Fleiri fréttir

Sjómenn á kokteilveiðum

Sjómenn á síldveiðiflotanum, sem nú er um hundrað mílur austur af landinu, segjast vera á einskonar kokteil veiðum. Eins og fram hefur komið veiðist mikið af markíl með síldinni og stundum reyndar meira af honum en af síldinni. Í nótt meldaði svo færeyskt skip, sem er á sömu slóðum, kolmunna til viðbótar og auk þess nokkur tonn af hrognkelsum.-

Álagning á dísilolíu hækkað um 23%

Íslensku olíufélögin hafa hækkað álagningu sína á dísilolíu um 23 prósent á síðustu tólf mánunuðum, samkvæmt athugun Landssambands kúabænda.

Stuðningur við Hönnu Birnu eykst

Um það bil 33 prósent borgarbúa vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir verði borgarstjóri en tæp 44 prósent vilja að Dagur B. Eggertsson verði það, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Heimsþing alþjóðlega eldfjallafræðisambandsins haldið á Íslandi

Stærsta vísindaráðstefna á sviði raunvísinda, sem haldin hefur verið hér á landi, hefst í Reykjavík í dag og stendur í fimm daga. Þetta er heimsþing alþjóðlega eldfjallafræðisambandsins, sem haldið er á fjögurra ára fresti. Það hefur ekki verið haldið hér á landi áður. Um níu hundruð manns frá 50 þjóðlöndum taka þátt í henni, flutt verða sjö hundruð erindi og sýnd sex hundruð veggspjöld.-

Flúði af vettvangi eftir að hafa ekið á ljósastaur

Ökumaður bíls hljóp af vettvangi eftir að hafa ekið á ljósastaur í Ártúnsbrekku í nótt. Bíllinn og staurinn eru stór skemmdir en ökumaðurinn, sem er ófundinn, er líklega ómeiddur. Grunur leikur á að hann hafi verið ölvaður eða undir áhrifum fíkniefna. Einn slíkur var tekinn úr umferð í nótt áður en hann ylli vandræðum eða slysi.-

Dagbók Matthíasar: Forsetinn notaði kreditkort Alþýðubandalagsins

Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, birti um helgina enn eitt brotið úr dagbókum sínum sem hann hélt á meðan hann var ritstjóri. Þar kemur fram í samtali við Svavar Gestsson að Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi forseti og fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, hafi verið með kreditkort frá flokknum og notað það óspart.

Bjartsýn á framhaldið

„Ég tel að þessu tíðu meirihlutaskipti í borginni séu borgarfulltrúum ekki til framdráttar," segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnmálafræðingur og formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, um nýjan borgarstjórnarmeirihluta og fylgiskönnun Fréttablaðsins.

Bifreið valt á Vatnsleysustrandarvegi

Um klukkan sjö í morgun var tilkynnt um að bifreið hefði oltið á Vatnleysustrandarvegi skammt frá Vogum. Ökumaður og einn farþegi voru í bifreiðinni og voru þeir fluttir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Ók á ljósastaur

Ökumaður Toyota bifreiðar var fluttur á slysadeild eftir að hafa ekið bifreið sinni á ljósastaur þegar hann ók meðfram Reykjanesbrautinni um fimmleytið í dag.

Fimmtán ára stúlka á spítala eftir e-töflu neyslu

Fimmtán ára stúlka var flutt alvarlega veik á sjúkrahús eftir að hafa tekið inn e-töflur á Dönskum dögum í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Ólafs Guðmundssonar, yfirlögregluþjóni á Snæfellsnesi, fluttu lögreglumenn stúlkuna á spítala um leið og ljóst var hvað hafði gerst.

Vill lausn á málefnum utangarðsmanna

„Ég held að það væri mjög góð lausn ef það væri hægt að beina þeim eitthvað annað," segir Svava Johansen, kaupmaður í NTC tískuvörufyrirtækinu, um þá hugmynd að finna sér stað fyrir utangarðsmenn sem safnast saman í miðborginni.

