalagið eyddi um efni fram Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, staðfestir í samtali við Vísi að þegar hún hafi tekið við formennsku í flokknum hafi fjárhagsstaða hans verið einkar slæm og skuldir numið yfir fimmtíu milljónum króna. Hún neitar hins vegar fyrir að fyrirrennari hennar í formennskustólnum, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi í kjölfarið tekið lán upp á annað hundrað milljónir króna til þess að greiða skuldir flokksins, meðal annars vegna óhóflegrar einkanotkunar hans á Visa-korti flokksins, eins og haldið er fram í dagbókarfærslum Matthíasar Johannessen. 18. ágúst 2008 14:27
Dagbók Matthíasar: Forsetinn notaði kreditkort Alþýðubandalagsins Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, birti um helgina enn eitt brotið úr dagbókum sínum sem hann hélt á meðan hann var ritstjóri. Þar kemur fram í samtali við Svavar Gestsson að Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi forseti og fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, hafi verið með kreditkort frá flokknum og notað það óspart. 18. ágúst 2008 00:12