Á fjórða þúsund manns á Dönskum dögum í Stykkishólmi

Fangageymslur í Stykkishólmi fylltust á miðnætti og eru enn fullar að sögn lögreglumanna. Danskir dagar eru haldnir hátíðlegir í Stykkishólmi þessa helgina og segir lögreglan að á bilinu þrjú til fjögur þúsund manns séu í bænum.

Átta gistu fangageymslur í Reykjavík

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í morgun. Mikil ölvun var í Reykjavík og margt um manninn í miðbænum. Átta gistu fangageymslur vegna ölvunar.

Vann rúmar 65 milljónir i íslenska Lottóinu

Það var einn heppinn Lottóspilari sem fékk 5 rétta þegar dregið var í kvöld og hlýtur sá rúmar 65 milljón krónur. Potturinn var sjöfaldur að þessu sinni. Lukkumiðinn var keyptur í Söluturninum Iðufelli. Það voru 12 sem skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver um sig 81.290 krónur. Auk þess voru fjöldi smærri vinninga.

Síbrotamaður í tveggja ára fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 45 ára gamlan karlmann, Sigurð Hólm Sigurðsson, í tveggja ára fangelsi fyrir fjölda afbrota sem hann framdi frá því í nóvember 2006 þar til í maí á þessu ári. Á meðal þeirra brota sem Sigurður er dæmdur fyrir eru nytjastuldur, þjófnaðir, fjársvik og varsla fíkniefna. Afbrotaferill Sigurðar er langur og nær allt til ársins 1979.

Holskefla gjaldþrota framundan

Gjaldþrotaúrskurðum hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra hefur fjölgað um tæpan helming frá fyrra ári. Holskefla gjaldþrota virðist fram undan, eftir því sem fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Bílvelta við Hraunhellu

Vörubíll velti á hringtorgi við Hraunhellu í Hafnarfirði um fjögurleytið í dag. Að sögn lögreglu var einn maður í bílnum en hann slasaðist ekki.

Húsin við Laugaveg keypt með samþykki Ólafs

„Það var eitt helsta baráttumál Ólafs F að húsin við Laugaveg 4-6 yrðu endurbyggð sem næst sinni upprunalegu mynd,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Brutust inn í Árbæjarskóla

Fjórir piltar á unglingsaldri voru handteknir rétt eftir klukkan sjö í morgun, grunaðir um innbrot í Árbæjarskóla.

Vinningstillagan verður umdeild

Vinningstillaga um höfuðstöðvar Landsbankans í miðbæ Reykjavíkur á eftir að skapa mikið umtal, deilur og vangaveltur að mati Margrétar Harðardóttur arkitekts hjá Studio Granda.

Antík ef ég væri bíll

Litlu munaði að liði yfir Guðbjörgu Helgu Sigurdórsdóttur, húsmóður á Selfossi, á fertugsafmælinu þegar fagurblár og hvítur Bjúkki renndi í hlað og reyndist vera gjöf til hennar.

Ólafur F: Óskar var áfjáður í samstarf með sjálfstæðismönnum

„Ég tel það verstu samsetningu á meirihluta í Reykjavík, samsetning Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, og því íhugaði ég að segja af mér til að komast hjá því stórslysi. Óskar sýndi hins vegar engan áhuga á að vinna með Tjarnarkvartettnum, heldur var mjög ákveðinn og áfjáður í að vinna með sjálfstæðismönnum. “ Þetta sagði Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri í viðtali við Vísi í kvöld.

Gunnar Smári átti að verða aðstoðarmaður borgarstjóra

Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, segir að Gunnar Smári Egilsson hafi upprunalega átt að starfa sem aðstoðarmaður borgarstjóra en ekki eingöngu að yfirfara upplýsingamál borgarinnar eins og áður hefur verið haldið fram. Hvorki Ólafur F. né Hanna Birna Kristjánsdóttir, verðandi borgarstjóri, vildi þó meina að ráðning Gunnar Smára hafi orðið til þess að meirihluti þeirra sprakk í gær, eins og frægt er orðið. Þetta kom fram í viðtali við þau tvö í Kastljósinu í kvöld.

Hanna Birna hafði áhyggjur af kjaftasögum um Ólaf

Hanna Birna Kristjánsdóttir, verðandi borgarstjóri, sagði í samtali við Kastljósið í kvöld að hún hefði lýst yfir áhyggjum við Ólaf F. Magnússon vegna ýmissa gróusagna sem höfðu komist á kreik um meintar galeiðuferðir hans sem henni þóttu ekki borgarstjóra sæmandi.

Tannheilsa ungra barna hérlendis er skelfileg

Tannheilsa ungra barna er skelfileg að sögn tannlæknis hjá Lýðheilsustöð. Margt bendir til að tannheilsa barna af erlendum uppruna sé enn verri en íslenskra. Dæmi eru um að ástandið sé svo slæmt að rífa þurfi fjölda tanna úr ungum börnum.

Ólafur F: Málefnasamningur var agn til að sprengja Tjarnarkvartettinn

Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, segir sjálfstæðismenn hafa svikið sig og að málefnasamningur milli hans og þeirra hafi verið settur sem agn til að hann myndi sprengja Tjarnarkvartettinn. Bakland Sjálfstæðisflokksins hafi ákveðið að slíta samstarfinu.

Tjarnarkvartettinn stillti Óskari upp við vegg

Óskar Bergsson hefði ekki getað hafið meirihlutasamtarf við Tjarnarkvartettinn skilyrðislaust. Fyrst hefði hann þurft að hringja í Ólaf F. Magnússon, þáverandi borgarstjóra, og tjá honum að hann myndi ekki ganga til samtarfs við sjálfstæðismenn. Þá og aðeins þá, hefði Ólafur F. sagt af sér og nýr Tjarnarkvartett orðið að veruleika, enda hefði lítið annað verið hægt í stöðunni. Þetta fullyrðir Óskar Bergsson í samtali við Vísi.

Kjartan: Vonbrigði að samstarfið við Ólaf hafi ekki gengið

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir það ákveðin vonbrigði að ekki hefði verið hægt að halda samstarfinu við Ólaf F Magnússon áfram. Ólafur sagði í yfirlýsingu fyrr í dag að hann hefði verið blekktur til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Kjartan segir það ekki rétt.

Ræktuðu ekki sambandið við Björn Inga

Sjálfstæðismenn ræktuðu illa sambandið við Björn Inga Hrafnsson, þáverandi oddvita Framsóknarflokksins, sem varð til þess að upp úr slitnaði í samstarfi flokkanna í október á síðasta ári. Þetta segir Gísli í pistli á heimasíðu sinni.

Framsóknarmenn saka Vg og Samfylkingu um klæki

Stjórnir kjördæmissambands framsóknarmanna í Reykjavík, Framsóknarfélags Reykjavíkur og Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík styðja Óskar Bergsson og ákvörðun hans að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík.

Eldur í tjörupotti á Löngulínu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að nýbyggingu við Löngulínu í Garðabæ um tvöleytið í dag eftir að eldur kom upp í tjörupotti á þaki byggingarinnar. Nokkur eldur var í pottinum þegar slökkvilið kom á vettvang en greiðlega gekk að slökkva eldinn.

Íslenskur friðargæsluliði á leið til Georgíu

Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að senda íslenskan friðargæsluliða Ólöfu Magnúsdóttur til starfa hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, í Georgíu. Ráðuneytið ætlar einnig að leggja þrjár milljónir króna til Rauða krossins vegna þess neyðarástands sem skapast hefur í landinu.

Sjá næstu 50 fréttir